19. júní - 19.06.1983, Síða 77
Félagsstarf KRFI
Á síðastliðnu ári átti KRFÍ 75 ára afmæli
og hélt félagið upp á það með pompi og
prakt eins og sjá má í 19. júní frá því í
fyrra. Þrátt fyrir háan aldurogbreytta tíma
skortir Kvenréttindafélagið ekki verkefni,
öllu heldur vantar fleira fólk til starfa.
Margir nýir fclagsmenn hafa bæst í hópinn
á undanförnum árum en ávallt er rúm fyrir
neiri,
Á aðalfundi KRFÍ, sem haldinn var 21.
mars sl. flutti formaður félagsins, Esther
Guðmundsdóttir skýrslu stjórnar og gerði
þar grein fyrir starfsemi félagsins frá síðasta
aðalfundi. Á aðalfundinum var Lára Sigur-
björnsdóttir kjörin heiðursfélagi KRl'f en
hún á að baki langt og gott starf í þágu
félagsins.
Af skýrslu formanns má ráða, að félagið
hefur haft mörg járn í eldinum á síðasta
starfsári. Vorið 1982 fóru fram kosningar til
sveitarstjórna hér á landi og af því tilefni
vann Kvenréttindafélagið að því að hafa
áhrif á að konum íjölgaði í sveitarstjórnum,
m.a. með fundarhaldi, kosningagetraun og
límmiðum. Er nánar frá þessu sagt í sam-
svarandi pistli um félagsblaðið í 19. júní
> fyrra. Árangur kosninganna var eins og
kunnugt er sá, að hlutur kvenna í sveitar-
stjórnum tvöfaldaðist.
Félagsfundir
Utgáfa og dreifing ársritsins er jafnan
lokaverkefni félagsins fyrir sumarhlé. Að
hausti er þráðurinn tekinn upp að nýju og
að þessu sinni hófst almennt starf með fé-
lagsfundi 14. októberað Hallveigarstöðum.
Þetta var rabbfundur um Alþjóðasamtök
kvenréttindafélaga (IAW), en KRFÍ á
aðild að þeim samtökum. Á fundinum
sagði formaður frá lör sinni á þing samtak-
anna sem haldið var í Finnlandi í ágúst s.l.
Á þinginu var m.a. rætt um vinnumarkað-
*nn auk þess sem töluverður tími fór í um-
’æöur um samtökin sjálf. Var formaður
K.RFÍ kosinn í stjórn samtakannaen forseti
þeirra er frú Olive Bloomer.
Bryddað hefur verið upp á þeirri nýjung í
starli lélagsins að halda hádegislimdi í stað
hefðbundinna félagsfunda að kvöldi. Er
teynslan af þeim góð og er sýnt að þeir laða
<tö fleiri en almennir félagsfundir. Hafa tjór-
•r slíkir fundir verið haldnir í vetur. Sá fyrsti
var lialdinn 18. nóvember í veitingahúsinu
Lækjarbrekku, þar sem Þorbjörn Brodda-
son, dósent kom og skýrði frá niðurstöðum
Jafnréttiskönnunar Reykjavákurborgar.
Kvennaguðfræði var umræðuefni fundar
þ. 17. febrúar einnig í Lækjarbrekkru og
höfðu forsögu þar séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir og aðrar konur sem ýmist eru við
guðfræðinám eða hafa lokið því,
Seint í apríl var haldinn fundur með
Helgu Stene, sagnfræðingi frá Noregi.
Fjórði fundurinn af þessu tagi og sá fjöl-
sóttasti var haldinn 11. maí s.l. að Hótel
Sögu. Tilefnið var að fagna því að í kosn-
ingunum til Alþingis nú í apríl hlutu níu
konur kosningu eða þrefalt fleiri en nokkru
sinni áður. Konurnar níu sátu fundinn og
spjölluðu við fundarmenn m.a. um það
hvort þessi staða kvenna á Alþingi myndi
breyta einhverju innávið sem útávið. Var
það álit flestra að erfitt væri um slíkt að spá
en tíminn einn gæti leitt það í ljós.
Ráðstefnur og aðrir fundir
Á milli aðalfunda voru haldnar tvær ráð-
stefnur á vegum félagsins. Sú fýrri ,,Konur
og fjölmiðlar" var haldin 17. apríl 1982 að
Hótel Esju í samvinnu við Blaðamannafé-
lag íslands og Samband ísl. auglýsinga-
stofa. Um ráðstefnuna vísast í 19. júní í
fyrra en þar var fjallað um liana.
