Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 44
Töluur EJS
Fléttan
íEJS
skákinni
Þrátt fyrir að erfitt 700 milljóna tapár sé að baki hjá EJS, segir Olgeir Kristjónsson, sem núna
er orðinn starfandi stjórnarformaður samstæðunnar, að hann trúi pví enn að málstaðurinn sé
réttur; að pað verði unnt að gera upplýsingatæknina að alvöru atvinnuvegi og auka útflutning
á íslenskum hugbúnaði. Ut á petta gengur m.a. fléttan í EJS-skákinni!
Eftir Jón G. Hauksson
að er sitthvað að selja tölvur og skrifa forrit! Hljómar
einfalt. En breytingarnar hjá EJS, sem á erfitt tapár að
baki eftir að hafa skilað hagnaði í samfelld ellefu ár þar
á undan, ganga þó út á að skerpa á þessum mun. Sérhæfmg-
unni fylgja nokkrar mannabreytingar. Sú helsta er að Olgeir
Kristjónsson, forstjóri fyrirtækisins í rúm tólf ár, lætur af því
starfi og verður starfandi stjórnarformaður samstæðunnar,
EJS Group, en samkvæmt breytingunum heyra núna ijögur
dótturfélög undir hana - EJS, Hugur, EJS International og EJS
Limited í Skotlandi. Mjög mun mæða á þessum félögum, tvö
þeirra eru með aðsetur erlendis en tvö heima. EJS við Grens-
ásveg verður tölvusalinn, en Hugur í Kópavogi verður stóra
hugbúnaðarhúsið innan samstæðunnar. Dótturfélögin ijögur
eru ekki aðeins taflmennirnir í EJS-skákinni, þau eru sjálf
EJS-fæðukeðjan!
TJÚÍ enn á málstaðinn „Ég trúi enn á málstaðinn,“ segir
Olgeir Kristjónsson, þegar hann ræðir breytingarnar. Hvaða
Myndir: Geir Ólafsson
málstað? Jú, þann sem hann hefur predikað í nokkur ár, að
forsenda þess að hægt sé að ná auknum árangri í útflutningi
á hugbúnaði sé að stækka og byggja sig fyrst almennilega
upp á heimamarkaði. „Stækka fótsporið," eins og hann hefur
nefnt útrásina.
„Þrátt fyrir að mjög erfitt ár sé að baki - þar sem um 300
milljóna króna gjaldþrot Mekkanos og Kveikja komu afar illa
við okkur ofan í þann samdrátt sem varð á útflutningi okkar
til Asíu - held ég enn að málstaðurinn sé réttur; að hægt verði
að gera upplýsingatækni að alvöru atvinnugrein hérlendis.
Það er forsenda þess að hægt sé að ná meiri árangri í útflutn-
ingi á hugbúnaði. Fyrirtæki verða að vera sterk heima fyrir til
að geta náð árangri erlendis. Hugur gegnir núna þessu mikil-
væga hlutverki innan EJS-samstæðunnar eftir að hugbúnað-
ardeild EJS hefur verið flutt þangað yfir. Sá flutningur er einn
af hornsteinum breytinganna. Hugur verður núna stærra og
sterkara hugbúnaðarhús og fyrir vikið betur í stakk búið til
landvinninga bæði hér heima sem erlendis."
Ég held enn að málstaðurinn sé réttur; að hægt verði að gera upplýsingatækni að
alvöru atvinnugrein hérlendis. Það er forsenda þess að hægt sé að ná meiri árangri í
útflutningi á hugbúnaði.
44