Fréttablaðið - 19.11.2010, Side 34
2
Nemendur við Fjölbrautaskólann í Breiðholti opna samsýningu á skúlptúrverkum
í Galleríi Tukt í Hinu húsinu á morgun, laugardag, milli klukkan 16 og 18. Þar
verða til sýnis lokaverkefni nemenda úr skúlptúráfanga sem þeir hafa setið í vetur.
Sýningin stendur til 3. desember.
„Við vildum rammíslenskt nafn,
stutt og laggott, og eftir mikl-
ar vangaveltur varð Esjan fyrir
valinu. Nú geta stelpurnar sagst
ætla á pinnahælum á Esjuna,“
segir Draupnir Rúnar Draupnis-
son, einn þriggja eigenda nýs
skemmtistaðar á horni Austur-
strætis og Pósthússtrætis.
25 ára aldurstakmark verður
inn á Esjuna en Draupnir segir
þennan aldurshóp hafa verið
utanveltu. „Við skynjuðum það á
fólki kringum okkur að þessum
aldurshóp fannst hann hvergi
eiga heima lengur, nema kannski
á börum. Þetta fólk langar auðvit-
að líka til að dansa en á Esjunni
er framúrskarandi dansgólf og
góð aðstaða til að spjalla. Þetta
er elegant og kósí staður.“
Draupnir Rúnar hefur undan-
farnar vikur staðið í ströngu
ásamt félögum sínum, Gunnari
Traustasyni og Elvari Má Atla-
syni, við standsetningu Esjunn-
ar, en áður var skemmtistaðurinn
Apótekið í húsnæðinu. Draupnir
Rúnar segir þá hafa snúið öllu
við.
„Öllu 2007-dótinu af Apótekinu
var sópað út og búin til ný ljós
og sófar og málað í öðrum litum.
Hanna Stína arkitekt sá um breyt-
ingarnar og útkoman er glæsi-
leg. Tónlistin á staðnum verður
ný danstónlist í bland við gamalt
og gott. Í framhaldinu sjáum við
líka fyrir okkur fjölbreytta við-
burði, meðal annars lifandi tón-
list,“ segir Draupnir.
Opnunarteitið hefst klukkan 21
í kvöld og stendur til miðnættis.
Klukkan 22 hefst létt dagskrá,
meðal annars tískusýning, og von-
ast Draupnir Rúnar til að sjá sem
flesta. „Það eru allir 25 ára og
eldri hjartanlega velkomnir með
góða skapið á Esjuna í kvöld.“
heida@frettabladid.is
Á pinnahælum á Esjuna
Nýr skemmtistaður verður opnaður í kvöld í Austurstræti þar sem áður var Apótekið. Staðurinn er
ætlaður aldurshópnum 25 ára og eldri og hefur fengið nafnið Esjan.
„Við snerum öllu við og sópuðum 2007 dótinu af Apótekinu út,“ segir Draupnir
Rúnar, einn þriggja eigenda skemmtistaðarins Esjunnar sem verður opnaður í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég er að drekka aada drykkinn og líkar vel.
Mér finnst hann hjálpa mér að viðhalda orkunni
og styrkja ónæmiskerfið mitt sem ég þarf á að
halda vegna þess að ég er að æfa mjög mikið
fyrir komandi mót.”
VIKTOR KRISTMANNSSON
er íþróttamaður og 9 faldur íslandsmeistari
í fimleikum og smáþjóðaleikameistari.
Á tilboði fram að jólum
í næstu verslun
Engiferdrykkurinn aada
frá My Secret
E n g i f e r e h f | D i g r a n e s v e g i 1 0 | 2 0 0 K ó p a v o g i | S í m i 5 2 7 - 2 7 7 7 | w w w. m y s e c r e t . i s