Búfræðingurinn - 01.10.1951, Page 53
BÚFRÆBINGURINN
51
um jókst sala á landbúnaðarvörum á innlendum markaði.
Rætt vegakerfi, svo og ný flutningstæki, opnuðu möguleika
fjarliggjandi héruðum til sölu á aðalmarkaðsstaðnum innan-
lands, mest í Reykjavík. Það hófst samkeppni um markaðinn,
aðallega Reykjavíkurmarkaðinn. Skipulagslaus sala, sem hafði
í för með sér lækkandi verð til bóndans og hækkandi dreifing-
arkostnað. Varð þetta mikið vandamál fyrir samvinnufélögin,
sem þau gátu ekki leyst, að minnsta kosti ekki þá þegar. Kjöt-
salan í Reykjavík var farin að nálgast þá óreiðu, sem hún var
í fyrir stofnun Sláturfélags Suðurlands. Bændur fluttu nú kjöt-
ið á bílum til bæjarins víðs vegar að, og sagt er, að stundum
hafi þeir gengið með kindakroppana milli húsanna og boðið
þá til kaups.
í fyrrnefndri grein Ágústs í Birtingaholti segir: ,,En það
raunalegasta í sögu Sláturfélags Suðurlands er það, sem brátt
kom í ljós eftir að félagið tók til starfa, hve margir félagsmenn
urðu til þess að brjóta það ákvæði í lögum félagsins, að skipta
við það með allt sitt sláturfé. Til erfiðleika félagsins, fyrr og
síðar, út af þessari ótryggð sumra félagsmanna við sitt eigið
félag, hugsa ég með döprustum huga, þegar ég lít til baka yfir
æfi félagsins. Ég býst við að þeir menn, sem þannig brutu lög
félagsins og seldu kaupmönnum og bröskurum meira og minna
af fé sínu, hafi ekki allir að minnsta kosti gert sér ljóst, hvílíkt
tjón þeir gerðu félaginu með því, og þar með hverjum einstök-
um félagsmanni."
Nokkrar tilraunir voru gerðar til þess að koma betra skipu-
lagi á sölu landbúnaðarafurðanna innanlands, en þær tilraunir
báru ekki árangur. í því skyni var mjólkurbandalag Suður-
lands stofnað, en kom litlu til leiðar.
Samkvæmt þingsályktun Efri-deildar Alþingis 1933 var skip-
uð milliþinganefnd til þess að gera tillögur um afurðasölumál-
m innanlands, kjöts og mjólkur. Bráðabirgðalög voru gefin út
ágúst 1934 um meðferð sölu mjólkur og rjóma o. fl. Var
ákveðið í lögunum, að landinu mætti skipta í sölusvæði og
verðlagssvæði, og mátti ekki selja á milli sölusvæða nema með
leyfi mjólkursölunefndar og kjötvérðlagsnefndar. Verðjöfnun
4*