Búfræðingurinn - 01.10.1951, Page 10
H
li Ú F RÆfllXG U R I N N
þessi mun hafa verið vandlega athuguð, af forgöngumönnum
búnaðarmála, og áhrifa hennar hefur gætt í ýmsum búnaðar-
samböndum víða um land. Áhrifa Olafs á ræktunarmál mun
því gæta miklu víðar en flestir ætla.
Ólafur keypti höfuðbólið Fell í Sléttuhlíð með Birni bróður
sínum og efndi þar þegar til umbóta. Bendir það jarðarkaup
til þess, að hann hafi þá haft í hyggju að hefja stórbúskap á
mikilli jörð. Af þessu varð þó ekki, og mun tvennt hafa valdið
þar mestu um: Heilsa hans tók snemma að bila og ráðunauts-
störfin urðu honum ærið viðfangsefni.
Ólafur var kvæntur Ástu Jónsdóttur frá Marbæli í Óslands-
lilíð, mikilhæfri myndarkonu. Áttu þau fjögur börn. Dvöldust
þau hjón lengst af í Marbæli, en bjuggu síðast nokkur ár í
Stóragerði í Óslandshlíð. Mjög var það á orði lraft af þeim,
sem bezt þekktu, að Ólafur hefði verið framúrskarandi heimil-
isfaðir og sambúð þeirra hjóna svo sem bezt mátti verða. Var
því mikill harmur kveðinn að konu Ólafs og börnunr við frá-
fall lians.
Skömmu eftir að Ólafur varð ráðunautur Skagfirðinga tók
hann að kenna alvarlegrar vanheilsu. Ekki kvað þó mikið að
þessu um skeið, en því meir, sem lengur leið. Síðustu árin varð
þess vart, að hann þoldi illa sífelld ferðalög, sem fylgdu starfi
lians. Enginn vissi þó neitt með vissu um það, hvað hann hefur
orðið á sig að leggja í ferðum sínum og raunar oft endranær,
því að ærið var hann dulur maður og ekki sízt um hagi sína.
Ræddi hann því fátt um heilsufar sitt, og ekki heldur þótt
góðkunningjar spyrðu um líðan lians. Þegar sá, sem þetta ritar,
kom til lians í síðasta sinn, er hann hafði legið margar vikur á
banasænginni, ræddi liann enn um almenn mál af áhuga og al-
úð, eins og venjulega. Þó var þrek hans svo mjög að þrotum
komið, að ekki gat hann uppi setið og nokkuð heyrðist þá á
mæli iians.
Ólafur var ágætum gáfum gæddur, glöggskyggn og djúp-
hygginn. Búfræði, vélfræði og stærðfræði munu hafa verið
kærustu námsgreinar hans. Hafa þær orðið honum bæði nauð-
syn og munaður.
Ólafur var meðalmaður að hæð, vel vaxinn og hraustmenni