Búfræðingurinn - 01.10.1951, Qupperneq 121
BÚFRÆDINGURINN
119
lendingarnir boðnir þangað. Þar talaði séra Eiríkur Eiríksson.
— Hófið stóð fram eftir kvöldi og var í alla staði prýðilegt.
Snemma morguns förum við af stað áleiðis til Austurdals í
járnbraut. Sporvagnsteinarnir lágu víða um mjög brattar hlíð-
ar og gegnum ótal jarðgöng. Um liádegisbilið fórurn við úr
járnbrautinni og um borð í bát, var það á stað, sem nefnist
Fretheim. Síðar um daginn fórum við úr bátnum yfir í skip,
sem flutti okkur til Særdals, og gistum við þar. Okkur fundust
firðirnir þröngir og víða var lítið um gróður, nema skógar-
kjarr, sem víða vex upp úr berum klöppunum.
25. júní lá fyrir okkur 200 km. leið í bíl, alla leið til ,,Vol-
bu“, en þar er tilraunastöð, aðallega með skógrækt. Þessi til-
raunastöð liggur meira en 500 m. yfir sjávarmál. Á leið okkar
eftir Særdal sáum við fornlega kirkju, byggða úr timbri ár-
ið 1150.
Eftir að hafa notið góðrar fræðslu, ásamt næturgreiða, hjá
tilraunastjóranum, er haldið af stað til Gövikur. Skammt frá
Gövik er tilraunabú með beitirækt. Landinu er skipt niður í
hólf. Um það bil 20 dagar látnir líða milli þess, sem hólfin eru
beitt. Mjólkurkúnum er beitt fyrst, síðan geldneytum og
hrossum, er grasið tekur að minnka. Kýrnar þarna, sem vega
um 450 kg., mjólka til jafnaðar 4014 kg. með 3.8% fitu.
Næst liggur leið okkar til bændaskóla, sem hefur 70 nem-
endur. Þeir eru látnir stunda bóklegt nám yfir sumarið. Hér
eru notaðir steinsteyptir 70 kg. steinar sem farg á vothey. Eru
þeir með járnhöldu, svo að auðveldara sé að færa þá til.
Það, sem við skoðum næst, er búgarður, þar sem garðrækt
er fyrst og fremst stunduð.
Ekki langt frá Gövik er bær, sem lieitir Lillehammer. Þetta
er snyrtilegur bær, með fagurt umhverfi. í útjaðri bæjarins er
sérstakt svæði, sem helgað er fortíðinni. Er þar margt að sjá,
sem geymir minningu hins liðna tíma. Þar eru t. d. bjálkahús
frá 1430. Héðan sést út á vatnið Mjösen, sem er 130 km. á
lengd og einnig sést í Guðbrandsdal, en þar er eitt blómlegasta
hérað Noregs.
Að kvöldi þess 28. erum við staddir í höfuðstað Noregs.
Búnaðarskólinn Ás er skammt frá Osló. Hann er stofnaður