Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Side 87

Frjáls verslun - 01.02.2002, Side 87
Sérblað um Þyskaland „Hann var loftkældur svo ekki fraus á honum vatnið og svo var botninn flatur þannig að þegar snjóaði flaut hann ein- faldlega ofan á snjónum og fór ýmsar leiðir sem aðrir bílar ekki komust,“ segir Sigfús í Heklu. Vandlega ígrunduð ákvörðun Sigfús íeitaðí gjarnan álits manna á því sem hann ætlaði að fara að gera og tók tillit til þess sem þeir sögðu. „Hann talaði meðal annars við mig sem var þó varla búinn að taka prófið,“ segir Finnbogi. „Spurði mig hvað mér þætti um þennan bíl og hvort ég sæi eitthvert vit í honum. Margir, sérstaklega þeir eldri, vildu aðeins hefðbundna bíla þar sem vélarrúmið var að framan og stallar bæði að aftan og framan. En um leið og farið var að nota bjölluna komu allir kostir bílsins í ljós.“ Fyrstu bílarnir komu hingað til lands árið 1952 og kom múgur og margmenni til að skoða og fylgjast með. Það hafði þó ekki verið auglýst eða kynnt, heldur var fólk bara forvitið og vildi sjá hvernig þessir bílar væru eigin- lega. Fyrstu bílana keyptu þeir sr. Oskar Jón Þorláksson dóm- kirkjuprestur og Guðmundur prófessor Thoroddsen. Oskar var alla tíð hrifinn af Volkswagen og keypti marga bíla eftir þennan fyrsta. Jónas frá Hriflu átti líka bjöllu en fór heldur illa með bílinn og það þurfti að skipta árlega um kúplingu í bíl- unum hans. Reyndar má segja að þeir séu færri en hinir, Islendingarnir sem ekki hafa átt eða þekkt einhvern sem hefur átt bjöllu og ófáar sælustundirnar hafa átt sér stað í aftursætinu á rauðum, gulum og hvítum bjöllum. Auðveldur í Viðhaldi „Þessi bíll hentaði alveg ljómandi við íslenskar aðstæður," segir Sigfús. „Hann fór alltaf í gang, hvernig sem viðraði. Hann var loftkældur svo ekki fraus á honum vatnið og svo var botninn flatur þannig að þegar snjóaði flaut hann einfaldlega ofan á snjónum og fór ýmsar leiðir sem aðrir bílar ekki komust. Og þó að bíllinn hafi þótt ljótur í upphafi var hann bæði ódýr og góður í viðhaldi því það var til hans vandað. Enda enginn annar en Porsche sjálfur sem hannaði hann, þó illar tungur segðu að hann hefði stolið teikningunni eða að minnsta kosti hugmyndinni frá Tékkum. En það var gott að þjóna þessum bíl og alltaf til nóg af vara- hlutum í hann. Pabbi sá til þess og reyndar var eitt af hans „mottóum“ að gæta þess að eiga nóg af varahlutum og við vorum þekktir fyrir það. Enda sagði hann alltaf: „Hver bifreiðategund er nákvæmlega jafn góð og þjónustan sem á bak við hana er,“ en þetta eru einkunnarorð Volkswagenverksmiðj anna. “ Það er nú stíll yfir honum þessum. Bjallan átti hug og hjörtu þjóðarinnar um margra ára skeið. Reyndar átti hún hug og hjörtu alls hins vestræna heims efþvt er að skipta. StéttlállS bíll Þó að aðrir bílar kúventust og brejdtust í útliti og innræti, var Volkswagen alltaf eins. Um hver áramót, þegar nýjar árgerðir komu á markað, ríkti mikil spenna innan Heklu. „Það voru örfáir sem fengu að vita hverjar breytingar yrðu gerðar á bílnum," segir Sigfús. „Þetta var vandlega geymt niðri í skúffu og þegar loks hulunni var lyft, höfðu get- gátur manna náð hámarki. En breytingarnar voru alltaf smá- vægilegar. Það var helst að stefnuljósin stækkuðu ögn eða rúðuþurrkurnar breyttust smávegis, meira var það ekki. Bíllinn var einfaldlega góður eins og hann var og þeir sem stjórnuðu framleiðslunni voru nógu framsýnir til að leyfa honum að vera þannig." I heildina flutti Hekla inn 14.000 Volkswagenbíla og hefur engin önnur bílategund komist nálægt þeirri tölu. „Verðið var alltaf gott og það gátu allir átt Volkswagen,“ segir Finnbogi. „Til að mynda var það þannig að í Þýskalandi gátu menn átt Mercedes-Benz og Volkswagen, en ekki Benz og einhvern ódýran Ford til dæmis. Það gekk ekki. Bíllinn hentaði einfald- lega öllum, hvort sem þeir voru ríkir eða fátækir." Skömmtunartímar Þegar farið var að flytja inn Volkswagen var allt skammtað og bílar voru afgreiddir eftir leyfum. Þegar hins vegar allt slíkt var gefið frjálst 1960-1961 fór skriðan af stað og í mörg ár var ekki hægt að anna eftirspurn eftir bíl- unum. „Pabbi fór reyndar aðrar leiðir en keppinautar okkar. Hann tók upp á því að auglýsa bíla til sölu en það hafði verið algerlega óþekkt fram að því,“ segir Sigfús. „Keppinautarnir héldu að pabbi væri genginn af göflunum að vera að eyða peningum í þetta en þetta snarvirkaði. Hann ætlaði aldrei að skammta hlutina heldur selja þá og var í við- skiptum af fullri alvöru. Ef ég ætti að segja einhver lokaorð um Volkswagenbjöllu og þennan tíma, myndi ég hiklaust segja það að þessi bíll hafi gert jafn- mikið fyrir ísland og Ford T fyrir Bandaríkin.“ 33 87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.