19. júní


19. júní - 19.06.1983, Page 52

19. júní - 19.06.1983, Page 52
Kvennabaráíta fels í því að skjóta á spátnikum Viðtal: Guðrún Egilsson „Nýlega var haldinn fundur hérna hjá KRFI til að fagna því, hversu mjög konum hefur ljölgað á Alþingi. Mér finnst ævinlega áhugavert að draga fram andstæður, því að það gefur gleggri sýn á atburði og aðstæður, og þess vegna varpaði ég fram spumingu á fundinum. Eg spurði, hvort einhvers staðar væri tilsvarandi félag karla, sem sæi ástæðu til að harma fækkun þeirra á þingi. Fátt var um svör, enda slíkt félag tæpast við lýði, en þetta sýnir þó glöggt í hvaða farvegi hin áratuga- gamla kvennabarátta er. Ennþá er hún rekin úr einni átt.“ t*að er Björg Einarsdóttir, sem hefur orðið. Þessi ötuli liðsmaður 19.júníhef- ur fallist á að breyta sem snöggvast um hlutverk hér í blaðinu og sitja fyrir svörum í stað þess að skrifa sjálf. Það er þó ekki eingöngu vegna þess að hún hafi gaman af því að leika sér með andstæður, heldur fór ritstjórn blaðs- ins þess á lcit við hana að hún fjallaði í viðtali um stöðu jafnréttismála, eins og hún blasir við henni núna. í þrótt- miklu starfi sínu að þessum málum hefur Björg öðlast reynslu og yfirsýn, og hefur því miklu að miðla. Hun hóf bein afskipti af jafnréttis- málum á vettvangi Rauðsokkahreyf- ingarinnar og var í miðstöð hennar, 52 meðan starfið þar stóð með sem mest- um blóma. Síðan færði liún sig um set, gerðist virkur félagi í Kvenréttindafé- lagi íslands, og var um skeið varafor- maður þess. Hún haíði mikinn veg og vanda af skipulagningu Kvennafrí- dagsins 1975, og KRFÍ hefur notið starfskrafta hennar á ótal sviðum, sem of langt yrði upp að telja. Því fer samt fjarri að þetta samtal okkar Bjargar Einarsdóttur eigi að vera eins konar eftirmæli um þátt hennar í jafnréttisbaráttunni, enda verður lítið fjallað um sögulegar stað- reyndir. Tilgangurinn er einkum sá að skoða í hnotskurn stöðu jafnréttismála á því herrans ári 1983 og hvaða leiðir séu helst færar að markinu. Og þá er eðlilegt að spurt sé, hvert það mark hafi verið, sem frumkvöðlar nýbýlgju um jafnan rétt karla og kvenna hafi haft í kringum 1970. ,,Mér finnst það kristallast í orðun- um: — Konur eru líka menn. Á þessum árum var karlasamfélagið ríkjandi hér. Konur voru ívaf, en ekki uppistaða. Samkvæmt lögum höfðu karlar og konur sama rétt, en misgengið milli lagabókstafsins og almennra viðhorfa var auðfundið. En konur urðu sér stöð- ugt meðvitaðri um styrk sinn og viljinn til fullrar þátttöku á öllum sviðum þjóðfélagsins varð sífellt meiri. Af innri þörf og ytri nauðsyn kom fram krafa kvenna um fullt jafnrétti og þessa kröfu báru þær fram af persónulegu stolti. Hins vegar er ekki gott að segja hvers vegna krafan kom á nákvæmlega þessum tíma. Á sama hátt mætti spyrja, hvers vegna stúdentaóeirðirn- ar miklu um alla Norðurálfu urðu um svipað leyti. Við hvorugu er til algilt svar. Hluti af skýringunni er, að með stóraukinni almenningsfræðslu hafði smám saman hlaðist upp þekkingar- forði, sem nýttist ekki. Hleðslan var meiri en svo, að hún fengi framrás í almennri þróun þjóðfélaganna. Ogsvo sprakk hreinlega fyrir. Því er oft haldið fram, að slíkar sprengingar geri meira ógagn en gagn. Útkoman er auðvitað háð mælikvarða þess sem metur hverju sinni. En venju- lega er ekki nema um tvær leiðir að velja til að láta að sér kveða. Önnur er sú, að stækka blettinn sinni jafnt og þétt og koma þannig í ljós. Hin felst í því að brjótast um og hafa hátt og ná þannig sjáöldrum og hlustum sam- tímans. Um það má deila, hvor leiðin er vænlegri, en stundum er ekki svig- rúm til að velja á milli þeirra. Nýbylgja kvennahreyfingarinnar braust fram um 1970 nokkurn veginn sjálfkrafa.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.