19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 43
Sýndu eitthvað
af sjálfri þér
— spjallað við Önnu Valdimarsdóttur sálfræðing
um námskeið í sjálfstyrkingu
Sjálfsstyrkur felur í sér aukna sjálfs-
þekkingu og aukið öryggi í samskipt-
um við aðra. Mcnn þurfa að vita hvað
þeir vilja, hvað þeim finnst og ekki síst
að geta sagt öðrum frá því án þess að
fmna til óhóflcgs kvíða. Það er eðlilegt
að hagsmunir manna rekist á og þá er
nauðsynlegt að geta leyst ágreining-
inn með málamiðlun, svo hvorugur
aðilinn tapi sjálfsvirðingu sinni og
báðir fái einhverjum af þörfum sínum
fullnægt.'1
— Hvernig stóð á því að þú byrj-
aðir með þessi námskeið?
„Er ég var við framhaldsnám í
Seattle í Bandaríkjunum kynnti ég
mér sérstaklega námskeiðahald af
þessu tagi. Þar í landi hefur þróunin
orðið sú að almcnningur sækir mikið
svona námskeið og skrifaður hefur
verið fjöldi bóka fyrir leikmenn um
þetta efni.
í upphafi voru námskeiðin hjá mér
bæði fyrir konur og karla, en eftir
áramót hef ég cingöngu verið með
námskcið fyrir konur. Fjöldi þátt-
takenda á hverju námskeiði er miðað-
ur við 12—14 konur og koma þær
hingað einu sinni í viku eða oftar, en
námskeiðin standa samtals í tólf
tíma.“
— Geturðu lýst í stuttu máli
hvernig námskeiðin fara fram?
„Námskeiðin byggjast upp á fyrir-
lestrum, æfingum og hópvinnu. Þátt-
takendum er oft skipt niður í smærri
hópa sem taka til umfjöllunar ákveðið
afmarkað efni sem konurnar skiptast
á skoðunum um og gera athugasemd-
>r við. Síðan cr íjallað nánar um nið-
urstöður hvers hóps. Oft eru tekin
fyrir vandamál daglegs lífs og fundnar
leiðir til að leysa þau.“
— Er einhver samnefnari fyrir
þær konur sem sækja námskeiðin?
„Alls ekki. Til mín koma konur á
öllum aldri, allt frá átján ára og yfir
sextugt, konur úr öllum þjóðfélags-
hópum. Reynsla mín er sú að það sé
undantekningalaust til góðs hversu
blandaðir hóparnir eru. Konurnar
koma alls staðar að úr þjóðlífinu og
margar vinna störf þar sem reynir
mikið á samskipti við annað fólk.
Langflestar hal'a tekið það upp hjá
sjálfum sér að taka þátt í námskeiðun-
um því þær hafa haft áhuga á að ræða
mannleg samskipti og heyra sjónar-
ntið annarra og aðrar koma einfald-
lega vegna þcss að þær telja sig hafa
gott af því.“
— Hversu fljótt er hægt að
merkja árangur af slíku nám-
skeiði?
„Það er auðvitað misjafnt, en kon-
urnar ná undantekningarlítið íljótt
saman og mörgum linnst auðvelt að
tjá sig strax í fyrsta tíma. Er líða tekur
á námskciðið hafa konurnar oft sagt
að þær ættu auðveldara með að slaka
á innan um fólk^ væru opnari, já-
kvæðari í samskiptum við aðra og
ættu léttara með að sýna tilfinningar
sínar. Margar telja sig frekar geta sett
sig í spor annarra og hlustað á aðra.
Það gleður mig ekki síst er konur segj-
ast eiga auðveldara með að svara fyrir
sig án þess að beita hörku eða yfir-
gangi.“
— Telurðu þig sjá einhverja
meginástæðu fyrir skorti á sjálfs-
trausti hjá konum?
Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur.