Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1920, Page 58

Sameiningin - 01.09.1920, Page 58
280 sagSi honum greinilega frá högum sínum og framtíöarhorfum og því, hve góS Mrs. Brown heföi veriö sér. Tíminn leið, og hann var í mestu vandræöum aö ráSa við sig hvað hann ætti að gjöra. Mrs. Brown talaði ekkert um það við hann, því hún vildi að hann væri algjörlega sjálfráður. Einn dag, þegar hann var að koma á skrifstofuna eftir mið- degisverS, sagði félagi hans einn, sem með honum var, við hann: “Hefir þú frétt að hann Crane, auðmaöurinn mikli, varð bráð- kvaddur í morgun? Eg geng fram hjá húsinu hans á hverjum degi á leiðinni þangað, og þegar eg gekk þar fram hjá í morgun, var verið að festa sorgarblæju á dyrnar. Hann fékk hjartaslag. Nú getur sonur hans eytt eins miklu og hann langar til, því hann fær helminginn af öllum eigunum.” Eben hafði lítið hugsað um Cranes-fólkið þessar síðustu vikur; hann hafði um lítið annað hugsað, en framtiðarhorfur sjálfs sín.. Og hann hafði verið gamla manninum lítt kunnugur, þó að hann hefði leikið sér með börnum hans. í kvöldblöðunum voru langar greinar um andlát Cranes og dugnað 'hans og auðlegð. E'ben var enn ekki búinn að ráða við sig hvað hann ætti að gjöra, þegar annað bréf kom frá frænda hans, og í því var meðal annars þetta: “Ef þú ræður við þig að koma, þá skaltu taka Mrs. Brown með þér, ef hún vill koma, og eg skal láta hana hafa þægilegt heimili og gott kaup, því mér kemur vel að fá hingað konu eins og hana. Og ef þú veizt um einhvern myndar- legan ungan mann, sem þig langar til að hafa með þér, þá mátt þú líka koma meði hann, því eg hefi nýlega mist góðan mann og þarf að fá annan í hans stað.” “Þetta gjörir málið miklu auðveldara viðureignar,” sagöí Eben, þegar hann hafði sýnt Mrs. Brown bréfið, “því nú kemur þú með mér vestur..” “Þú verður að ráða við þig hvað þér er sjálfum fyrir beztia, hvað sem mér líður,” mælti Mrs. Brown. “Það fer vel um míg hér; en ef þú afræður aði taka boði frænda þíns, þá þigg eg með þökkum að fara með þér.” Nokkrir dagar liðu, og mánuðurinn var því nær á enda liðinn. Þá kom til þeirra gestur eitt kvöld. Það var séra Ellston. “Eg hefi ekki komið hingað í borgina síðan eg hitti þig í bankanumn, Eben,” sagði hann, “en eg kom nú til þess að finna aumingja Cranes systkynin.” “Það var raunalegt fyrir þau, að missa hann föður Stnn svona snögglega,” svaraði Eben. “Já, það er vist,” svaraöi presturinn. “En verst er, að faðir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.