Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 30

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 30
252 i kring um hann hefir dáiS, sem hefir dafnaö, þrátt fyrir þaö, að aldrei hefir um hann verið hirt. Ekki er furða þótt kornið, sem um margar aldir hefir verið hirt og alt gjört til aS hlúa aS því, verSi þessum vogesti aS bráS, þegar hann kemst í námunda viS þaS; illgresið er grimt og ægilegt eins og hrímþursi, og táknar hatriS, sem ekkert vill annaS en fjörtjón alls hins góSa. Sjórinn úir og grúir af skepnum, sem lifa á því aS gleypa í sig aSrar smærri skepnur, og svo víStækt og stórfelt er þetta, aS manni dettur helzt í hug, aS margar hinar smærri skepnur lifi ekki til annars en verSa öSrum aS bráS. Bjarni Tihorarensen lýsir hinu grimma stríði í sjónum á svipaSan hátt eins og Hans Qiristian Andersen lýsir þvi í vatns- dropanum; hann segir : “sé eg síltorfu, sé eg þorska taka síl úr torfu ; ásækja síli aSrir stærri fiskar og fylgja torfu. Alt fer sömu leiS og ásækja smærri fiska stærri fiskar, ‘ sílum samferSa aS sama náttstaS náhvals í gapanda gin." iMeðal landdýranna er sama hættan af grimmum óvinum, ækki einungis efldum ljónum, grimmum tígrisdýrum og banvæn- um höggorumm, heldur einnig stórum f jölda fugla og dýra, stórra og smárra, langt niður í stigann, svo lengi sem einhverjir eru fyrir neSan enn veikari. í öllu þessu sýnist ekki vera neitt annaS en lögmál þaS, að hi.nn sterki yfirbugi þantl veikari án nokkurrar vægSar. f þess- um myndum sýnist 'hnefarétturinn vera eini rétturinn. Þegar vér svo lítum yfir mannkynssöguna og mannfélags- ástandið eins og þaS nú er, verSum vér hins sama varir. AS undantekinni sæluvist vorra fyrstu foreldra í aldingarðinum, hef- ir mannkynssagan aS miklu leyti verið striðssaga. MaSurinn hefir veriS skelfilegt rándýr. í öllum löndum og á öllum tímum hefir hinn sterki veriS aS: leitast viS aS hlaða undir sjálfan sig valköst þeirra, sem honum voru veikari. Til þess aS gjöra þetta, hefir hann beitt öllu þvi, sem hann átti til: líkamsþreki, sálargáfum og eigum. Hann beitir öllum brögðum, sem hann getur upphugsaS, til þess aS geta komið öSrum fyrir kattarnef.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.