19. júní - 19.06.1983, Blaðsíða 68
Elín Pálsdóttir Flygenring,
nýr framkvæmdastjóri Jafn-
réttisráðs, tekin tali
Viðtal:
Ásta
Benediktsdóttir.
Hinn 1. júlí í fyrra tók nýr fram-
kvæmdastjóri við störfum hjá Jafn-
réttisráði en þá lét Bergþóra Sig-
mundsdóttir af því embætti. Hinn
nýi framkvæmdastjóri heitir Elín
Pálsdóttir Flygenring. Hún er
Reykvíkingur, fædd 12. maí 1957,
og lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Tjöm 1976. Þá settist
hún í lagadeild Háskóla Islands og
varð lögfræðingur fyrir réttu ári
síðan. Elín fékk þegar á námsárum
áhuga á jafnréttismálum og skrif-
aði lokaprófsritgerð sína um Jafn-
réttislöggjöfina.
68
19. júní lék hugur á að kynna hinn
nýja framkvæmdastjóra fyrir lesend-
um blaðsins og forvitnast jafnframt
um hvernig henni félli starfinn að svo
komnu. Elín lét að ýmsu leyti vel yfir
sjálfu starfinu, en sagði að sér hefði
lærst margt á þessu eina ári, svo sem
það að hludrnir ganga mjög hægt fyrir
sig hjá stofnun sem jafnréttisráði. Það
væri nauðsynlegt að rækta með sér
vænan skammt afþolinmæði, cfmaður
ætlaði að endast í starfinu. Elín var
spurð hvernig starfi Jafnréttisráðs væri
háttað.
,,Ráðið starfar í samræmi við Jafn-
réttislögin frá 1976 og segja má að
starfsemin skiptist í tvennt. Skrifstofa
ráðsins sér um daglegan rekstur, ráð-
gjöfog leysir úr einfoldum ágreinings-
efnum varðandi brot á jafnréttislögun-
um. Hinsvegar er svo starf Jafnréttis-
ráðs sjálfs en það felst aðallega í stefnu-
mótun og umsjón með úrlausn stærri
ágrei n i ngsefna. “
— Hvað finnst þér hafa áunnist
af starfi Jafnréttisráðs á undan-
fömum ámm?
,,Eg tel það mikilvægast að ráðið er
til sem mannréttindastofnun sem aðil-
ar geta leitað til. Það er grundvallar-
atriði að allir hafi sama rétt, ekki ein-
göngu samkvæmt lögum, heldur og í
raunveruleikanum. Þótt engin lög í
dag kveði á um mismunandi rétt kynj-
anna, er misjöfn aðstaða og réttur
kynjanna staðreynd, sem þýðir ekki að
horfa framhjá. Á hinn bóginn get ég
ekki annað en látið vonbrigði mín í ljós
með ávinning af störfum Jafnréttis-
ráðs. Þrátt fyrir áhuga ráðsmanna og
starfsfólks, er mjög lítið hægt að gera
þegar ráðinu er sköpuð sú aðstaða sem