Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 18

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 18
240 jjeim syndum eins og hinum. Aðrir bættu svo fleiri sökum við, og urðu stefnurnar tvær í þessum efnum. Guðfræð- ingar þeir, sem strangari voru, fylgdu Lúter, hinir fylgdu Melankton. Þó voru þeir miklu fleiri, sem aðhyltust kenning Lúters, þar til skynsemskan kom til sögunnar á átjándu öld. Hún tók auðvitað tveim höndum við stefnu Melanktons-sinna, og losaði enn meir á böndunum; bætti allskonar brotum við skilnaðarsaka-listann, eftir eigin geðþótta. 1 lúteiiksum þjóðkirkjulöndum hefir þetta bessaleyfi skynsemsikunnar haldist við frám á þennan dag. Kirkjan hvarf þó aftur að sínum npphaflega strang- leik hér í Yesturheimi, þegar hún fór að eiga með sig sjálf. Hún fylgir hér yfirleitt Lúter fremur en Melank- ton í þessu máli, nema hvað sumar deildirnar eru jafnvel enn strangari en Lúter var, og kalla snga synd réttmæta ástæðu fyrir skilnaði, nema óskírlífið eitt. Þó er strang- leikinn miklu minni hjá öðrum. Um kirkjufélagið íslenzka er það að segja, að hjá oss hefir aldrei verið tekin ákveðin stefna í máli þessu. 0g þar sem vér höfum með lögum vorum lýst því yfir, að vér stæðum á sama trúar-grundvelli eins og kirkjan á fs- landi “í játningarritum sínum”, þá lægi sjálfsagt sú á- lyktun beinast við, að með tilliti til hjúskaparhelginnar værum vér enn háðir kenningum og venjum móðurkirkj- unnar. En hún er talsvert “rúmgóð” í þessum sökum, svo sem kunnugt er. Þó væri rangt að kenna eintómri vantrú eða skyn- semsiku um afstöðu móðurkirkju vorrar við mál þetta. Ihaldssamir kirkjuleiðtogar íslenzkir, þeir er minsta til- hneigingu hafa haft til að kenna eftir eigin geðþótta eða hártoga kenningar Guðs orðs, hafa þó víst aldrei sýnt af sér vægðarlausa dómhörku, þegar um hjónaskilnað var að ræða. Nokkuð er það, að Helgi lektor Hálfdánarson, sem enginn flysjungur hefir verið talinn, eða skynsemis- trúarmaður, fer mildum orðum og gætnum um sakir þær í fyrirlestrum sínum um kristilegci siðfræði. Ummælí hans eru á þessa leið: ‘ ‘ Kristur telur hórdóm gilda skiln- aðarástæðu, og jafnvel hina einu gildu ástæðu til skilnað- ar. En nú mætti spyrja, hvort það sé þá einungis hór-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.