Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 32
Björn Rúriksson er frumkvöðullinn að stofnun flugfélagsins Maris ehf. í samstarfi við
aðra. Fyrirtækið á átta sæta þotu með fundaaðstöðu og veitingaaðstöðu um borð,
sviþaðri þeim sem sjást á þessum myndum.
Elínu móðursystur Björns, hafði gefið honum fyrstu mynda-
vélina. Björn J. minnist þess að á þessum árum hafi hann átt
jeppa og þeir æskuvinirnir hafi farið saman í ferðalög á honum
og þá hafi myndavélin gjarnan verið með í för. Björn Rúriksson
tilheyrir ‘68-kynslóðinni og hann tók tónlistina mjög skarpt,
hlustaði á Bítlana, var í „hljómsveit" og spilaði á rafmagnsgítar.
A háskólaárunum fór hann svo að safna flugtímum og þá tók
hann gjarnan Harald litla bróður og systurina Ragnhildi með í
flugferðir um landið.
Fjölskylda Björn er kvæntur Guðfinnu Aðalheiði Karlsdóttur
húsfreyju, fæddri 4. febrúar 1958. Þau eiga tvo syni, grunnskóla-
nemana Rúrik Karl, 15 ára, og Birki Örn, 8 ára. Þau búa á
Seltjarnarnesi.
Menntun Björn var ágætur námsmaður og honum gekk prýði-
lega í skóla þrátt fyrir erfið veikindi. Hann gekk í Austurbæjar-
skóla, Vogaskóla, lauk landsprófi frá Gaggó Vest, fór svo í
Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi 1972.
Hann fór í Háskóla Islands og lauk þaðan cand. oecon.-prófi frá
þjóðhagskjarna vorið 1980. Hann var við nám í jarðfræði við H.I.
1978-1981. Hann fékk einkaflugmannsréttindi árið 1976 og
atvinnu- og blindflugsréttíndi 1987.
Ferill Björn starfaði hjá Ríkisútvarpinu og skrifaði
um flug og náttúruvísindi í Morgunblaðið með námi.
A árunum 1969-1972 fluttí hann inn ilmvötn frá
frönskum og ítölskum fyrirtækjum, t.d. Hermés,
Guy Laroche, Emilio Pucci og Paco Rabanne. Hann
vann að rannsóknum í mannaflahagfræði hjá Cessna
flugvélaverksmiðjunum í Kansas í Bandaríkjunum
1978. Hann byrjaði snemma að starfa að ferðamálum
og vann sem ferðamálafrömuður frá 1978. Hann hef-
ur flutt fyrirlestra um íslenska náttúru, samfélag og
jarðfræði við 60 háskóla og stofnanir í Bandaríkjun-
um og Evrópu og hefur haldið 16 ljósmynda- og
myndlistarsýningar víða um heim. í lok nóvember
opnar listasafn í Wassen í Austurríki sýningu á
myndlist Björns, sýningu þar sem dulmögn náttúr-
unnar eru kynnt áhorfandanum með hliðsjón af tengslum og trú
Islendinga á huldum vættum. Þessi sýning mun standa uppi
fram á haustið 2003. Björn vann sjónvarpsþættí um náttúru Is-
lands fyrir Ríkisútvarpið-Sjónvarp árið 1983. Hann var með flug-
rekstur í Reykjavík 1986-1993 og fór þá aðallega með erlenda
flölmiðlamenn um landið. Björn hefur unnið að bókaútgáfunni
Jarðsýn á Seltjarnarnesi ásamt konu sinni frá 1986. Hann hefur
unnið ýmsar greinar um ísland í innlend og erlend tímarit, m.a.
Smithsonian Magazine og Time-Life, og selt mikið af myndum í
erlend blöð, bækur og tímarit. Björn er í dag athafnamaður og
lausamaður í ýmsum verkefnum. Hann tekur tíl að mynda enn
að sér leiðsögn erlendra ferðamanna og fær alltaf saman hópinn,
Svisslendinga og Ameríkana, á hverju ári og ferðast með þá um
landið. Hann er stofnandi og stjórnarmaður flugfélagsins Maris
ehf. Helmingseigandi Maris er Sundt AS, félag í eigu Norð-
mannsins Petter C. G. Sundt, en hann er mikill athafna- og stór-
eignamaður, á m.a. 30 prósent í öðru stærsta skipafélagi á Norð-
urlöndum, Bergesen Iine. Félagið á 121 skip, sem ná allt að 350
þúsund tonna stærð, og innan skipastólsins er stærsti gasflutn-
ingaskipafloti í heimi, alls 80 skip.
Fjárfestingar Björn byijaði að ijárfesta fyrir tæplega 20 árum
bæði innanlands og erlendis. Hann hefur verið meðeigandi og
NÆRMYND BJÚRN RURIKSSON
Björn Rúriksson er ævintýramaður,
afskaplega orkumikill og hug-
myndaríkur athafnamaður sem fær
mikið af nýjum hugmyndum og
kemur þeim í framkvæmd. Vinir
hans lýsa honum sem mjúkum
manni, góðgjörnum, Ijúfum,
brosmildum og trúuðum, manni
sem hefur sterka trú á sjálfum sér.
Björn er ræðinn einfari sem á auðvelt með mannleg samskipti. Hann er opinn og einlægur
en þó frekar lokaður á eigin hag og ræðir fyrst og fremst um þjóðmál og áhugamál sín.
32