„Að koma aftur á vinnumarkaðinn" er
yfirskriftin á síðari ráðstefnunni, sem fram
fór að Kjarvalsstöðum 29. janúar á þessu
ári. Var hér um framhald að ræða á þeirri
umræðu sem hófst um þetta efni í 19. júní
1982. Á ráðstefnunni voru flutt 12 fram-
söguerindi þar sem málið var reifað frá
ýmsum sjónarhornum og fjallað var um
leiðir til úrbóta. Þátttakendur í ráðstefn-
unni voru rösklega 100 talsins, þarafmargt
utanfélagsfólk, og sýnir það að hér er um
brýnt hagsmunamál að ræða. Voru ráð-
stefnunni gerð allgóð skil í fjölmiðlum.
Fundargerð hennar er í undirbúningi og
verður síðar send þátttakendum auk þess
sem hægt verður að fá hana gegn vægu
gjaldi á skrifstofu félagsins. Um undirbún-
ing og framkvæmd ráðstefnunnar sáu þær
Björg Einarsdóttir, Xlagdalena Schram og
Þórunn Gestsdóttir.
.Aimælisvaka félagsins var haldin að
Kjarvalsstöðum 30. janúar. Kynntar voru
bækur um og/eða eftir konur, ungar tónlist-
arkonur komu fram og tveir fatahönnuðir
voru kynntir. Afmælisvakan var hin glæsi-
legasta og sáu þær María Ásgeirsdóttir,
Ásthildur Ketilsdóttir og Júlína Signý
Gunnarsdóttir um undirbúning.
8. mars héldu Kvenfélagasamband ís-
lands, Kvenréttindafélag íslands og
Bandalag kvenna í Reykjavík sameiginleg-
an fund um friðar- og afvopnunarmál. Til-
drög þessa fundar eru þau að á s.l. sumri
hittust nokkrar konur og ræddu um að
stofna friðarhreyfingu íslenskra kvenna.
Þessar konur kölluðu síðan fleiri konur til
liðs við sig og þar á meðal formenn félag-
anna þriggja. Konurnar hafa starfað í sínu
eigin nafni en ekki sem fulltrúar félaga eða
félagasamtaka. Þessi hópur, sem hefur ver-
ið kallaður friðarhópur kvenna sendi frá sér
friðarávarp til allra kvenfélaga í landinu og
hvatti þau til að kynna ávarpið innan síns
félags og óskað var eftir því að félögin létu í
ljós álit sitt á því hvort stofna ætti friðar-
hreyfingu íslenskra kvenna.
Félögin þrjú, þ.e. KRFÍ, KÍ og BKR
tóku sig því saman og héldu fund þar sem
ávarp og starf friðarhóps kvenna var kynnt.
Framsögumcnn á fundinum voru Elín
Pálmadóttir, blaðamaður og Kristín Ást-
geirsdóttir, sagnfræðingur.
Fundinn sóttu um 50 manns.
í lok fundarins var eftirfarandi ályktun
samþykkt einróma:
„Fundur haldinn á vegum Kvenfélaga-
sambands íslands, Bandalags kvenna í
Reykjavík og Kvenréttindafélags íslands
að Hallveigarstöðum 8. mars 1983, tekur
heils hugar undir ávarp friðarhóps
kvenna og leggur til að hafinn verði hið
allra fyrsta undirbúningur að stofnun frið-
arsamtaka íslenskra kvenna.“
Starfsemi útávid
Snemma á síðasta ári bárust félaginu til-
mæli um að það tilnefndi konur í samstarfs-
hóp með öðrum félagasamtökum til að at-
huga um stofnun samtaka til að koma á fót
kvennaathvarfi í Reykjavík.
Stjórnin tilnefndi þær Ásdísi Rafnar og
V’alborgu Bentsdóttur 2. júní 1982. Voru
svo stofnuð Samtök unt kvennaathvarf. Á
annað hundrað manns gerðust stofnfélag-
ar.
KRI’Í gerðist styrktaraðili á stofnfundi
og allmargir félagar KRFÍ gengu þá í sam-
tökin.
Kvennaathvarf var svo opnað í Reykja-
vík í byrjun des. 1982. Fljótt kom í Ijós að
full þörf var á starfsemi þessi. Þær Ásdís og
Valborg hafa verið virkir félagar í samtök-
unum frá byrjun.
Formaður KRFÍ á sæti í ráðgjafarnefnd
77