Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 46
Aslaug Friðriksdóttir, Jóhanna Símonardóttir og Sirrý Hallgrímsdóttir, stofnendur Sjá -fyrirtœkis sem sérhœfir sig í notendaprófunum, ráðgjöf
og hvers kyns úttektum og mati á vefium og kerfum. Mynd: Geir Olajsson
Til að vefirnir skili arði...
r
Aundanförnum árum hefur orðið
gífurleg uppbygging vefla á Is-
landi. Flest öll fyrirtæki hafa sett
upp vefi og margir hafa farið út í
mikla vinnu við að setja upp verslanir
og önnur gagnvirk kerfi í þeim til-
gangi að koma starfsemi fyrirtækja
sinna út á Netið. Ekki þarf að orð-
lengja það frekar að gífurlegum fjár-
munum hefur verið kostað í þessa
vinnu og auðvitað var markmiðið að
þeir skiluðu þessum fyrirtækjum tekj-
um til baka. Sjá miðar að því að að-
stoða fyrirtæki við að endurskoða vefi sína og gera þá aðgengi-
legri fyrir notandann til þess, að sjálfsögðu, að hann nýti sér þá
þjónustu sem vefurinn hefur upp á að bjóða og eins til þess að
hann hafi áhuga á að heimsækja hann aftur,“ segja stofnendur
fyrirtækisins, þær Sirrý Hallgrímsdóttir, Jóhanna Símonardótt-
ir og Aslaug Friðriksdóttir.
„Rannsóknir sýna að reynsla notenda hefur úrslitaáhrif á
notkun og vinsældir veija eða kerfa. Skoða verður upplifun not-
enda til þess að geta gert betur í hönnun og uppbyggingu. Ef
notendur finna ekki þá þjónustu sem þeir leita að geta þeir ekki
nýtt sér hana. Krafa notenda í dag er að þjónustuferlið sé í sam-
ræmi við væntingar notandans út frá því sem hann þekkir áður.
Það þykir því óhætt að staðhæfa að með því að bæta nytsemi
og aðgengi notandans má tvöfalda notkun vefsvæðis," segir
Sirrý Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Sjá.
„Sjá veitir ráðgjöf óháða framleiðslunni sjálffi en ráðgjöfin er
algjörlega miðuð út frá þörfum og væntingum notandans. Sjá
nýtir þá þekkingu sem safnast hefur með rannsóknum á hegð-
un notenda því notandinn er uppspretta þess að vefir og kerfi
gangi upp og skili þeim sem standa að þeim arði.“
Notendur komi aftur í flestum tilfell-
um má setja vefi í tvo flokka. Annars
vegar upplýsingavefi um fyrirtæki og
stofnanir og hins vegar vefi sem hafa
mikla gagnvirkni og í sumum tilfellum
má segja að fyrirtæki hafi „internet-
vætt“ starfsemi sína.
Flestir úr fyrri hópnum glíma við
það vandamál að viðhald veijarins var
vanmetið í fyrstu og sjá fram á að tals-
verðum kostnaði þarf að fórna í vef
sem skilar fyrirtækinu ekki sýnilegum
hagnaði. Flestir úr seinni hópnum
eiga hins vegar við það vandamál að stríða að hafa kostað til
miklum íjármunum við að búa til kerfi sem ekki eru að skila
fýrirtækinu þeim hagnaði sem í upphafi var gert ráð fyrir.
,AUt okkar starf miðar að því að gera vefi notendavænni
þannig að notendur vilji koma aftur og nýta sér þá. Þannig skil-
ar vefurinn meiri tekjum,“ segir Sirrý jafnframt.
Oháðar prófanir Þremenningarnir sem stofnuðu fyrirtækið
hafa starfað við upplýsingatækni um nokkurt skeið. Þær hafa
lengi haft áhuga á notendaprófunum en komust snemma að
þeirri niðurstöðu að mikilvægt væri að sami aðilinn væri ekki
bæði í framleiðslu vefla eða kerfa og prófunum á þeim. Því
ákváðu þær að stofna Sjá, sem sérhæfir sig í nytsemismæling-
um og úttektum á viðmóti.
Fyrirtækið sér um prófanir og veitir fyrirtækjum ráðgjöf
sem miðar að því að bæta viðmót, hönnun og innra skipulag
velja. Með því að kanna vandamál sem upp koma við notkun-
ina á vefnum og leggja mat á hann, bæði hvað varðar virkni og
viðmót, sparast kostnaður vegna endurhönnunar, nytsemin
eykst verulega og líkurnar á vinsældum veijarins aukast.
Fyrsta fyrirtœkið sem sérhæfir sig í
prófunum á viðmóti vefia og hvers kyns
kerfum, leikjum eða hugbúnaði hefur
verið stofnað á Islandi. Það heitir Sjá
ehf - viðmótsprófanir og að því standa
prjár ungar konur. Hvers vegna stofn-
uðu pærpetta fyrirtœki?
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardótíur
46