Morgunn - 01.06.1975, Qupperneq 22
20
MORGUNN
I bók minni Ljós yfir landamœrin, sem kom út árið 1965,
gerði ég nokkra grein fyrir J. Arthur Findley og bókum hans.
Arthur Findley var fæddur í Skotlandi árið 1883. Foreldrar
hans aðhylltust hinar þrengstu kennisetningar og siði „orþo-
dox“, calvinskrar kirkju Skota á þeim tímum, þar sem djöfull-
inn var alls staðar á hnotskóg, þar sem það mátti teljast synd
að brosa á sunnudögum og sérhver saklaus skemmtun var
talin að synda.
Findley hlaut þegar i æsku hina mestu óbeit á trúarofstæki
og upp kominn taldi hann sig vera i flokki „agnostica", þ. e.
þeirra manna sem með öllu neita því, að unnt sé að fá að
vita neitt í trúarefnum umfram það, sem er okkur mönnun-
um hversdagslega skilvitlegt. Faðir hans var ríkur maður.
Hann var aðaleigandi í stóru fyrirtæki í Glasgow, sem ann-
aðist fasteigna- og þó einkum verðbréfamiðlun. Hann gat
því kostað son sinn til mikillar skólamenntunar. Sjálfui’ gerð-
ist Findley vísindálega sinnaður, einkum um allt það er laut
að sögu mannkynsins. Að loknu námi gekk hann til starfa
í fyrirtæki föður sins, ávann sér vaxandi traust og aukið vald,
unz hann tók að öllu við því, við lát föðnr sins, og gerðist
auðugur maður.
Ég hefi i fyrrnefndri bók minni, Ljós yfir landamœrin, gert
grein fyrir því með hverjum atvikum Findley komst í kynni
við Framlífshyggjuna.1) En mestu skipti það fyrir hann sem
rannsóknarmann þessarar stefnu og rithöfund um 35 ára
skeið, hversu heppinn hann var við hin fyrstu kynni. John
C. Sloan miðill var fátækur verkamaður, frábærlega vand-
aður til orðs og æðis. Hann leit á hæfileilca sína sem heilaga
guðsgjöf og þjónustuskyldu við mannkynið. Hami var miðill
beinna radda, sem er ein allra fullkomnasta tegund fyrirbæra
spíritismans. Framliðnar mannverur geta hagnýtt sér þá
1) Mér hefir hugkvæmzt að spíritismirm gæti á íslenzku kallast Fram-
lifshyggja. Annars er spíritismi allra þjóða heiti á jiessari rannsóknarstefnu
og sannleiksleit, og er hverri þjóð erfitt um vik að víkja fré þeirri afþjóða-
reglu. — J. Þ.