19. júní - 19.06.1980, Síða 35
Hvers vegna
19. júní?
Ýmsir eru þeir meðal yngri kyn-
slóðarinnar, sem spyrja eitthvað á
þá lund, hvaða dagur 19. júní sé
eiginlega og hvernig þetta heiti
ársrits KRFÍ sé til komið. Hinum
eldri, sem þekkja forsögu þessa
nafns, furðar oft þessi fáfræði, og til
að bæta hér nokkuð úr, þykir rit-
nefnd við hæfi að rifja upp helstu
atriði þeirrar sögu.
Hinn 19. júní árið 1915 fengu ís-
lenskar konur kosningarétt og
kjörgengi til Alþingis til jafns við
karla, að vísu með vissum aldurs-
takmörkunum í fyrstu, en þær
voru felldar niður fimrn árum síð-
ar.
velli, en síðan varð 19. jútií árlegur
minnisdagur þessa megináfanga í
jafnréttisbaráttunni.
Til að undirstrika þegnskap sinn
samfara fengnum rétti ákváðu
konur strax á fyrsta kvenréttinda-
deginum að beita sér fyrir stofnun
landsspítala og stofnuðu sjóð í því
Þessum mikilsverða sigri fögn-
uðu íslenskar konur þegar við
setningu Aljhngis 7. júlí 1915 með
miklum hátiðahöldum á Austur-
skyni. 19. júní varð sjálfkjörinn
fjáröflunar- og baráttudagur þessa
þjóðþrifamáls, þar til byggingu
spítalans var lokið árið 1930, auk
j^ess sem hann var um nokkurt
árabil hátíðlegur haldinn með úti-
samkomum og fögnuði. Var 19.
júní þá ýmist nefndur kvennadag-
urinn, kvenréttindadagurinn eða
Landsspítalasjóðsdagurinn.
Til stuðnings Landsspítalamál-
inu, svo og til að eggja konur til að
neyta fengins frelsis, hóf Inga Lára
Lárusdóttir útgáfu mánaðarrits
árið 1917, sem bar heitið 19. júní.
Þetta rit kom út reglulega til árs-
loka 1929.
Síðan liðu rúmir tveir áratugir,
þar til árið 1951, að KRFl hóf út-
gáfu ársrits undir þessu sama heiti,
aðallega að frumkvæði Svöfu Þór-
leifsdóttur, er varð fyrsti ritstjóri
blaðsins. Hefur hinn endurvakti
19. júní komið út óslitið síðan.
I fyrsta tölublaði gerði Svafa
grein fyrir tilurð blaðsins og gaf þá
skýringu á heiti þess, að það mætti
verða til að „vekja oss þann metn-
að að láta eigi falla í gleymsku og
dá minninguna um . . . árið 1915.“
Þeim tilgangi á það enn að þjóna.
J. M. G.
Frá fyrsta kvenrétt-
indadeginum 1915.
Hátíðasamkoma á
Austurveili við setn-
ingu Alþingis.
33