Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 42
40
MORGUNN
Margir segja um þessi fyrirbæri á Filippseyjum sem svo:
„Þessir undralæknar eru farvegir fyrir öfl, sem ekki er hægt
að komast hjá að telja yfirnáttúruleg. Aðrar útskýringar duga
ekki til.“
Bob Swobe sagði við mig eftir að hafa verið vitni að starfi
Antonios Agpaoa: „Harold, þetta er sjaldgæfi hvíti hrafninn,
sem visindin hafa verið að leita að. Og ef við getum sannað
að til sé einn hvítur hrafn, þá vitum við án minnsta vafa, að
til hljóta að vera aðrir hvítir hrafnar. Það sem ég hef séð og
tekið myndir af er hafið yfir öll orð. Áður en ég kom hingað
hefði ég alls ekki getað trúað því sem vísindamaður, að ég
kynni nokkurn tíma að breyta grundvallarskoðunum mínum,
myndi nokkru sinni ganga í berhögg við menntun mína og
þjálfun með því að viðurkenna að öfl eins og þau sem ég hef
orðið vitni að hvernig starfa gegn um Tony, gœtu veriS til.
Nú veit ég að nýr heimur ótrúlegra möguleika hefur opn-
ast, og mig varðar ekkert um það hvað starfsbræður mínir
í vísindum segja, þegar ég sýni þeim þessar kvikmyndir og
gef skýrslu mína. Fg er reiðubúinn að horfast í augu við að-
hlátur og efasemdir, sökum þess að ég veit, að það sem Tonio
er að gera er sannleikanum samkvæmt og ófalsað, þótt ég
þykist hins vegar ekki bera neitt skyn á það, hvernig hann
fer að þessu eða hvaða afl hér er á ferðinni."
Samkvæmt frásögn Shermans brást læknirinn Wanderman
hins vegar öðru vísi við. Taldi hann, þrátt fyrir allt sem hann
var vitni að, að Tonio væri bara sjónhverfingamaður, sem
notaði dýrablóð til blekkinga, falin rakblöð o. þ. h., þótt hann
gæti vitanlega ekki skýrt, hvernig hægt væri að skera með
rakblöðum án þess að ör sæist á eftir. Þá kvað liann hrein-
lætisaðstæður allar við uppskurðina fyrir neðan allar hellur
og hlytu þær að vera stórhættulegar fyrir sjúklinga, enda
þótt ekki hafi borist fréttir af smitun eins einasta þeirra sem
upp hafa verið skornir.
Tony bauð dr. Wanderman að skoða æxli sem hann hafði
tekið úr maga konu nokkurrar og taka jafnframt blóðprufur
af blóði hennar. En dr. Wanderman hafnaði hvorutveggja.