Frjáls verslun - 01.02.2002, Síða 77
ATHYGLISVERÐUSTU flUGLÝSINGARNflR
Sterkar auglýsingar ímark-dagurinn var góður dagur íyrir
Hvíta húsið. Fjórir lúðrar í samkeppninni um athyglisverðustu
auglýsingar ársins og um morguninn birtust niðurstöður
Gallupkönnunar sem sýndu að stjórnendur íslenskra íýrir-
tækja telja Hvíta húsið skara langt fram úr öðrum auglýsinga-
stofum. Sú viðurkenning þykir okkur vera margra lúðra virði.
Hvíta húsinu hefur gengið mjög vel í ímark-keppninni frá upp-
hafi. Það er engin tilviljun því við höfum alltaf leitast við að
gera athyglisverðar auglýsingar fyrir viðskiptavini okkar. Ekki
til þess að vinna til verðlauna heldur vegna þess að við vitum
að athyglisverðar auglýsingar ná betur til almennings. Ahrif
þeirra eru einfaldlega meiri og sterkar auglýsingar þarf ekki
að birta jafnoft og veikar til að ná tilætluðum árangri. Ánægju-
leg hliðarverkun þessa eru svo verðlaunin sem Hvíta húsið
hefur fengið töluvert af, bæði hér heima og erlendis.
Aflfl keppnin „Keppnin um athyglisverðustu auglýsingar
ársins sem ímark hefur staðið fyrir frá árinu 1986 er orðin rót-
gróin meðal íslensks markaðsfólks," segir Leopold Sveinsson,
framkvæmdastóri markaðssviðs AUK. „Sem auglýsinga-
maður er ég ánægður með keppnina því hún vekur jákvæða
athygli á því mikla og góða starfi sem auglýsinga- og markaðs-
fólk er að vinna. Verðlaunadagurinn er orðinn stærsti hátíðar-
dagur ársins hjá íslensku markaðsfólki og hefur Háskólabíó
verið troðfullt undanfarin ár. Eðli málsins samkvæmt nær
keppnin þó aldrei að skila niðurstöðum sem allir geta verið
sammála um. Það er eðlilegt því úrslitin ráðast af huglægu
matí dómnefndar hverju sinni. Keppnin er þrátt fýrir allt í
mikilli þróun og keppnisreglur eru í sífelldri endurskoðun. Eg
hef setið í stjórn ímark undanfarin ár og hef þess vegna átt
tækifæri á að sjá keppnina þróast og hafa áhrif á þróunina.
Ég var formaður dómnefndar í keppninni fýrir 10 árum og
þá var formið allt annað. Nefndin var fámennari og var dóm-
nefndarfólki leyft að ræða um hverja innsendingu áður en
það greiddi atkvæði. Þetta var ósanngjörn aðferð að mínu
mati því einn skoðanasterkur dómnefndarmaður gat hæglega
mótað hvernig hinir greiddu atkvæði. I dag eru 15 manns í
dómnefndinni og eru skoðanaskipti um verkin stranglega
bönnuð.“
ímyndarauglýsingar ímyndarauglýsingar sem Næst gerði
fyrir Borgarleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur á árinu 2001
voru valdar athyglisverðasta umhverfisgrafík ársins á ímark-
hátíðinni 2002. Hugmyndin með plakötunum var að koma
„drama“ tíl fólksins og sýna einskonar örleikrit fýrir vegfar-
endur i strætóskýlum borgarinnar. Markmiðið var að vekja
athygli á Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur sem fjöl-
breyttu og lifandi leikhúsi og tilgangurinn var að fá fólk til að
kaupa fasta miða í upphafi leikárs og tókst það mætavel.
Umhverfisgrafik: gamalt - nýtt, súrt - sætt, þungt -létt, heitt - kalt,
framleiðandi: Næst, auglýsandi: Leikfélag Reykjavíkur.
Vefur fyrirtœkis - Birtingur fær verðlun frá Önnu Helgadóttur, ISNIC.
Hvíta húsið féhk fjóra í flokki tímaritaaug-
lýsinga var auglýsingin „10 dropa?“ Hún
er unnin fýrir Blóðbankann í samvinnu við
Danól og er hluti af herferðinni „Er
komið að þér að gefa?“. Herferðin var
unnin þannig að gerð var ein auglýsing
fýrir hvert hjartaspil í spilastokknum og
voru fyrirtæki fengin til samstarfs við
Blóðbankann um hvert spil fýrir sig.
10 m
* w.
10
01 é 4*
TÍU OROPA7
í flokki markpósts vann „Fiðrildi". Markmiðið með þessum
markpósti, sem unninn var fýrir lyfjafýrirtækið Delfa, var að aug-
lýsa fijókornaofnæmislyf. Hann var fýrst sendur til lækna og
starfsfólks apóteka og síðar til almennings sem
kynning á ólyfseðilsskyldri tegund
lyfsins. Hópurinn fékk sent kort í
formi laufblaðs sem á stóð „Sum-
arið nálgast óðfluga - verum við- ý, -
búin!“. Þegar kortið var opnað w ' \
flaug út úr þvi fiðrildi sem trekkt Vy^,
hafði verið upp með gúmmíteygju.
I flokki veggspjalds vann „Laxness - íslenska er okkar mál“.
Veggspjaldið er liður í átaki Mjólkur-
samsölunnar, íslenska er okkar mál,
sem unnið er í samstarfi við Islenska
málnefnd og er það gefið út í tílefni
100 ára afmælis Halldórs Laxness. Á
veggspjaldinu myndast andlit
Nóbelskáldsins í gegnum fleyg orð
og fallegar tilvitnanir í íslenskar
bókmenntir, allt frá fornsögum til
nútímabókmennta. Veggspjaldinu
var dreift í alla grunnskóla landsins
ásamt hefti með ítarlegum upplýsingum og hugmyndum að
kennsluverkefnum.
í flokki kvikmyndaðra auglýsinga vann „Götóttur." Auglýs-
ingin var hluti herferðarinnar „íslenskir ostar - hreinasta
afbragð". Markmið herferðarinnar var að auglýsa gæði
íslenska ostsins og var það m.a. gert með því að sýna fárán-
legar kvartanir yfir því sem er í fullkomnu lagi. Það var kvik-
myndaiýrirtækið Hugsjón sem vann auglýsinguna en leik-
77