19. júní


19. júní - 19.06.1983, Síða 69

19. júní - 19.06.1983, Síða 69
það býr við. Það hefur vcrið fjársvelt frá upphafi, sú fjárhæð sem því er ætl- að á fjárlögum dugir ekki fyrir rekstri skrifstofunnar og þá enn síður fyrir framkvæmdum. Að sama skapi er Jafnréttisráð mjög undirmannað af starfsfólki, og lengst af starfaði fram- kvæmdastjórinn einn að öllum ntál- um. Miðað við þau verkefni sem Jafn- réttisráði er ætlað samkvæmt lögum, er vonlaust að sinna þeim þegar hvorki fólk né fé er til staðar. Nú eru tvær stöðuheimildir hjá Jafnréttisráði, ann- arri þeirra er skipt milli fulltrúa í rann- sóknum annars vegar og fulltrúa sem sinnir ritara- og öðrum skrifstofustörf- um hins vegar. Þrátt fyrir þessa harmatölu má ekki skilja orð mín svo að ég telji ávinning af starfi Jafnréttis- ráðs engan. En lítil umræða og aftur- kippur í jafnréttismálum hefur gert staríinu crfiðara fyrir en annars heíði verið.“ — Hvemig hefur gengið að fram- fylgja ákvæði Iaganna varðandi starfsauglýsingar? „Þegar jafnréttislögin voru sett var greinilegt að ákvæðið um bann við kyngreindum auglýsingum olli miklu fjaðrafoki. Samt sem áður varð augljós árangur af setningu ákvæðisins í fyrstu. Þegar fram liðu stundir var aft- ur farið að auglýsa kyngreint í störf. Auglýsingastjórar hafa þó tekið því vel þegar Jafnréttisráð hefur beðið um að blöðin tækju ekki við kyngreindum auglýsingum. Hins vegar er ljóst að samkeppnin er mikil í auglýsingastarf- inu og ef eitt dagblað tekur við kyn- greindum auglýsingum, geta hin ekki, viðskiptanna vegna, neitað að taka við slíkum auglýsingum. Eg tel að tregða við að koma þessu á sé einkum og sér í lagi vegna þess að fólk skilur ekki ástæðuna fyrir setningu ákvæðisins, sem er sú að verið er að reyna að breyta rótgrónum hugmyndum um skiptingu í karla- og kvennastörf, enda hæfni til þess að gegna flestum störfum ein- staklingsbundin, en ekki kynbundin.“ — Hver eru helstu verkefni Jafn- réttisráðs í dag? ,,Eins og ég nefndi er lítið fé til fram- kvæmda hjá Jafnréttisráði. Við reyn- um samt, og í raun og veru er ótrúlega margt að gerast. I fyrsta lagi er Jafn- réttisráð að fara að gefa út bækling fyrir verðandi foreldra. í starfi hjá Jafnréttisráði hefur Esther Guð- mundsdóttir, þjóðfélagsfræðingur og formaður KRFI verið undanfarið að vinna að rannsókn um konur í norræn- um stjórnmálum. Verkefni þetta er til komið frá norrænu jafnréttisnefndinni og er ætlunin að rannsóknin korni að einhverju leyti út í íslenskri útgáfu á þessu ári. Jafnréttisráð er einnig að hefja útgáfu fréttabréfs á næstunni, en stefnt er að því að leggja áherslu á að auka upplýsingastarfsemi umjafnrétt- isráð með haustinu, og kynna starf- semi ráðsins í auknum mæli út á við. Þetta takmarkast að sjálfsögðu allt af fjármagni. Einnig eru ráðstefnur á döf- inni og ýmislegt fleira.“ — Er fyrirhuguð einhver breyt- ing á jafnréttislöggjöfinni? „Svavar Gestsson, félagsmálaráð- herra, setti á stofn neí'nd til að endur- skoða jafnréttislögin á árinu 1981. Sú nefnd hefur nú skilað af sér tillögu til nýrra jafnréttislaga. Er í því frumvarpi kveðið á um margar breytingar á nú- verandi jafnréttislöggjöf með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðið hefur af þeim. Tel ég þær breytingar sem þar koma fram ekki einungis góðar, heldur og bráðnauðsynlegar. Vil ég þá helst nefna þá meginbreytingu að tilgangur framvarpsins er ekki einungis að koma á jafnrétti, heldur og jafnri stöðu kynj- anna, en það er munur á þessum tveimur hugtökum. Einn megintilgangur frumvarpsins er að bæta stöðu kvenna, því að það er enginn ágreiningur urn, að það eru konur sem eru verr settar í þjóðfélag- inu. Onnur ákvæði eru yflrleitt ítar- legri en þau sem nú gilda. Nýmæli er að talað er um aðgerðir atvinnurek- anda til að jafna stöðu kynjanna á sín- um vinnustað. Þá er talað um breyt- ingu á skipan Jafnréttisráðs, og um lögbundnar jafnréttisnefndir í kaup- túnum og -stöðum. Viðurlög við brot- um eru ákveðnari en áður, og ríkis- stjórnin skal gera framkvæmdaáætlun um aðgerðir í jafnréttismálum til fimm ára, svo eitthvað sé nefnt afnýmælun- um í þessu frumvarpi, sem vonandi verður að lögum.“

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.