19. júní


19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 55

19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 55
Helstefna og lífsstefna. Við vorum áðan að tala um mistök í hita baráttunnar á síðasta áratug. Það munu t.d. hafa verið dæmi þess að sumar konur kunnu sér ekki hóf í ákaf- anum við að breyta eigin aðstæðum, og einblíndu á starfsframann á svipaðan hátt og margir karlar en létu einkalííið sitja á hakanum. Hins vegar finnst mér það stórt spor aftur á bak, þegar verið er að draga þessi skörpu skil milli karla og kvenna, eins og nú heyrist stundum gert. Talað er um lielstefnu karla og lífsstefnu kvenna. Talað er um að kon- ur séu fulltrúar mannlegra sjónarmiða Börnin eru innkoma karlmannsins . . . en karlar peningasjónarmiða, og þá finnst mér við vera að einfalda hludna meira en leyfilegt er. Peningasjónar- mið geta verið mannleg sjónarmið og stundum er erfitt að gera greinarmun á helstefnu og lífsstefnu, eða eins og Jón Hreggviðsson sagði við Arnas Arnæus: — Hvenær drepur maður mann og hve- nær drepur maður ekki mann? Það getur jafnvel verið matsatriði hvaða gildi eru mjúk og hver ekki. En að mínu mati er það ábyrgðarhluti, ef konur fara endanlega að slá hring í kringum sjálfar sig sem konur. Það getur m.a. valdið því, að karlar varpi af sér allri ábyrgð á málum, sem bar- átta kvenna hefur smám saman þokað yfir á þeirra herðar. Ég hef þó þá trú að þær glæsilegu konur sem kjörnar voru á Alþingi af kvennalistum í vor, festi sig ekki í þröngum sjónarmiðum um sérstöðu kvenna, heldur vinni mark- visst að aukinni blöndun í samfélag- *nu. Að þær geri sitt til að koma á því rnargra-kvenna-kerfí sem við nefndum hér að framan. Hver yrði staða konunnar? — Þetta leiðir hugann að pólitík og framboðum. Fyrir mér er það eðlilegt að fólk gefi sig að stjórnmálastarfi. Eg hef fylgt sjálfstæðisstefnunni og tekið þátt í stjórnmálastarfi innan Sjálfstæð- isflokksins. í jafnréttismálum hafa sjálfstæðiskonur sótt fram undir eink- unnarorðunum: Einstaklingsfrelsi er jafnrétti í reynd, og ég tel að þau lýsi með einfoldum hætti því sem sóst er eftir, markmiðum og leiðum. En stjórnmálaflokkar virðast í eðli sínu vera íhaldssamar stofnanir. Sú hætta er ávallt fyrir hendi, að nýir straumar og stefnur úti í samfélaginu nái ekki til þcirra, sem móta starfs- hætti flokkanna, og að ekki sé sinnt sem skyldi um eðlilega endurnýjun. Vilji kvenna til að láta að sér kveða í stjórnmálum er mikill og hefur farið vaxandi. Viðvörun kom fram með sér- framboðum kvenna við sveitarstjórn- arkosningarnar vorið 1982. Menn létu sér ekki segjast. Hleðslan hélt áfram, og líkt og þegár nýbylgja kvennahreyf- ingarinnar reis sem hæst, braust hún fram. I stuttu máli má því segja að kvennalistarnir við Alþingiskosning- arnar vorið 1983 hafi verið orka scm leitaði framrásar. Hún fann sér ekki farveg hjá flokkunum og fór því utan þcirra. Jöfn foreldraábyrgð En hér þarf að hafa gát á. íslenskt þjóðfélag byggir á lýðræðisskipulagi og hér er virkt þingræði. Flokkakerfið er tæki samfélagsins til að leiða í ljós vilja meirihlutans um þær grundvall- arstefnur sem valið stendur um hverju sinni. Ef flokkakerfið riðlast til dæmis vegna þess að nýjar hugmyndir og við- horf fá þar ekki framrás eða vegna þess að sofið hefur verið á verðinum, getur sjálft lýðræðisskipulagið verið í hættu. Með því að brjóta niður stjórnmála- flokkana í stað þess að umskapa þá og endurnýja, erum við ef til vill að höggva að rótum þeirrar samfélags- byggingar sem við búum við. Hver yrði staða konunnar þá?“ Guðrún Egilson Aðgerð sem heppnaðist fullkomlcga. Á Lækjartorgi 24. október 1975 — kvennafríið 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.