Morgunn - 01.12.1966, Qupperneq 77
MORGUNN
155
og veru jafn háskalegur sáluhjálpinni og trúnni, og margir
þeirra hafa látið í veðri vaka.
Bókin er prentuð í prentsmiðjunni Setberg í Reykjavík
og er vönduð að öllum frágangi. Nokkrar myndir eru í bók-
inni, þar á meðal tvær myndir af höfundinum, er ljósmynda-
miðillinn Hope tók, og þar sem glögglega koma fram and-
litsmyndir fyrri eiginkonu hans og móðurbróður. Hefur Set-
berg góðfúslega leyft mér að birta þessar myndir.
Um bækur þær, sem væntanlegar eru á markaðinn hér nú
fyrir jólin, og um sálarrannsóknir eða duh’æn efni fjalla, er
mér fátt kunnugt. Þó hygg ég, að vænta megi í íslenzkri þýð-
ingu bókar um frú Dixon í Washington, forspár hennar og
sýnir inn í ókomna tíma. Frú Dixon hefur vakið feikna at-
hygli i Bandaríkjunum og raunar miklu víðar fyrir forspár
sinar. Um mörg undanfarin ár hafa amerísk tímarit um hver
áramót birt spár þessarar konu um atburði komandi árs. Og
þykir furðulega margt af því hafa gengið eftir.
Stórkostlegasta athygli munu þó hafa vakið forspár henn-
ar um morðið á Kennedy Bandaríkjaforseta. 1 því sambandi
gerði hún ítrekaðar tilraunir til þess að fá vini forsetans til
þess að telja hann á að hætta við hina örlagaríku för sína til
Dallas, þar sem morðið var framið. En menn töldu þýðing-
arlaust að reyna að telja honum hughvarf, enda ef til vill
ekki trúað forspá frúarinnar meira en svo.
Bók þessa skrifar amerísk blaðakona, Rut Montgomery
að nafni, sem er frúnni nákunnug og hefur haft samráð við
hana um samningu bókarinnar. Bókin hefur komið út í fleiri
eintökum en flestar aðrar bækur, og verið endurprentuð á
síðustu tveim árum á milli tíu og tuttugu sinnum.
Þýðingin, sem er örlítið stytt, er gerð eftir 14. prentun-
inni í marzmánuði þetta ár. Henni fylgir útdráttur úr spám
frúarinnar varðandi helztu atburði ársins 1966.
Utgefandi þessarar bókar er Bókaútgáfan Fróði í Reykja-