19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 64
ljúfu fjölskyldumynd sem sett er í veg-
legan ramma og hengd upp á stofuvegg-
inn. Fjölmargar íslenskar konur á öll-
um aldri og úr öllum stéttum, jafnt
húsmæður sem útivinnandi konur,
hvort sem þær eða menn þeirra hafa
langa eða skamma skólagöngu að
baki, búa við skelfilegt ofbeldi á heim-
ilum sínum. Um þetta ofbeldi hefur
verið reistur múr einangrunar og
þagnar og því jafnframt haldið fram að
íslenskar konur standi betur að vígi en
flestar ef ekki allar aðrar konur.
Ofbeldi innan fjölskyldunnar er þó
eitthvert gleggsta og alvarlegasta
dæmi kvennakúgunar sem til er og því
virðist sú fullyrðing ekki lengur fá stað-
ist að íslenskar konur séu flestum öðr-
um konum betur settar. Það er að
koma í ljós að ofbeldi gegn konum er
útbreitt þjóðarböl hér á landi og starf-
semi kvennaathvarfsins er einn liður-
inn í að aflétta því böli.
Fjáröflun
En þótt kvennaathvarfið hafi verið
opnað 6. desember sl. er ekki þar með
sagt að framtíð þess hafi verið tryggð.
Eins og ég sagði áðan fékkst ágætis
húsnæði undir athvarfið, en það er
leiguhúsnæði. Þess vegna var fljótlega
farið að svipast um eftir öðru sem sam-
tökin gætu keypt. Einnig var leitað til
ríkisins og sveitarfélaga um styrki.
Segja má að allir þeir opinberu aðilar
sem leitað var til hafi brugðist vel við,
samtökin voru t.d. komin inn á Oádög
áður en athvarfið var opnað og
Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög
höfðu næsta lítið áþreifanlegt í hönd-
unum þegar taka þurfti afstöðu til þess
hvort styrkja ætti athvarfið. Samtals
fengu samtökin rúma milljón í opin-
bera styrki sl. vetur. Þessir styrkir voru
ekki notaður í rekstur athvarfsins,
heldur var hann fjármagnaður með fé-
lagsgjöldum og gjöfum sem samtökun-
um bárust frá ýmsum einstaklingum
og félagasamtökum og þar að auki með
vænum skammti af hagsýni. Opinberu
styrkirnir voru lagðir í húsakaupasjóð
en það er augljóst að ein milljón dugir
skammt til að kaupa hús. Því var það
að samtökin efndu til merkjasölu á höf-
64
uðborgarsvæðinu 8. og9. apríl. Leitað
var til kvenfélaga og nemendafélaga
nokkurra framhaldsskóla til að að-
stoða við söluna. Auk þessa buðust
nokkrir einstaklingar utan þessa svæð-
is til að selja merki.
Það er skemmst frá því að segja að
söfnunin gekk frábærlega vel. Sölu-
mennirnir gengu sig upp að hnjám,
norpuðu á götuhornum, fóru á vinnu-
og samkomustaði og undirtektirnar
voru góðar. Rúmlega 1,7 milljónir
söfnuðust og er það ekki svo lítið, sér-
staklega þegar haft er í huga að hvert
merki kostaði aðeins 50 kr. Þar við
bætist að kostnaður við þessa söfnun
var hverfandi lítill, allt starfvið undir-
búning og sölu var unnið í sjálfboða-
vinnu og tóku um 700 manns þátt í því
starfi. Sigrid Valtingojer, sem teiknaði
merkið og veggspjaldið, gaf sína
vinnu, ekki þurfti að greiða nema lít-
inn hluta af prentunarkostnaðinum og
þeir sem útbjuggu blaða- og sjón-
varpsauglýsingar gerðu það í sjálf-
boðavinnu.
Samtök um kvennaathvarf eiga því
tæpar 3 milljónir í húsakaupasjóði,
hafa augastað á ágætu húsnæði og
vonandi eru öll þessi mál komin í höfn
þegar þetta blað kemur út. Samtökin
geta því verið ánægð með afraksturinn
af starfinu fyrsta árið og þakklát fyrir
þann stuðning sem þau hafa fengið, en
í rauninni er þetta aðeins byrjunin.
Enn eiga fjölmargar konur og börn um
sárt að binda vegna þess ofbeldis sem
þau búa við á heimilum sínum. Vandi
þeirra er ekki leystur með því einu að
kaupa hús. Fleira þarf að koma til, nú
skiptir mestu að fólk — og einkum þó
konur — haldi augunum opnum, ræði
þessi mál og leggi sitt af mörkum til að
aðstoða þessar konur og aflétta þeirri
kúgun sem viðgengst á mörgum ís-
lenskum heimilum.
ELísabet Gunnarsdóllir
I vestfirska I
FHETTABLASIS
er landsmálablaó
sem kemur út
annan hvern miövikudag
I gefur innsýn í lífsbaráttu
fólks, sem býr strjált
í harðbýlum landshluta
er ekki ríkisstyrkt biað %
er ekki tengt neinum
stjórnmálaflokki og
I á gengi sitt allt
undir vinsældum
sínum meðal lesenda
svo og því áliti, sem það
nýtur hjá auglýsendum
er sent í pósti til
áskrifenda um land allt
Auglýsinga og
áskriftarsími blaðsins
er 94-3223 og utan
almenns vinnutíma
94-3100
I vestfirska I
FHETTABLASID
PÓSTHÓLF 33 400 ÍSAFIRÐl