Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 44

Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 44
Vaki er eitt þeirra fyrirtækja sem byrjaði sem rannsóknauerkefni en hefur síðan þróast og þroskast. Núna heitir fyrirtækið Vaki- DNG og forstjóri þess er Hermann Kristjánsson sem hér sást á mynd með Vilhjálmi Lúðuíkssyni, framkuæmdastjóra RANNÍS. Mynd: Geir Ólafsson Oft er spurt um hlutverk Rannsóknarráðs íslands - RANNÍS. í lögum segir: „Að treysta stoðir íslenskrar menningar og atvinnulífs með því að stuðla að markuissu vísindastarfi, tækni- þróun og nýsköpun." í raun snýst þetta einfaldlega um samkeppnis- hæfni íslands á alþjóðavettvangi, - menningarlega og efnahagslega. „Þekkingarþjóðfélagið" er hugtakið sem menn nota nú gjarnan til að einkenna þjóðfélög Vesturlanda. Það vísar ekki eingöngu til tölvu- og upplýsingatækni og hátækniiðnaðar heldur til þess að djúp þekking á öllum sviðum og uiðeigandi tækni er forsenda allrar framleiðslu, þjón- ustu og huers kyns ákuarðanatöku hjá einkaaðilum og hinu opinbera. Afkoma, farsæld og hagsæld þjóða er háð þuí að þekking sé byggð upp og notuð til heilla fyrir atvinnulíf og menningu. Viðfangsefni Rannsóknarráðs er að sjá til þess að (slendingar 44 stundi öflugar og alþjóðlega samkeppnishæfar vísindarannsóknír, nýti takmarkað fé vel í því skyni og sameini kraftana um mikilvæg verkefni sem treysti þjóðarhag. f þessu skyni er samkeppni um styrki, þar sem hinir hæfustu fá, sem og stuðningur við þátttöku okkar góðu vísindamanna í alþjóðlegu samstarfi á sviði vísinda og tækni, afar mikilvægt tæki. „Okkar hlutverk er afar fjölþætt þar sem við sjáum ekki aðeins um að úthluta styrkjum heldur erum við einnig stjórnvöldum til ráðuneytis um stefnumörkun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar," segir Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri RANNÍS. Aflað er upplýs- inga um mannafla, starfsfé, viðfangsefni og árangur rannsóknarstarf- semi í landinu jafnframt því að kynna árangur vísindastarfsins. Alþjóðasamvinna er einnig viðamikill þáttur í starfinu.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.