19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 69
Starf KRFI.
Aðalfundur Kvenréttinda-
félagsins var haldinn 26. marz sl.
Verða hér rakin helstu atriði úr
skýrslu formanns um starfsemi
félagsins á síðasta starfsári.
Félagsmenn í KRFl eru nú 342
en aðildarfélög eru 12 í Reykjavík
og 35 utan Reykjavíkur. Skrifstofa
félagsins á Hallveigarstöðum er
opin á Jjriðjudögum kl. 17—19 og
sér Júlíana Signý Gunnarsdóttir
um daglegan rekstur hennar.
Stjórnin ákvað að breyta fyrir-
komulagi stjórnarfunda á sl. ári. I
stað þess að öll stjórnin komi sam-
an hálfsmánaðarlega hefur nú ver-
ið stofnaður e.k. framkvæmdahóp-
ur, sem hittist vikulega, en i hópn-
um eru formaður, varaformaður,
ritari og gjaldkeri. Aðrir stjórnar-
menn koma á þessa fundi þegar
þeir geta komið því við. Öll stjórn-
in hittist síðan á kvöldfundi einu
sinni í mánuði og ræðir félags-
starfið. Þessi tilhögun hefur reynzt
ágætlega.
I
Fyrsti fundur á sl. vetri var
haldinn 8. október og var hann til
undirbúnings ráðstefnu um jafna
foreldraábyrgð, sem halda skyldi í
nóvember. En þar sem skyndilega
var boðað til Alþingiskosninga í
landinu varð að ráði að fresta ráð-
stefnunni fram yfir áramót. Vegna
kosninganna var rætt um það í
stjórn KRFI hvernig best væri að
koma á framfæri hvatningum til
kvenna um að láta að sér kveða í
prófkjörum og við val á lista flokk-
anna. Þar sem stuttur tími var til
stefnu var farin sú leið, að senda
konum hvatningarorð í gegnum
útvarpið með auglýsingum. Voru
konur þar hvattar til að gefa kost á
sér til prófkjörs og skipa sér á lista
flokkanna, jafnframt sem bent var
á þá staðreynd, að þótt konur væru
50% þjóðarinnar væru aðeins 5%
alþingismanna konur. Þessi aðgerð
vakti verðskuldaða athygli og í
framhaldi af henni gafst tækifæri
til að koma ýmsum upplýsingum
um þátttöku kvenna í ákvarðandi
stöðum á framfæri í fjölmiðlum.
I beinu framhaldi af áðurnefnd-
um hvatningum hélt KRFÍ fram-
bjóðendafund á Hótel Borg hinn
10. nóvember. Var öllum stjórn-
málaflokkum boðið að senda kon-
ur til þess að kynna málstað síns
flokks. Var þetta einnig ágætt
tækifæri fyrir konur í framboði til
þess að kynna sig. Var fundurinn
mjög vel sóttur og hinn fjörugasti.
KRFÍ var stofnað 27. janúar
1907. 73 ára afmælis félagsins var
minnst með vöku á Kjarvalsstöð-
um laugardginn 26. janúar sl. Er.
þetta í annað skipti, sem afmælis-
ins er minnst á þennan hátt. Á
vökunni voru kynntar konur í list-
um og vísindum með upplestri,
Fráfarandi og núverandi stjórn Kvenrétt-
indafélags íslands í apríl sl.
67