19. júní


19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 11

19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 11
Dansflokkurinn hefur 10 stöðugildi en auk þess er Qárveiting fyrir tveimur nemum. Gegnum árin hafa dansar- arnir stundum verið fleiri og hafa þá skipt með sér stöðum. — Hvemig em kjör listdansar- anna? Fyrstu árin vorum við algjörir ómagar. En fyrir þremur árum voru kjörin bætt og nú eru þau í stórum dráttum samsvarandi leikurum á B-samningi. Það kom á óvart að hvorki meira né minna en helmingur flokksmeðlima á börn. Ingibjörg og Nanna töldu því ríka ástæðu fyrir dansarana að hafa góða barnapíu. Eftir því sem næst var komist hafði það tekist bærilega. — Hvemig er vinnu dansflokks- ins háttað? Það eru fastir jrjálfunartímar, 6 daga vikunnar, aðeins frí á sunnudög- um. Við þessa föstu tíma bætast æfing- ar fyrir sýningar. Þó að sýningar séu fáar, verður stöðugt að þjálfa dansar- ana til þess að geta tekist á við verk- efnin þegar að sýningu kemur. Ekki má gleyma að leiksviðið sjálft er stór þáttur í þroska dansarans og enginn dansari verður fullkominn í æíingasal. — Hvað má segja um aðstöðu og helstu erfíðleika flokksins? Um það mætti hafa langt mál. En aðalvandamálið er vinnuaðstaðan. Flokkurinn deilir húsnæði með lcikur- um Þjóðleikhússins. Æfingasalurinn okkar er eini æfmgasalur leikhússins. Þennan sama sal notar Listdansskólinn á kvöldin. Síðan ber að nefna aðstöðuleysi flokksins viðvíkjandi sýningum. Osk okkar hefur verið sú að fá eina fasta ballettsýningu á leikárinu, á verkefna- skrá leikhússins. Það heitir á fagmáli ,,répertoire“, þ.e.a.s. þær sýningar sem áskriftargestir sækja. Ballettsýn- ingar hafa verið aukasýningar sem skotið er inn á milli. Reynslan af slík- um sýninguin er ekki góð. Sýninga- Qöldinn takmarkast af aðsókn fyrstu sýninga, sem beinlínis krefst þess að fólk sé vakandi og bregðist skjótt við, annars missir það afsýningunni. Umfjöllun ljölmiðla hefur í þessu Nanna Ólafsdóttir og Ingibjörg Björnsdóttir í æfingasal Þjóðleikhússins. tilliti mikil áhrif. Það getur hreinlega drepið góða sýningu efekkert er á hana minnst í fjölmiðlum. — Hafið þið tækifæri til þess að fylgjast með þróun listdansins í öðrum löndum? Dansararnir hafa farið námsferðir bæði til London og Kuopio í Finn- landi. Við höfum 6 vikna sumarfrí, þannig að best er að fara á þeim tíma, en gallinn er bara sá að þá er lítið um að vera í leikhúsum. Við reynum að fylgjast með, en það er mest gert á eigin kostnað. Margir dansaranna hafa sótt námskeið til New York og víðar. — Hvernig er með áhorfendur, sem sækja ballettsýningar — hafið þið orðið varar við nokkrar breyt- ingar? „Danssmiðjan“ var flutt í febrúar sl. Ekki á þann hátt sem orðið er í Bandaríkjunum og víða í Evrópu, að það er tíska að sækja ballettsýningar. Hér er of langt á milli sýninga til þess að binda áhorfendahóp, fólk gleymir tilveru flokksins. En það eru flciri karl- menn í hópi áhorfenda en voru hér áður. — Fyrst við minnumst á karl- menn, hvaða áhrif hefur skortur- inn á karldönsurum? Sá skortur hefur veruleg áhrif, sér- staklega í verkefnavali og við sanin- ingu nýrra dansa. En það hefur orðið mikil breyting á hlutverki karldansara gegnum árin. Þeir eru ekki lengur bara prinsar í flaueli og hvítum sokkabux- um. Nú eru þeir miklu karlmannlegri. I nútíma ballettverkum er ímynd karl- mennskunnar undirstrikuð. Kynvilluhugmyndin sem áður fyrr var tengd karldönsurum hefur örugg- lega stuggað ungum piltum frá þessari listgrein. - Verður einhver sérstök sýning í tilefni 10 ára afmælisins, eða var „Danssmiðjan“ tengd afmælinu? Ballettsýningin,,Danssmiðjan“, sem ílutt var í febrúar, varað öllu leyti innanhússverk eins og sagt er, samin og llutt afokkar fólki. Upphallega átti að vera afmælissýning í mars sem ekk- ert varð úr vegna breyttrar verkefna- skipanar leikhússins. Við l'engum styrk frá menntamálaráðuneyti gagn- gert fyrir afmælissýningu og mun hann væntanlega notaður á næsta leikári. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.