Morgunn - 01.06.1975, Síða 80
78
MORGUNN
látum. Hún læknast af því að snerta klæði Jesú. Um leið
finnur hann, „kraftinn ganga út frá sér“. Spyr hann því,
hver hafi snortið sig. Lærisveinarnir segja, að fólkið þyrpist
allt í kring, utan rnn hann. En hann „litaðist mn, til að
koma auga á konuna, sem þetta hafði gert,“ og sagði við hana:
„Dóttir, trú þín hefir gert þig heila.“ Hér virðist konan hafa
með sínum mikla trúarkrafti seitt til sín, líkt og með segul-
magni, lífsgeislana frá Jesú, og læknast af þeim. En næm-
leiki hans er svo mikill, að hann finnur, þegar þessi kraftur
hennar dregur til sín kraft frá honum sjálfum.
Hinir sömu kraftar verka, þegar Jesús vekur frá dauðum.
Hann sér, að þeir, sem álitnir voru dauðir, eru aðeins í dáfalli.
Frumukerfin í líkama þeirra eru í kyrrstöðu, og úr þeim
læðingi verða þau að leysast. Með hugskeytum og orku-
streymi vekur Jesús þau til leiðslu og starfa, og dauðinn
verður með þeim hætti yfirstiginn. Fyrir fjarsýni eða fjar-
skynjum sér hann og veit ástand þeirra Lazarusar og dóttur
samkundustjórans. Ilann segir, að þau sofi, en séu eigi dáin.
Hann flýtir sér eigi til Lazarusar. Sér, að áhættulaust er, að
hann liggi um stund í dáfalli. Vill nota þetta atvik til að
styrkja trú manna. En misskilningur er það, að nálykt hafi
verið komin af Lazarusi. Nálykt kemur af því, að lifræn efni
leysast sundur í ólífræn eftir dauðann, og verða því ekki
vakin til lifsins i hinn sömu mynd. Ef Jesús hefði vakið þá
upp, sem dauðir voru, er sennilegt, að slíkt hefði borið oftar
við, því að höfundur kærleikskenningarinnar hefir þjáðst
með fleirum ástvina syrgjendum en systrum Lazarusar og
ekkjunni frá Nain. En dáfalls-dæmin, sem N.-Tm. getur um,
eru eigi fleiri en eðlilegar líkur eru fyrir. Hitt er og sjálf-
gefið, að Jesús vildi engu síður lækna, þar sem svo var ástætt
en aðra sjúkdóma, er hann hafði vald yfir.
Eins og Jesús gat leyst bundna krafta, og látið þá starfa til
lífs og heilsu, leiðir af sjálfu sér, að hann gat einnig sett þá
í kyrrstöðu. Sýndi hann þann mátt sinn, er hann var hand-
tekinn, og felldi þá til jarðar, er út voru sendir. Annars
staðar frá hafa menn einnig þekkt þennan kraft, og hefir