Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 50
Forseti Búlgaríu, Georgy Parvanov, og forseti Islands, Olafur Ragnar
Grímsson, notuðu tækifærið og ræddu aukin samskipti þjóðanna.
Koma forseta Islands til Búlgaríu vakti mikla athygli og fékk ríkulega
umfjöllun í búlgörskum fjölmiðlum þrjá daga í röð.
bd i—þ' * * 1
Ám- j tii
h* v";;i
B V ' §~± f * 1
Verðir standa heiðursvörð í forsetahöllinni í höfuðborg Búlgaríu, Sofiu.
Sama hversu fín verksmiðjan er... Þessir staðlar eru ekki bara
um húsnæði og tæki heldur ekkert síður um mannlega þáttinn;
að hafa öguð vinnubrögð. I flestum tilvikum eru fyrirtæki miklu
sneggri að reisa nýja verksmiðju og kaupa tæki; að sjá um harða
pakkann (hardware), en að hnýta slaufuna utan um mjúka pakk-
ann (software), koma öguðum og stöðluðum vinnubrögðum á
við innkaup, framleiðslu, pökkun og sölu. Með öðrum orðum;
það er sama hversu fín verksmiðjan er, séu starfsmenn ekki
aldir upp við öguð vinnubrögð og vinni þeir ekki eftir gæða-
stöðlum þá fæst engin vottun. Gangi allt eftir hjá Balkanpharma
þá fæst GMP-vottunin í apríl á næsta ári. Það eru tímamörkin
sem Pharmaco-menn hafa sett sér.
flð vera eða vera ekki... Pharmaco-menn lita svo á að án GMP-
vottunar í verksmiðjunum í Búlgaríu sitji þeir eftir í sam-
keppninni og nái ekki metnaðarfullum markmiðum sínum um
stóraukna sölu á lytjum frá Búlgaríu á markaði í Austur-Evrópu,
Rússlandi og Vestur-Evrópu. GMP-vottunin sé því fyrir
Pharmaco spurning um að vera eða vera ekki. Þótt nýja verk-
smiðjan hafi kostað 1,4 milljarða króna þá er Pharmaco þegar
búið að kosta talsverðu meira til í Búlgaríu til að GMP-vottunina
í apríl nk. fáist. Um áramótin verður upphæðin, sem varið hefur
verið til þessara mála, komin í 3,6 mifljarða króna (40 milljónir
dollara) og endar örugglega ekki undir 5,4 milljörðum króna (60
mifljónum dollara) þegar aflt verður tínt til vegna nýrra og agaðri
vinnubragða og nýs húsnæðis. Þetta er mikið fé og mikil Ijárfest-
ing í gæðum. Vígslan á nýju verksmiðjunni í Búlgaríu var þvr ekki
bara einhver vígsla á húsnæði, hún var miklu frekar táknrænt
skref um aukin gæði og framfarir í lytjaiðnaðinum í Búlgaríu. Það
var því engin furða þótt biskup legði sig allan fram í blessun sinni
og Kktist um tíma æstum verðbréfasala í Kauphöflinni í Wafl
Street, svo oft nefndi hann Pharmaco á nafn og baðaði út hönd-
um. Þegar Tafla 3 verður tekin í notkun eftír áramótin verður
strax hafist handa við að endurgera Töflu 2, aðra þeirra tveggja
töfluverksmiðja sem fyrir eru í Dupnitza. Hún þarf að ganga í
endurnýjun lífdaga og verður væntanlega tilbúin fyrir blessun
biskups seint á næsta ári. Biskup hefur gefið tóninn.SH
KOMA FORSETANS; SKÝR SKIIABOÐ
að var býsna sterkt hjá Pharmaco-mönnum að fá Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Islands, til að fara út til Búlgaríu
og opna nýju verksmiðjuna í Dupnitza ásamt Georgy
Parvanov, forseta Búlgaríu. Eftir að hafa flutt ræður klipptu
þeir báðir á borðann og brutu brauð að hætti rétttrúnaðar-
kirkjunnar. Koma forsetans og fylgdarliðs undirstrikaði vel
fyrir Búlgörum hve Pharmaco-mönnum er mikil alvara í að
byggja upp lyfjaiðnað sinn í landinu. Skilaboðin voru í raun
þau að Pharmaco væri komið til að vera í Búlgaríu og að fyrir-
tækið væri að setja milljarða króna í uppbyggingu og endur-
50