Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 31
NÆRMYND BJÖRN RÚRiKSSON
Ljósmyndun, útgáfa, fyrirlestrar, fjárfestingar,
leiðsögn og flug um landiö - Björn Rúriksson hefur
komið víða við, nú síðast hefur hann stofnað til
útgerðar á jyrirtækjaþotu til að auðvelda
Islendingum að fara á fundi erlendis og til að hér
megi vera til taks farkostur, m.a. vegna bráðnauðsyn-
legra líffæraflutninga og annarra öryggissjónarmiða.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Björn Rúriksson er einlægur ofurhugi sem hefur tekið
myndir og selt í erlend blöð og tímarit, gefið út bækur um
íslenska náttúru, haldið fyrirlestra erlendis og lóðsað
erlenda ferðamenn um náttúru Islands. Hann hefur líka stundað
ijárfestingar af ýmsu tagi - byijaði reyndar á því um miðjan
níunda áratuginn áður en ijármálamarkaður tók að þróast hér á
landi - og hefur nú síðast fengið norska athafiiamenn og íslenska
Jjárfesta til liðs við sig um kaup og rekstur á meðalstórri fyrir-
tækjaþotu, átta sæta Cessna Citation Excel með fundaaðstöðu
um borð. Björn á Eignarhaldsfélagið Maris, sem rekur þotuna
ásamt Jarðsýn, Sjólaskipum og Venus, til helminga á móti
norska flugfélaginu Sundt Air. Það rekur sex þotur í Noregi og
er með aðstöðu á Gardermoen-flugvelli við Osló.
Uppruni Björn Rúriksson er fæddur í Reykjavík 11. nóvem-
ber 1950. Foreldrar hans eru Rúrik Haraldsson leikari og Anna
Sæbjörnsdóttir, hönnuður og húsmóðir. Hún er látin. Björn er
elstur þriggja systkina. Bróðir hans heitir Haraldur Steinn flug-
umferðarstjóri, fæddur 1959, og systir þeirra heitir Ragnhildur,
fædd 1964. Hún er leikkona og búsett í Bandaríkjunum. Björn
ólst upp á Hverfisgötunni og svo í Sólheimunum í Reykjavík
fram til 1963 að fjölskyldan flutti í húsið Bakka á Seltjarnarnesi.
Björn var sendur í sveit á sumrin víða um land, m.a. ijögur
sumur í röð í Skagafirði, en gat aldrei notið dvalarinnar sem
skyldi vegna ofnæmis.
Æska Björn Rúriksson var afskaplega forvitinn krakki sem
hélt sig yfirleitt í námunda við fullorðna eða sér eldra fólk og
fylgdist með því sem þar fór á milli. Rúrik Haraldsson leikari,
faðir Björns, segir að hann hafi verið kotroskinn, fróðleiksfús
og snemma andlega þroskaður enda hafi hann fengið orða-
forða af því að hlusta á eldra fólk. Björn þjáðist mjög af exemi
og astma í æsku, dvaldist langdvölum á sjúkrahúsum og
gekkst undir ýmsar meðferðir, bæði hjá hefðbundnum
læknum og óhefðbundnum. Rúrik rifjar upp að Björn hafi verið
svo slæmur af exemi á höndum sem lítill drengur að þau
hjónin hafi skipst á að ganga um með hann á nóttunni, hann
hafi ekki getað sofið út af exeminu. „Svo eltist þetta smátt og
smátt af honum en astminn hélt innreið sína,“ segir hann.
Björn var góður stóri bróðir. Hann var lítið í íþróttum í æsku
heilsufarsins vegna. Besti vinur hans í Sólheimunum hét Björn J.
Björnsson, sem í dag rekur Pústþjónustu BJB í Hafiiarfirði.
Nafnarnir náðu vel saman við grúsk í efnafræði, eðlisfræði og
tæknimálum og stundum leyfðu þeir Haraldi S. Rúrikssyni,
bróður Björns, að vera með. Björn J. átti heima á sjöundu hæð í
blokkinni númer 23 við Sólheima og Björn Rúriksson í þríbýlis-
húsinu númer 18 hinum megin við götuna. Einhveiju sinni
bjuggu þeir til kláf með þvi að strengja vír milli húsanna og sendu
svo skilaboð á milli. Kláfurinn var i notkun í nokkra mánuði.
„Þetta er lýsandi fyrir það hvernig hann hugsaði, hann þurftí
alltaf að yfirstíga erfiðleikana og prófa eitthvað nýtt,“ segir
Haraldur. Þegar Björn flutti á Seltjarnarnesið fór sambandið við
gömlu félagana smám saman að rofna en um 17 ára aldurinn
voru nafnarnir þó enn í góðu sambandi. Björn Rúriksson var
þá þegar kominn með ferðabakteríuna og farinn að unna
landinu mjög. Hann var sömuleiðis kominn með mynda-
bakteríu en Guðmundur Arnason tannlæknir, sem er kvæntur
Björn Rúriksson
Fæddur 11. nóv. 1950 i Reykjavík
Menntun:
Fyrsta starfið:
Feriil:
Cand. oecon. (1980), BS í jarðfræði (1981), réttíndi sem
einkaflugmaður (1976) og atvinnu- og blindflugsréttíndi
(1987).
Sendill hjá EldingTrading Company 12 ára gamafl. Fékk um
1.000 krónur á mánuði.
Leiðsögumaður, ljósmyndari. Hefur gefið út bækur og
skrifað i blöð og tímarit. Hefur haldið ljósmyndasýn-
ingar innanlands og erlendis. Hóf ijárfestingar um
1985 og á hlut í mörgum félögum. Hefur nú stoihað
Maris ehf. um rekstur fyrirtækjaþotu frá íslandi.
Fyrsta myndavélin: Voigtlander.
Stærsta áskorunin: Að láta ekki hremmingar lífsins skemma ,
manninn í sjálfum sér.
Það sem hefur hait mest áhrif á hann:
Náttúra íslands og sérstaklega sjórinn.
31