19. júní


19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 4

19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 4
Frá ritstjóra Það verður að teljast tíðindum sœta að á aðeins einu ári hefur ásýnd íslenskra stjórn- mála tekið stakkaskiptum. í sveitarstjórnar- kosningunum fyrir rúmu ári fjölgaði konum í bœjar- og sveitarstjórnum úr sex prósent í rúm tólf prósent, eða um liðlega helming. Og í nýafstöðnum alþingiskosningum þrefaldað- ist fjöldi kvenna á þingi. Par við bœtist að í nýskipaðri ríkisstjórn landsins gegnir Ragn- hildur Helgadóttir embætti menntamálaráð- herra, en fyrir utan Auði Auðuns, sem var dómsmálaráðherra árin 1970-1971, hefur engin kona átt sœti í ríkisstjórn íslands til þessa. Loksins tókst að rjúfa skarð í karlavirkin sem næstum án undantekninga hafa umlukt allar helstu stjórnstöðvar íslenska ríkisins. Með Vigdísi Finnbogadóttur forseta í öndvegi lýðveldisins fer þess ef til vill að sjá stað hvað úr hverju að við búum við full- trúalýðræði þar sem konur eru fullur helm- ingur jafnt kjörgengra sem kjósenda. Eins og forsíða 19. júní að þessu sinni ber með sér teljum við sem að jafnréttismálum vinnum að fjölgun kvenna á alþingi sé mikils- verður áfangi; ég undirstrika orðið áfangi, því að hér hefur að sjálfsögðu engu endan- legu marki verið náð. Hins vegar er því ekki að neita að nú hefur verið stigið mikilvægt skrefí átt til jafnræðis milli karla og kvenna á vettvangi stjórnmálanna. Á innsíðum blaðs- ins koma fram skoðanir og vangaveltur, bæði í viðtölum og greinum, um hvað ráðið hafi þessari stökkbreytingu og hvers megi vænta af hinum nýkjörnu konum á alþingi. Pað eitt skal ítrekað hér að því verður seint trúað að fjölgun kvenna þar boði ekki framför; sann- gjarnara og manneskjulegra verðmætamat við stjórnun landsins. í 19. júní ífyrra var í alllöngu máli fjallað um það sem blasir við konum sem vilja fara aftur út á vinnumarkaðinn eftir mislangt hlé vegna uppeldis- og húsmóðurstarfa. Þar var í fjölmörgum viðtölum við forráðamenn á vinnumarkaðinum og stjórnendur í skóla- málum reynt að upplýsa hvaða möguleika konur hafa til að leita sér starfa eða menntun- ar. Ennfremur var rætt við margar konur sem höfðu frá eigin reynslu í þessum efnum að segja. Því er þetta rifjað upp hér að þessi umrœða í blaðinu varð tilefni ráðstefnu sem KRFÍ gekkst fyrir síðastliðinn vetur um sama efni. Og eins og snjóbolti sem sífellt hleður utan á sig vöknuðu þar enn nýjar spurningar sem þarfnast svara og eru til umfjöllunar nú. Það er Ijóst að eitt stærsta vandamál kvenna í þessri aðstöðu er oft það að þær treysta sér ekki, telja sig ekkert kunna „sem atvinnurekanda sé bjóðandi“ eins og einn viðmælandi blaðsins komst að orði, stundum þrátt fyrir að ekkert skorti á formlega menntun. Hér þarf augsýnilega að bregðast við með einhvers konar aðstoð til að styrkja sjálfstraust kvenna og hún verður helst að koma til áður en farið er að leita fyrir sér á vinnumarkaðinum. í blaðinu er að þessu sinni sagt frá ýmsum leiðum sem hugsanlegar eru, fyrst og fremst í þeim tilgangi að upplýsa lesendur um hvað stendur konum til boða eins og er. Jafnframt greinir frá athyglisverðri ráðgjafarstöð vestur í Bandaríkjunum sem einbeitir sér einmitt að þessu verkefni. Kvenréttindafélagið mun njóta leiðsagnar stofnandans nú í júnímánuði og beri hún þann árangur sem vonir standa til, gæti innan tíðar opnast fleiri möguleikar hér á landi til að styrkja sjálfstraust þeirra kvenna sem bæði geta og vilja en þora ekki. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.