Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 55

Sameiningin - 01.09.1920, Síða 55
I I FYRIR UNGA FOLKIÐ. pessa dcilcl annast séra F. Hallgrfmsson. <»—<♦> Leikbræður Eben Grey var á leiSinni til skrifstofunnar aftur aS lokn- um miödegisverSi; hann stóð á strætishorninu og beiS færis aS komast yfir strætiS, því umferðin var mikil. Skrautleg bifreið hafði numiS staðar rétt þar 'hjá, sem hann stóð, og í henni var piltur og stúlka. Eben þekti þau undir eins og hann sá þau; þaS var Páll Crane og systir hans. Þau sáu hann líka, en sýndu meS engu aS þau könnuSust við hann. Eben roSnaSi af gremju, og hélt áfram leiSar sinnar. “Þau þektu mig áreiSanlega,” sagði hann viS sjálfan sig. “Þaö hefði ekki skemt þau neitt, þó að þau hefðu heilsaS mér, — þó aS þau séu rík, en eg ekki nema skrifstofuþjónn. Hvernig geta þau veriS búin aS gleyma þeim árum, þegar viS lékum okkur sarnan ? Og muna þau ekkert eftir öllu því, sem mamma gjörSi fyrir þau þegar þau mistu móSur sína? En nú, þegar þau eru orSin vell- auöug og Páll er útskrifaður úr latínuskóla, þá þykjast þau ekki þekkja mig. En hví skyldi mér ekki standa á sama?” En Bben stóö ekki á sama. Næstu dagana sá hann hvað eftir annaS þessi forntt leiksystkin sín á strætum borgarinnar. Oft var minst á þau og heimili þeirra í fréttadálkum blaSanna, því þau áttu heima í einu skrautlegasta húsinu í borginni og höfSu þar ríkmannlegt heimboS. Honum haföi þótt mjög vænt um þau á uppvaxtarárunum, og honum þótti mjög fyrir því, aS þau skyldu nú ekkert vilja hafa saman viö hann aö sælda. Eben hafSi mist foreldra sína fyrir fjórum árum. Síöan hafði hann lagt hart aS sér til þess aö koma sér áfram, því hann var eignalaus; og nú var hann á átjánda ári. Hann átti heima hjá gamalli vinkonu foreldra sinna, sem hét Mrs. Brown og hafði mist ntann sinn skömmu eftir aS foreldrar hans dóu. Hún var barnlaus og þótti vænt um að hafa Eben hjá sér; þaö sem hann borgaSi henni fyrir fæöi og húsnæöi var henni góður styrkur til aS komast af. Eitt kvöld sátu þau saman heirna; hún var aö lesa dagblaSið en Eben var nteS fræSibók, því hann notaöi frístundir sinar til þess aS afla sér fróðleiks af lestri góöra ibóka. Mrs. Brown lagöi frá sér blaöiö og sagSi: “Þú þekkir víst

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.