Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 85
V,
Á skíðum á Ítalíu
Það er ævintýri líkast að fara á skíði til
ítaliu segja þeir sem reynt hafa og
stemmingin engu lík. Jólaferðirnar
hafa yfir sér ákveðinn blæ sem ekki næst
í öðrum ferðum en víst er að bæði fjöl-
skyldufólk og aðrir skemmta sér vel.
Örn Kjærnested er fararstjóri hjá
Úrval Útsýn hefur farið margar ferðir
með skiðafólk til Ítalíu. „Þessar ferðir
henta fólki á öllum aldri og þó svo
viðkomandi hafi enga reynslu af skíða-
mensku skiptir það ekki máli,“ segir
hann. „Það eru góðir skíðaskólar fyrir þá
sem vilja og þurfa og eftir að hafa verið
viku á skíðum eru allir orðnir nokkuð
góðir og alveg örugglega komnir með
skíðabakteríuna í
Það er oft glatt á hjalla eftir að maður
er búinn að renna sér allan daginn en þó
er fólk auðvitað þreytt. „Menn skemmta
sér vel og stemmingin er oft frábær, með
söngi, dans og skemmtilegum uppá-
komum en fólk fer eigi að síður snemma í
háttinn ef það ætlar sér að halda áfram
daginn eftír. Annað er einfaldlega ekki
hægt þvi þetta er talsvert likamlegt álag
um leið og að vera frábær skemmtun.“
Örn segist eiga sér uppáhaldsskíðastað
á ítaliu. „Það er Madonna," segir hann.
„Þar er líka uppáhaldsmatsölustaðurinn
minn. Sá heitir Hermetas og er „biohotel",
þ.e. þar eru engin kemisk efiii notuð og allt
mjög vistvænt Ég borða nú samt oftast á
LeRoy sem er pizzastaður og uppáhalds-
pizzan er gorgonzola með ruccolakáli.
Annars úir og grúir af matsölustöðum og
kaffihúsum, hvort heldur sem er í ijöllunum eða bæjunum og
enginn skortur á mat. í Madonnu er svo uppáhaldsbrekkan mín,
Tombabrekkan en hún er frekar stutt brekka en brött. Ef menn
ná ekki að stoppa á réttum stað enda þeir á húsi sem er neðst í
henni og það ekki gott.“
f r
Ferbaskrifstofa Islands, Urval
Útsýn, býður frábærar skíðaferð-
/
ir til Italíu þar sem stemmning-
in er engu lík. Einn kunnasti
staðurinn er Madonna.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur.
Alpastemmingin er allsráðandi í litlu
þorpunum og fyrir þá sem koma í fyrsta
sinn er þetta mikil upplifun. „Við bjojum
fyrsta daginn á því að skiða yfir svæðið og
sýna fólki hvar gott er að renna sér,“ segir
Örn. “ Þannig kynnist fólk aðstæðum og
svolítið hveiju öðru um leið. Hóparnir eru
misstórir og ég man eftír einum 60 manna
hópi sem var mjög skemmtilegur. I
honum var meðal annars organistí, Reynir
að nafni. Það kom auðvitað fyrir að fólk
þurftí að bíða nokkuð þar sem hópurinn
var stór og Reynir hélt þá uppi stemm-
ingu með þvi að stjórna íjöldasöng sem
mæltist vel fyrir bæði hjá þeim sem í
hópnum voru og öðrum í brekkunni.“
Þó tjölskyldan sé ekki saman allan
daginn, geta börnin og foreldrarnir verið
í skíðakennslu á sama tima en í sitt
hvorum hópnum. Ferðir eru yfirleitt
skipulagðar þannig að börn eldri en 8
ára geta auðveldlega farið með. I ferð-
unum er farið út að borða og umhverfið
skoðað. Við förum í skipulagðar ferðir
til nágrannaþorpa í þessum ferðum
myndast oft mjög góð stemmning og
þær eru sniðnar fyrir alla þvi hægt er að
velja um mismunandi brekkur bláar,
rauðar eða svarta allt eftír getu hvers
og eins þær enda svo allar á sama stað.
I þessum ferðum reynum við að
leiðbeina þeim sem eru ekki komnir
með fullt vald á skíðamennskunni eða
þjást af lofthræðslu.
Ekki má gleyma Islandsvininum á
hótel Montana, Finnanum Kari og konuninni hans Söndru, sem
er ítölsk, en hjá þeim hittumst við alltaf í lok fyrsta dagsins í
Lappatjaldi við varðeld og fáum okkur heitt rauðvin eða kók, þá
er oft tekinn upp gítarinn og þegar menn eins og Eyvi og félagar
eru með í för þá upplifir maður gömlu Kerlingartjallastemning-
una. Einnig er hægt að fara á hundasleða. Q3
Örn Kjœrnested erfararstjóri hjá Ferbaskrifstofu
ferðir meb skíðafólk til Italíu.
85