19. júní


19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 44

19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 44
Þekki sjálfa mig mun betur en áður — segir Ingibjörg Harðardóttir, einn þátttakenda á sj álfsstyrkingarnámskeiðunum „Ástæðurnar eru að sjálfsögðu margar, en kannski glcymum við flest að öllum er nauðsyn að þykja vænt um sjálfan sig og ckki síst að meta sjálfan sig að verðlcikum. Of mikil áhcrsla á hógværð og lítillæti leiðir oft til þess að við lítum ekki raunsæjum augum á hvaða jákvæða eiginleika við höfum til að bera. Okkur hættir til að vera of sjálfsgagnrýnin og gera of miklar kröfur til sjálfra okkar. Flestir eru umburðarlyndari gagnvart öðrum en sjálfum sér, gera úlfalda úr mý- flugu vegna minnstu mistaka scm þeir sjálfir gera, en gleyma fljótt mistökum annarra. Sjálfsagt erum við Norður- landabúar lokaðri cn margir aðrir og virðumst eiga eríitt að hrósa hvert öðru. Kannski gctum við lært eitthvað af Bandaríkjamönnum, þótt hrósyrði þeirra gangi stundum út í öfgar. Oll- um finnst okkur notalegt að heyra notalegar athugasemdir um okkur frá öðrum.“ — Telur þú að skortur á sjálfs- styrk hái konum frekar en körlum? „Bæði konur og karlar geta liðið skort á sjálfstrausti, en hið heíð- bundna ummönnunrhlutverk kvenna hefur ef til vill valdið því að þeim er hætt við að láta sjálfar sig sitja á hakanum.“ — Er heimavinnandi konum hættara við slíku en þeim sem sækja störf sín úti á hinn almenna vinnumarkað? „Það þarf ekki að vera. Sumar hcimavinnandi konur cru einangrað- ar, aðrar ekki. Þess má ekki síður geta að þær konur sem vinna við einhæf störf veigra sér oft við að takast á við ný og framandi verkefni. Það skiptir ckki megin máli hvert staríið er, hvort í hlut á heimavinnandi kona eða útivinnandi, það eru svo margir þætt- ir sem grípa þarna inn í.“ — Að lokum Anna, munt þú halda þessum námskeiðum áfram? ,Já, ég hef sjálf haft bæði þroska og gleði af námskeiðunum og meðan ég tcl mig finna ótvíræðan árangur og áhuga þá geri ég það. „Ástæðan fyrir því að ég dreif mig á námskeið var ekki sú að mér þætti feimni cða óöryggi há mér í daglcgu lífi, heldur fannst mér sem það hlyti að vera áhugavert að setjast niður með öðrum konum og skiptast á skoð- unum við þær um mannleg samskipti almennt. Námskeiðið gerði mér mjög gott og var ákaflcga þroskandi." |tað er Ingibjörg Harðardóttir, 31 árs gömul starfsstúlka á leikskóla scm þannig mælir, en hún sótti sjálfsstyrk- ingarnámskcið í mars sl. „Þarna kom mjög margt fram sem opnaði augu mín gagnvart öðru fólki, fckk mig til að líta jafnvel minnstu atriði allt öðrum augum. Afleiðingin er vonandi aukin tillitssemi í garð annarra.“ — Hvað hefur nú komið þér að mestum notum? „Það er svo ótal margt. Kannski þó fyrst og frcmst það að mér frnnst ég þekkja sjálfa mig mun betur eftir en áður. Ég á auðveldara með að svara fyrir mig, án þess þó að vera ókurteis þó tilefnið gefi kannski ástæðu til. Eða það hefði mér sennilega þótt áður. Eg er mun ákveðnari í að standa á rétti mínum, læt mér ekki nægja lengur hálfvolg tilsvör eða athugasemdir. Til dæmis lenti ég í því í lok námskeiðsins að þurfa að óska eftir ákveðinni þjón- ustu. Svarið sem ég fékk í upphafi var: „Við skulum athuga málið.“ Áður hefði ég sennilega látið mér það nægja og beðið jafnvel vikum eða mánuðum saman. En í þetta sinn lét ég ekki 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.