Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 9
Við höfum m.a. sérhæft okkur í sjóðum sem fylgja þróun hlutabréfavísitalna. Slíkir sjóðir
hafa gefið góða langtímaávöxtun, enda standa þeir sig að jafnaði mun betur þegar
harðnar á dalnum, auk þess sem kostnaður við stýringu þeirra er minni.
Starfsemi Eignastýringar íslandsbanka má rekja allt aftur til ársins
1986 þegar VerSbréfamarkaður IðnaSarbankans hóf starfsemi. í ár-
anna rás hafa Sigurður og samstarfsmenn hans þróað markvissar að-
ferðir við eignastýringu. „Við höfum lagt áherslu á að bjóða upp á fjöl-
breytta fjárfestingarkosti og ábyrga ráðgjöf. Við höfum m.a. sérhæft
okkur í sjóðum sem fylgja þróun hlutabréfavísitalna. Slíkir sjóðir hafa
gefið góða langtímaávöxtun, enda standa þeir sig að jafnaði mun betur
þegar harðnar á dalnum, auk þess sem kostnaður við stýringu þeirra
er minni. í safnastýringu fyrir lífeyrissjóði, fagfjárfesta og stærri söfn
einstaklinga leggjum við höfuðáherslu á ábyrga og vandaða fjárfestinga-
stefnu, og beitum skýrri aðferðafræði við rekstur safnanna sem tekur
mið af fjárfestingarstefnu og markaðsaðstæðum," segir Sigurður.
Vel hefur tekist til í rekstri sjóða hjá Eignastýringu íslandsbanka
undanfarið ár miðað við markaðsaðstæður. Svo dæmi sé tekið hefur
ávöxtun innlendra hlutabréfasjóða Eignastýringar frá 1. október 2001
til 1. október 2002 verið yfir 30%, í samanburði við 25% meðaltals-
ávöxtun hlutabréfasjóða hér á landi á tímabilinu, skv. heimildum Láns-
trausts hf. Jafnframt hefur skuldabréfasjóðum farnast vel að undan-
förnu. Ávöxtun sjóða sem fjárfesta í erlendum hlutabréfum hefur verið
lakari, þótt góður árangur hafi náðst miðað við markaðsaðstæður.
Eignir í stýringu
150
99 00 01 02 okt 02
Sérsniðin Einkabankaþjónusta fyrir efnameiri uið-
skiptavini
íslandsbanki hefur sl. 3 ár byggt upp sérstaka fjármálaþjónustu fyrir
eignamikla einstaklinga sem gengur undir nafninu Einkabankaþjónusta.
Einstaklingar og fjölskyldur með umsvifamikil fjármál þurfa oft á yfir-
gripsmikilli fjármálaþjónustu að halda, sem í mörgum tilfellum er sam-
bærileg við fyrirtækjaþjónustu.
„Viðskiptavinir okkar eru í nánum tengslum við sinn eigin sérfræð-
ing innan bankans sem heldur utan um fjármál þeirra í heild í samstarfi
við endurskoðendur og lögmenn. Viðskiptavinurinn er að sjálfsögðu við
stjórnvölinn, en við leysum alla fjármálatengda þjónustu af hendi og
veitum ráðgjöf. Því geta viðskiptavinir okkar einbeitt sér að því að taka
stóru ákvarðanirnar. Ef svo ber undir köllum við svo inn rétta sérfræð-
inga ítengslum við hvert verkefni, utan og innan bankans," segir Jóhann
Úmarsson, forstöðumaður Einkabankaþjónustu.
„Aðalsmerki okkar í Einkabankaþjónustu er einstaklingsbundin ráð-
gjöf og mjög náið samstarf með okkar viðskiptavinum," heldur Jóhann
áfram. „Við leggjum okkur fram við að skilja til fullnustu hve mikla
áhættu sérhver viðskiptavinur er tilbúinn til að taka og að meta í því
Ijósi hvaða ávöxtunarleiðir séu heppilegar fyrir hvern og einn."
í samræmi við áhættumat er mótuð fjárfestingarstefna fyrir hvern
viðskiptavin. „Flestir viðskiptavina okkar gera eðlilega kröfu um að fá
sem besta ávöxtun og því nauðsynlegt að ávaxta fjármuni með öllum
þeim leiðum sem stórt fjármálafyrirtæki eins og íslandsbanki býður upp
á. Við skiljum okkar hlutverk vel og það er innbyggt í verklag okkar að
aðalmarkmiðið sé að verja höfuðstólinn fyrst og fremst, en að nýta
ávöxtunartækifærin þegar þau gefast," segir Jóhann að lokum. 35
ÍSLANDSBANKI
EIGNASTÝRING
Kirkjusandi ■ 155 Reykjavík
Símanúmer 440 4900 ■ Fax: 440 4910
www.isb.is ■ isb@isb.is
KYNNING