Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 39
Arni Vilhjálmsson, stjórnarformaður
Granda og starfandi forstjóri. Hann hejur
ráðið fjármálastjóra í Jyrirtækið og líklegt
þykir að hann snúi sér að því að ráða nýjan
forstjóra eftir nokkrar vikur.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Isfélagsins í Vestmannaeyjum og
Tryggingamiðstöðvarinnar, situr í stjórn Rá-
eyrar sem keyþti nýlega stóran hlut i Þormóði
ramma-Sœbergi affjárfestingafélaginu Afli.
Jón E. Friðriksson, framkvæmdastjóri Fisk-
iðjunnar Skagfirðings. Fiskiðjan er sterk í S-
hóþnum svokallaða.
Hugsanlegt er að Samherji haldist sjálfstæður og hin fyrirtækin þrjú verði
sameinuð í eina heild en þó þykir jafnvel líklegra að Samherji og Hrað-
frystistöðin verði sameinuð og svo Síldarvinnslan og SR Mjöl.
Árni Vilhjálmsson þykir óútreiknanlegur, bráðsnjall og algjör
reynslubolti í viðskiptum en sumir telja að hann hafi einangrast
nokkuð upp á síðkastið. Einnig er hugsanlegt að það vinni gegn
12 fyrirtæki
ráða helmingi þorskígildiskuótans
Samherji hf........................................... 7,33%
(er 13,7% ef kuóti Samherja og Hjalteyrar, Síldaruinnslunnar 2,8%, Hraðfrysti-
stöðuar Pórshafnar 0,44% og 1,5% SR Mjöls er lagður saman. Inni í samstæðu
Síldaruinnslunnar er Barðsnes með 0,28%).
Eimskip.............................................. 11,60%
(5,22% ÚA, 4,83% HB og 1,75% Skagstrendingur)
Þorbjörn-Fiskanes hf.................................. 4,88%
Grandi hf............................................. 4,80%
(Ef 0,44% Faxamjöls tekin með þá 5,24%)
Þormóður rammi-Sæberg................................. 4,64%
Hraðfrystihúsið-Gunnuör hf............................ 3,21%
tfísir hf............................................. 2,92%
Fiskiðjan Skagfirðingur hf............................ 2,80%
Vinnslustöðin......................................... 2,79%
Síldarvinnslan........................................ 2,67%
ísfélag Vestmannaeyja hf.............................. 2,54%
Skinney-Þinganes...................................... 2,18%
(í heildina 3,04% með huóta Eskeyjar og Hafdísar)
Heimild: Fiskistofa.
honum hve náið samstarf hann hefur með Kristjáni Loftssyni,
stjórnarformanni Kers, sem aftur tengist S-hópnum. Arni hefur
lengi kennt viðskiptafræði við Háskóla íslands og gjörþekkir
geirann en hefur mjög ákveðnar skoðanir. Frjáls verslun hefur
heimildir fyrir því að hann vilji nú nota tímann og tækifærið til
„að taka til“ í fyrirtækinu. Árni er sjötugur að aldri. Ekki þótti
óeðlilegt að hann skyldi setjast í forstjórastólinn fyrst eftir brott-
hvarf Brynjólfs en nokkuð kom á óvart að hann skyldi ekki fara
fljótlega að leita sér að forstjóra. Þá ráku menn upp stór augu
þegar hann auglýsti eftir Jjármálastjóra í sitt forstjóralausa fyrir-
tæki fyrir tæpum mánuði en það hefur þótt eðlilegur gangur
mála í svona tilvikum að ráða fyrst forstjóra og láta honum svo
eftir að ráða ljármálastjóra. Árni mun hinsvegar telja það ágætan
gang mála að ráða fyrst Jjármálasljóra sem hentar vel honum
sjálfum og fyrirtækinu og snúa sér síðan að ráðningu forstjóra á
næstu vikum að loknu leyfi erlendis. Nýr flármálasljóri Granda
er Jóhann Siguijónsson, fv. bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og er ekki
sjálfgefið að hann verði staðgengill forstjóra heldur er hugsan-
legt að einhver annar úr Granda verði fyrir valinu.
Grandi 09 Grindavík? Hvað sameiningu Granda við önnur
fyrirtæki varðar er rétt að minnast þess að Grandi er vel rekið
fyrirtæki, hvort sem kemur til sameininga eða ekki, og gríðar-
lega öflugt. Rétt er að minnast þess að Grandi á 100 prósenta
eignarhlut í Faxamjöli. Svo sterkt fyrirtæki getur bæði samein-
ast öðru fjárhagslega sterku fyrirtæki eða nýtt sína eigin
sterku íjárhagsstöðu með því að sameinast fyrirtæki sem ekki
stendur jafn vel að vígi Jjárhagslega. Grandi seldi nýlega hlut
sinn í Þormóði ramma-Sæbergi. Þá eignaðist Grandi stóran
hlut í Eimskip við sameiningu HB og Eimskips. Sá hlutur er
alltaf auðseljanlegur þannig að Grandi hefur tvímælalaust getu
til að fara í stækkun. Grandi á 14 prósent í HG og 11,5 prósenta
hlut í Isfélaginu í Vestmannaeyjum og í rauninni mælir margt
með samruna á milli þessara síðarnefndu en ekki er gott að
39