Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1920, Page 62

Sameiningin - 01.09.1920, Page 62
284 höfuð allar syndsamlegar holdsnautnir, leiða til ómensku og gjöra menn fátæka. Ekki að eins að fé — það er minsti skað- inn. pær gjöra lífið snautt að dygðum og fegurð. Gjöra menn að ræflum. 3. Hvaða heilræði eru í síðara hlutanum? a. Of- drykkjan leiðir af sér allskonar böl, sársauka, líkamlegan og andlegan, deilur og meiðsli, hrörnun og sljóleik. Hún spillir llík- ama og sál. b. Hún er lymskur, tælandi löstur. pó vínið virð- ist fagurt og svalandi (hér er átt við, létt, ljúffengt vín), þá sviíkur það vini sína í trygðum á endanum. c. pað spillir sál- inni, æsir girndir, villir mönnum sjónir. Leiðir á þann hátt til allskonar glæpa og svívirðinga. d. Ofdrykkjumaðurinn er í sí- feldri hættu; kann ekki að varast hana, af því vitið er skert, tilfinningin sljófguð. Af hennar völdum verða mörg þúsund slys á hverju ári. pó er hitt verra, hvernig hún deyfir sið- ferðistilfinninguna og stofnar sálum manna í dauðahættu með því móti. XIII. LEXÍA — 26. SEPTEMBER Yfirlit yfir ársfjórðunginn,—Les Sálm. 72. Minnistexti: Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað—1. Sam. 16, 7. 1. Hvar var Davíð fæddur? Hvað hét faðir hans? Hvað vann hann í æsku? 2. Hví var Sál konungi vikið frá hásæt- inu, og ætt hans? 3. Hvað var fyrsta frægðarverk Davíðs? 4. Hvernig fórst Sál við hann ? 5. Hver reyndist honum trygg- ur vinur, þegar Sál sat um líf hans? 6. Hvernig fórst Davíð við Sál? 7. hvernig komst Davíð til valda? 8. Hvað gjörði hann við Örk Drottins? 9. Hvernig reyndist hann ætt Sáls? 10. Hvaða böl kom fyrir Davíð og hver var orsökin? 11. Hví tók Drottinn Davíð í sátt aftur? 12. Hver varð konungur næst á eftir Davlíð? 13. Hverskonar hugarfar sýndi hann á byrjun stjórnar sinnar? 14. Fyrir hvað varð hann frægur? 15. Hvað segir hann um ofdrykkjuna? Fjórði ársíjórðungur. I. LEXÍA — 3. OKTÓBER. Fæðing Jesú og bernska—Matt. 2, 1-15. Minnistexti: pú skalt kalla nafn hans Jesús, því að hann mun frelsa lýðinn frá syndum þeirra—Matt. 1, 21. Með þessari lexíu byrjar nýr ársfjórðungur. Á síðustu sex mánuðum hafa lexíurnar verið úr gamla testamentinu — úr æfisögum þriggja konunganna, Sáls, Davíðs og Salaómós. Nú verða þær teknar úr nýja testamentinu, úr sögu frelsarans. pessi lexía segir frá vitringunum, sem komu frá Austurlöndum til þess að sjá hann, þegar hann var ný-fæddur.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.