Sameiningin - 01.09.1920, Blaðsíða 63
285
1. Hver er frelsarinn? Hann er “sannur GuS, af föðurn-
um fæddur frá eilífð”, kominn í heiminn til þess aÖ frelsa okk-
ur frá syndunum og gjöra okkur að Guðs Ibörnum. 2. Hvernig
er hann í heiminn kominn? “Hann tók á sig þjóns mynd og
varð mönnum líkur”. Fæddist af mannlegri móður. 3. Hvað
hét móðir hans? María, frá Nazaret í Galíleu. 4. Átti hann
mannlegan föður? Nei, en Jósef, er gekk að eiga Maríu, var
fósturfaðir 'hans. 5. Hví var hann látinn heita Jesús? Nafnið
þýðir “frelsari”. Hann kom í heiminn til þess að frelsa menn-
ina. 6. Hvað þýðir nafnið Kristur? pað þýðir “hinn smurði”,
og átti að tákna konungstign hans, af því Jesús er konungur
allra þeirra, sem trúa á hann. petta nafn (á hebresku
Messías) var honum gefið í spádómum gamla testamentisins.
7. Hvar fæddist hann? í bænum Betlehem í Júdeu. 8. Hverj-
ir komu þangað til að sjá hann? Vitrir menn úr Austurlönd-
um. Guð hafði látið þá sjá nýja stjörnu á himninum, og birt
þeim það, að frelsarinn væri fæddur. 9. Hver réð þá yfir
Júdeu? Heródes konungur, eða réttara sagt jarl Ágústusar
keisara í Róm. 10. Hvernig varð honum við, þegar vitringarn-
ir boðuðu fæðing frelsarans? Hann hélt, að hið nýfædda kon-
ungsbarn myndi steypa sér eða ætt sinni frá völdum, og ásetti
sér að deyða ungbarn þetta. 11. Hvaða slægðarbragði ætlaði
hann að beita? Hann bað vitringana að koma til sín og segja
sér, hvar hann gæti fundið barnið. 12. Hvernig frelsaði Guð
barnið heilaga úr þessum lífsháska? Hann aðvaraði bæði vitr-
ingana og Jósef í draumi, svo að þeir fóru heim til siín án þess
að sjá Heródes aftur; en Jósef flýði með Maríu og ungbarnið
til Egyptalands. 13. Hvað gjörði Heródes þá? Hann lét
deyða öll ibörn innan við tveggja ára aldur, í Betlehem og
grendinni. 14. Hvað lærum við af lexíunni? a. Við lærum um
miskunn Guðs, sem elskaði iheiminn svo mikið, “að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir, ekki glat-
ist, heldur hafi eilíft líf.” b. Við lærum um trúfesti Guðs.
Öll hans fyrirheit standa stöðug og óhagganleg að eilífu. Sjö
hundruð árum áður, hafði Guð látið spámann sinn segja það
fyrir, a frelsarinn skyldi fæðast í Betlehem, og nú rættist það.
c. Við lærum um handleiðslu Guðs. Hvernig, hann hjálpar
þeim, sem í einlægni og auðmýkt leita sannleikans -— eins og
vitringarnir; hvernig hann lætur slægð og grimd vondra manna
— eins og Heródesar — bíða ósigur, þegar þeir setja sig upp
á móti vilja hans; hvernig hann vakir yfir börnum sínum og
verndar þau, eins og hann verndaði barnið heilaga frá háska
þessum.
II. LEXÍA — 10. OKTÓBER
Skírn Jesú og freisting—Matt. 3, 13—4, 11.
Minnistexti: pessi er minn elskaði sonur, sem eg hefi vel
þóknun á—Matt. 3, 17.