Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1920, Side 3

Sameiningin - 01.09.1920, Side 3
aminmngitt. Mánaðarrit til studnings kirkju og kristindómi íslendivr gejið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheinn XXXV. árg. WINNIPEG, ÁGÚST og SEPTBMBEK Nr. 8 og 9 Gleymið ekki starfinu. Það ríður á því, að allir hafi liugfast á milli kirkju- þinga að koma því í framkvæmd, sem þar er ákveðið. Svo oft stranda góð málefni á því, að ekkert er gert. Kirkjuþingsmennirnir ætti manna bezt að muna eft- ir málunum og vera ötulir í að veita þeim stuðning. Til þeirra hafa kirkjuþings tíðindin verið send til útsölu. Þeir ætti að selja þau undir eins og koma andvirðinu um hæl til ráðsmanns útgáfufyrirtækjanna, hr. Finns Jóns- sonar. Eg vona, að allir verði búnir að lúka því starfi áður en orð þessi ná til þeirra. Ef ekki, að þeir bregði þá undir eins við og sendi andvirðið. Enginn má gleyma skylldu sinni í þössu eifni. Það ríður á því, að Kirkju- þings tíðindin sé keypt og lesin. Sama gildir um önnur störf. Það þarf að útvega Sameiningunni kaupendur, selja rit og bækur kirkjufé- lagsins, lilynna að stofnunum þess og á margan liátt að greiða fyrir málum. Að þeir, sem eitthvert sérstakt hlutverk hafa á hendi, sinni því vel, er afar nauÖsynlegt, en ekki síður er þör'f á því, að ótal margir 'styðji starfið sem sjálfboðar, með ýmsu móti. Prestunum og söfnuð- unum er kunnugt um málin, sem eru á dagskrá og styÖja þarf, og ótilkvaddir ætti þeir að finna livöt hjá sér til að láta ekkert þeirra verða út undan. Allir ætti að muna, að okkar kirkjulegi félagsskapur þarf á þeirra liðsinni að halda. Iv. K. 0.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.