Morgunn - 01.06.1975, Side 90
88
MORGUNN
MÖÐURRÖDD AÐ HANDAN
Ungur maður í Los Angeles missti móður sína. Og hann
erfði ekki aðeins eigur hennar heldur einnig vissar skyldur,
sem hún hafði tekizt á herðar. Meðal annars hafði hún
gert að skjólstæðingi sinum ógæfusama og drykkfelda stúlku.
En pilturinn var löngu orðinn steinuppgefinn á sífelldri óreglu
hennar. Og það síðasta sem hann frétti af henni var, að hún
hafði verið rekin úr vistinni fyrir drykkjuskap, og síðan hefði
ekkert til hennar spurzt.
„Ég fór á lögreglustöðina um kvöldið,“ segir pilturinn, „en
fékk þar fremur daufar undirtektir. Ég var í öngum mínum
út af hvarfi stelpunnar, stóð og studdist fram á handrið girð-
ingarinnar í kring um ráðhúsið, um leið og ég sagði ósjálf-
rátt og í hálfum hljóðum: „Jæja, mamma. Ég er búin að leita
að henni eins og ég get og finn hana hvergi. Það sem ég
óttast mest er að hún fyrirfari sér, þar sem hún er nú orðin
einstæðingur og vinalaus.“ Svo að segja í sama vetfangi heyri
ég rödd mömmu svara: „Hvað er þetta, Dick. Hún er á gisti-
húsinu héma rétt hjá.“ Mér varð ekkert tiltakanlega illt við
og litla gistihúsið blasti þarna við mér. Ég fór rakleitt þangað
og spurði eftir henni. Og hún er þar reyndar og kemur út til
min föl og grátbólgin og spyr hvernig ég hafi vitað, að hún
væri hér. Ég sagði henni, að mamma hefði sagt mér það. Við
það létti henni. En ég er viss um að hún hefði grandað sér,
ef ég hefði ekki komið í tæka tið til að hjarga henni frá því.“
TRY GGIN GASK JALIÐ
Árið 1947 andaðist í Kahforníu úr lungnabólgu ungur mað-
ur aðeins sjö vikum eftir að hann kvæntist. Hin unga ekkja
var algjörlega eyðilögð, ekki aðeins vegna hins sviplega frá-
falls eiginmannsins, heldur einnig af fjárhagsáhyggjum. Dauða
mannsins hafði horið svo brátt að, að líftryggingu hans hafði