19. júní - 19.06.1980, Qupperneq 42
Katrín
Pálsdóttir.
Rætt við nema í húsgagna-
smíði. Talið frá vinstri: Lára,
Sigríður og Jóhanna.
Húsgagnasmiðir
»Ég var satt að segja mjög
svartsýn þegar ég fór að leita mér
að starfi eftir að hafa lokið grunn-
deildinni í Iðnskólanum. Eg fór á
hvert verkstæðið á fætur öðru og
fékk alls staðar sama svarið: „Þetta
er nú ekki kvenmannsverk góða“.“
Það er Lára Björnsdóttir nemi i
húsgagnasmíði, sem fékk þannig
móttökur hjá húsgagnaframleið-
endum, þegar hún var í atvinnuleit
fyrir einu ári síðan, eftir að hún
lauk fyrsta árinu í Iðnskóla. En
eftir heimsókn á nokkra staði fékk
hún starf í Gamla kompaníinu og
líkar vel.
Lára er ein þeirra stúlkna, sem
hefur farið inn á hið hefðbundna
starfssvið karla og það hafa einnig
gert stöllur hennar, þær Jóhanna
Ríkey Sigurðardóttir og Sigríður
40
Guðsteinsdóttir. Þær hafa allar
lokið námi sínu í framhaldsdeild
Iðnskólans og næsta vor taka þær
sveinspróf í húsgagnasmíðinni.
En hvað skyldi hafa vakið áhuga
stúlknanna á smíði? „Pabbi minn
er húsasmiöur og hann var alltaf
með alls konar verkfæri heima i
bílskúrnum, sem ég stalst í. Eg
hafði gaman af því að búa til alls
konar hluti úr tré og ekki minnkaði
áhuginn, þegar ég fékk að spreyta
mig á smíði í skólanum," segir Jó-
hanna.
Eftir að Jóhanna lauk grunn-
deild Iðnskólans fór hún út á
vinnumarkaðinn og fékk starf hjá
Kristjáni Siggeirssyni. Þar vann
hún í eitt ár og hélt svo áfram námi
í framhaldsdeild.
„Eg vildi fullvissa mig um, að
mér líkaði starfið, áður en ég hélt
áfram námi i framhaldsdeildinni,“
segir hún.
Þær Lára og Sigríður eru 1 7 ára
gamlar. Þær fóru í Iðnskólann,
eftir að hafa lokið prófi úr 9. bekk
grunnskóla. Jóhanna er aftur á
móti gagnfræðingur og settist síð-
an í Iðnskólann. Hún er 19 ára
gömul.
Þær Lára og Sigríður eru úr
Kópavogi. Þar fengu þær að
dunda við smíðar í barnaskóla og
þar vaknaði áhuginn. Síðan völdu
þær aftur smíði í 9. bekk og sögðu,
að þá hefðu þær verið ákveðnar í
því að fara i Iönskólann.