Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Page 48

Frjáls verslun - 01.04.2002, Page 48
Á ' GESTflPENNI JflFET OLflFSSON Nýlega birtist góð grein í Fijálsri verslun: ,Að nota íþróttir í auglýsingar". Á síðustu árum hefur aukist gífiirlega að tengja saman íþróttir og auglýsingar. Auglýsingatekjur öfl- ugustu íþróttamanna heims eru meiri en laun þeirra frá félögun- um og verðlaunafé. Einn stærsti íþróttavöruframleiðandi heims Nike hefur hrósað sér hve iýrirtækið var framsýnt að gera langan samning við golfsnillinginn Tiger Woods skömmu áður en hann öðlaðist heimsfrægð. Fyrirtækið telur þetta einhveija bestu Jjár- festingu sem það hefur gert. Þetta er ein hlið fjárfestinga í íþróttum, fyrirtæki „kaupa“ einstaka íþróttamenn og vonast til að sú tjárfesting skili sér í betri vörusölu og styrki ímynd fyrirtækis- ins. Á Islandi er þekkt að einstaka bæjarfélög með öflugum stuðningi einstaklinga og fyrirtækja hafi haldið úti dýru knatt- spyrnuliði til að styrkja ímynd bæjarins. Kaup á hlutabréfum í íbróttafélöyum Á undanfömum 10 árum hefur orðið algjör bylting í rekstri íþróttafélaga um allan heim. Áður fyrr voru þetta yfirleitt sjálfseignarstofnanir bornar uppi af mikilli sjálfboðaliðsvinnu og miklum ijárhagslegum stuðningi frá velunnurum. Flest íþróttafélög hafa nú breyst í M fyrirtæki, önnur eru orðin að mjög stórum fyrirtækjum þar sem gömlu lög- málin eru löngu horfin og hörð peningastefna ræður ríkjum. Velta íþróttafélaga, sérstaklega knattspyrnufélaga, hefur vaxið gífurlega, einkum vegna mikilla tekna af sjónvarpssamningum. Allt þetta kallaði á breytt rekstrarform. Mörgum íþróttafélögum hefur verið breytt í hlutafélög og Heildarfjárfesting íslendinga í Stoke er að líkindum ríflega einn milljarður króna. Gengi félagsins í byrjun var um 1,35. Síðastliðið eitt og hálft ár hefur ekki verið til skráð gengi á bréfum í Stoke en áætla má að það sé núna í kringum 0,80. Fjárfest nokkur þeirra hafa verið skráð á verðbréfamarkaði. Á Norður- löndum voru Danir fyrstir til að skrá knattspyrnufélagið Brönd- by á markað um 1994. Félagið átti mikilli velgengni að fagna, seldi nokkra leikmenn dýru verði og gengi hlutabréfanna flór- faldaðist. Síðan hefur gengi bréfanna legið niður á við, enda hefur árangur félagsins á knattspyrnuvellinum verið afar slakur. Hæst fór markaðsvirði Böndby í um 6 milljarða ísl. kr. en er nú um 2,3 milljarðar. í Danmörku eru 3 félög skráð á markaði, í Sviþjóð eitt, ekkert í Noregi. Á Italíu eru 5 félög skráð á markaði, 2 í Þýska- landi og á Englandi eru 12 félög skráð á markaði. Ef dregið er saman hvernig flárfestum hefur vegnað með eignarhluti sína í þessum félögum má undirstrika að útkoman hefur ekki verið góð. Eitt félag, Manchester United, ber reyndar höfuð og herðar yfir öll íþróttafélög sem skráð eru á markaði. Manchester United Það eru meira en 10 ár síðan Manchester United var skráð á markaði. Gengi hlutabréfa í félaginu hefúr sveiflast mikið. Það reis hæst fyrir um tveimur árum þegar félagið varð Evrópumeistari, en þá var markaðsvirði félagsins um 60 miHjarðar, en nú er markaðsvirði um 43 miUjarðar. Jafet S. Ólajsson,framkvœmdastjóri Verðbréfastofunnar, ergestaþenni að þessu sinni ogf/allar um fjárfestingar í tþróttafélögum. Arðbærast hefur verið að jjárfesta í Manchester United. Gengi bréfa í því félagi er þó talsvert lægra en Jýrir rúmum tveimur árum. FV-mynd: Geir Olafsson / Jafet S. Olafsson, framkvœmdastjóri Verðbréfastof- unnar, skrifar um fjárfestingar í íþróttafélögum og spyr hvorpær lúti öðrum lögmálum en í hefð- bundnum jyrirtækjum. Svo virðist sem pessar fjárfestingar séu meira til „skemmtunaf og „stuðnings“. Manchester United hefurskilað mestum arði pótt félagið sé um priðjungi verðminna en fyrir tveimur árum. Eftír Jafet S. Ólafsson 48

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.