Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1920, Page 53

Sameiningin - 01.09.1920, Page 53
275 einlægt fer vaxandi. Hættan, sem stafar úr þessari átt, er mjög af- varleg, þegar svo er komiö, að ein hjón af hverjum átta, sem giftast,- skilja. Á þennan hátt er hin kristilega hugsjón um heimiliS og hjú- skapinn fótum troðin. Skilna'öur er veittur fyrir auðvirðilegustu ástæður, og hefðin, sem kemst á í þessu, dregur úr heilbrigðu al- menningsáliti. 'Það er því ekki vanþö.f á því, að allar kristnar kirkjudeildir beri fram sem ákveðnastan vitnisburð í þessu efni. Baptistarnir mæla með þvi, að hert sé á löggjöfinni, en ‘þó það væri mjög æskilegt, að meira samræmi væri hvað löggjöf um hjúskap og hjónaskilnað snertir í ríkjunum, finst oss að kirkjunnar verk ætti ckki að vera að reyna að koma á löggjöf, heldur að bera vitnisburð- og skapa heilbrigt almenningsálit. Kirkjan þarf að halda fram kenningu Guðs orðs í þessu efni hiklaust, og kennimenn kirkjunnar þurfa að hafa djörfung til þess að neita að gifta aðskildar persónur að nýju, nema þeim sé kunnugt um, að sá, sem hlut á að máli, hafi fengið skilnað af ástæðum, sem viðurkendar eru í Guðs orði. En eina skýlausa ástæðan fyrir hjónaskilnaði, sem þar er gefin, er ó- trygð hjónanna hvors við annað, og sá, sem orðið hefir fyrir slíkri ótrygð, en sjálfur verið saklaus, hafi rétt til skilnaðar og að giftast að nýju. En oftast er erfitt að komast eftir því sanna í þessu efni, og réttast því að fara mjög varlega í því að gefa viðurkenningu ldrkjunnar vafasömum hjónaböndum. Á þingi Synod of the Northwest, sem er ein deild af United Lutheran Church, var samþykt á þessu sumri, að gera tilraun til að fá allar deildir lútersku kirkjunnar í Norður Dakota til að taka sam- an höndum um að koma upp í sameiningu æðri mentastofnun í Bis- marck, höfuðstað ríkisins. Slík samvinna er mjög æskileg, og styður að því að áhrif kirkjunnar geti notið sín betur. Ef hver deild lút- ersku kirkjunnar í ofannefndu ríki væri út af fyrir sig um að koma upp skóla, yrði margir smáskólar, er allir að líkindum ætti í vök að verjast, en með samvinnu ætti einn skóli að geta orðið öflugur og talsvert fullkominn. — í Manitoba eru lúterskir Svíar að stofna til skólabyrjunar. Hve æskilegt hefði það verið, ef með þeim og voru íslenzka kirkjpfélagi hefði tekist samvinna um skólamál, svo öflug sameiginleg stofnun hefði komist á, þar sem þeir gæti lagt rækt við sinn sérstaka þjóðararf, og vér við vorn þjóðararf, en fullkomin sam- vinna verið um það, að gera skólann sem bezt úr garði, sem hérlenda kristilega mentastofnun. Hinn nýlátni dr. Schmauk, er oft hefir verið nefndu: t þessum' fréttum, gaf 1,200 dollara í erfðaskrá sinni til viðreisnarstarfs innan lútersku kirkjunnar í striðslöndum Norðurálfunnar. Dr. William J. Hickson í Chicago, er veitir forstöðu einni bezt þektu rannsókna-stöð sálarsjúkdóma í heiminum (psychopathic labor- atory), er á meðal þeirra, sem ekki telja heilbrigt, hvernig o«;a-borðs

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.