19. júní


19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 58

19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 58
voru nær tvítugu, átta ára stúlka og svo tvö lítil börn - tveggja og þriggja ára. Eg hafði komið á heimili hennar tveimur dögum áður en hún hvarf og ég gat ekki fundið að hún væri neitt öðru vísi en hún átti að sér. Litlu börn- in virtust ákaflega hávær og mikil fyrir sér en hún var ekkert nema stimamýkt- in við þau. Það var blindbylur nótdna sem hún hvarf svo að það var ekkert hægt að átta sig á því hvert hún hefði farið. Mér var falið að reyna að komast á spor sem að gagni mætti koma. Ég fór því á heimili hennar. Þar var allt á rúi og stúi; allir slegnir ótta sem var þó ekki sama eðlis og sorgin — hér var þó von- arneisti. Það haíði enginn sagt að hún væri dáin, það var ekki víst. Ég hafði hugsað mér að tala við hvern í sínu lagi en byrjaði þó að spyrja það þar sem allir voru samankomnir. — I hverju hefur hún verið þegar hún fór? Enginn vissi það. — Hvers ersaknaðafíötum hennar? Enginn vissi það. Ég fór framá að það væri athugað. Tvítuga dóttirin fór strax að leita. Hér var kápan hennar og hér voru þeir kjólar sem hún átti. Þetta tók ekki langa stund. Mikið haíði þessi starf- sama kona átt lítið af fötum. Það var varla hægt að hugsa sér fátæklegri reit- ur og þó var þetta talið fólk í góðum efnum. Ég kallaði eiginmanninn á ein- tal. Hann var mað þrjóskusvip, og ég sá að á honum myndi lítið að græða. — Var ósamkomulag á milli ykkar hjóna? — Nei, ég ansa ekki rifrildi í konum og ég vandi mína snemma af allri heimtufrekju og óþarfa nöldri. — Fóruð þið oft út saman? - Nú, hún þurfti að vera heima og gæta barnanna enda hugsa ég að hana hafi aldrei langað í alvöru að heiman. Ég lofaði henni að fara til jarðarfara — þegar okkur bar að fara. — Hvað heldur þú um hvarfhennar, hvenær varðstu var við að hún væri farin úr rúminu? — Ég vissi það bara í morgun þegar 58 krakkarnir voru að kalla á hana. Ég sef í öðru herbergi. Það er enginn svefn- friður fyrir vinnandi mann nálægt þessum smákrökkum. — Getur hugsast að hún hafi strokið með öðrum manni? Það kom bæði undrunar og hæðnis- svipur á andlitið á honum við þessa spurningu og hann svaraði: — Hún var að verða gömul og ljót og ég get ekki ímyndað mér að nokkur geti hafa verið skotinn í henni. Ég sá að tilgangslaust mundi vera að þvæla við þennan mann. Ég bað hann að senda fullorðnu dóttur sína inn til mín. Þetta var falleg stúlka, kurteis, stillt og greindarleg. Nú virtist hún bæði ráðvillt og umkomuleysisleg. — Varst þú dugleg að hjálpa móður þinni? spurði ég. — Nei, ég hjálpaði henni aldrei, ég hefi frá því ég fermdist verið í skóla eða vinnu hvern virkan dag og ég átti frí á sunnudögum eins og aðrir á heimilinu. Mamma bað mig heldur ekki um að hjálpa sér. Ég tók eldri bróðurinn tali og þar var ekkert að hafa sem kom að nokkru haldi við rannsókn málsins. Ég gafst því up|) í bili og fór. En þá kom óvænt hjálp. Hálfsystir mín, sem átti heiman- gengt af sínu heimili, tók að sér þetta móðurlausa heimili. Hún hitti mig nokkrum dögum seinna og fór þá að segja mér hvað átta ára hnátan segði sér. Ég bað hana að láta þá litlu tala sem mest af því sem byggi í huga henn- ar ef það mætti verða til að gefa ein- hverja vísbendingu um þetta manns- hvarf. Að viku liðinni heimsótti systir mín mig og sagði mér þá frá því sem hún halði orðið áskynja. Litla stúlkan leit til smábarnanna en hélt sig þó eins mikið og hún gat í návist frænku sinnar og talaði mikið um mömmu sína. — Heldur þú að mamma sé dáin? Við mamma vorum vinkonur. Stóru krakkarnir voru hálfleiðinleg og litlu krakkarnir voru svo lítil og hræðilega óþæg. En samt fannst mér ljótt af stóru- systur að skamma alltaf mömmu ef þau skemmdu eitthvað inni hjá okkur stelpunum. Aumingja mamma gerði það sem hún gat til að passa þau. Eins fannst mér stóri bróðir ekki eiga að skamma mömmu þegar krakkarnir höfðu haft svo hátt á morgnana að hann hafði vaknað við það og pabbi átti heldur ekki að skamma hana þo hann gæti ekki sofnað að deginum vegna þess að við höföum svo hátt. Eg vissi það vel að mamma fór stundum að gráta. Svo var eitt sem mér fannst svo leið- inlegt. Mamma fékk aldrei að skemmta sér og ég vissi vel að mömmu langaði stundum til að fara að heiman en hún gat aldrei farið neitt, það voru alltaf pabbi og stóru krakkarnir sem þurftu að fara. Mamma var svo dugleg að sauma fallegt uppá okkur krakkana en svo átti hún ekkert fallegt sjálf. Einu sinni heyrði ég hana segja við pabba að sig langaði til að eignast nýja kápu. Þá hló pabbi og sagði: ,,Ef þú getur ein- hvers staðar fundið þér peninga þá er ekkert því til fyrirstöðu að þú fáir þér nýja kápu.“ Mamma hafði svo mikinn áhuga fyrir að mála myndir en pabbi mátti ekki heyra það nefnt og ef hún málaði eitthvað þá faldi hún það vandlega áður en pabbi kom heim. Ég mátti ein eiga þetta leyndarmál með henni. Og veistu það að einu sinni sagði mamma við pabba: ,,Mig langar a stúdentamótið 17. júní í sumar.“ Pabbi ansaði ekki strax en svo fór hann að reikna út hvað það myndi kosta og eftir það heyrði ég það aldrei nefnt. En ég heyrði mömmu gráta þegar hún var komin í rúmið. Hún svaf' með litlu krakkana í sérherbergi til að passa að annað fólk fengi svefnfrið fyrir þeim. Ég held að mamma hafi aldrei fengið að sofa nóg. Veturinn leið og ekkert skeði - en þegar snjóa tók að leysa fannst hún. Það var mjög undarleg aðkoma. Hún lá í skafli í djúpri lægð, ekki mjög langt frá heimili sínu og hún var í náttkjóln- um einum fata en hafði kodda undir höfðinu og sæng ofan á sér. Hinum fannst þetta furðuleg aðkoma en mer rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Framhald á bls. 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.