Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 94
Svanbjörn Thoroddsen, framkvæmdastjóri Medcare Flögu,
bendir á slóðina http://laughbucket.com/bullshit/ en þar er
ýmislegt skemmtilegt að finna um enska tungu.
Mynd: Geir Ólafsson
Hátæknifyrirtækið Medcare Flaga stækkaði mikið
þegar Flaga tók yfir bandaríska keppinautinn
Medcare og eru í dag 110 menn starfandi hjá
fyrirtækinu hér á landi, í Bandaríkjunum og Hollandi.
Svanbjörn Thoroddsen, forstjóri Medcare Flögu,
miðlar hér af nokkrum áhugaverðum vefslóðum.
www.greenwichmeantime.com Vefslóð sem sýnir
klukkuna á mismunandi stöðum út frá Greenwich
Meantime sem er okkar tími.
FYRIRTÆKIN fl NETINU
www.ddnfoss.is ★★
£kkert galinn kynningar-
vefur, sem þó er ekki fullbúinn
því að verðlistann vantar.
Fegurðin er svo sem ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Vefurinn
er prýðilega upp byggður og
einfaldleikinn í fyrirrúmi. Stór
galli á gjöf Njarðar hve léleg
íslenskan er á stundum,
samanber „þitt eigið skilaboð“. Myndir á stöku stað og jafnvel teikningar.
Agætt að hafa tólin til hægri á forsíðunni þó að þau séu kannski ekkert
rosalega mikið notuð. 33
www.stmdM\\rM+++
i ■£. ,a jl.jlj. a.i é * A..Í.
^árfestingafélagið Straumur
er með býsna fallegan vef,
einkar vel skipulagðan,
einfaldan og smekklegan
sem fullnægir í öllum aðal-
atriðum helstu upplýsinga-
þörfum án þess að vera með
einhveijar langlokur. Vefur-
inn er þó alls ekki fullkom- mn:i;.iui!—«
inn. Hann virðist ókláraður að einhverju leyti, t.d. birtast engir
tenglar þó að slíkur kostur sé fyrir hendi. Hins vegar birtast tenglar
undir ljármálum. Eitthvað á eftir að vinna betur í þessum annars
fallega vef. SH
www.ismdY.is +i
WWW.dnb.com Dun&Bradstreet er sterkt alþjóðlegt
matsfyrirtæki í Bandaríkjunum. A þessari slóð get ég
gert fyrirspurnir um fyrirtæki hér og þar í heiminum
og það hef ég nýtt mér mikið þegar ég skoða tækifæri
eða geri samninga við nýja birgja eða samstarfsaðila.
WWW.bom2Ski.com Eg er mikill áhugamaður um
skíði, hef æft skiði og setið í stjórn Skíðasambandsins.
Ég fer gjarnan inn á þessa slóð þegar ég velti fyrir mér
skíðaferðalagi. Þetta er vefslóð um skíðastaði, veður og
allt sem skiptir máli fyrir skíðafríið erlendis.
WWW.Ski.iS Ef ég er að velta fyrir mér að fara á skíði
hér heima þá fer ég annaðhvort á www.ski.is, sem er
Skíðasambandið, eða www.esso.is en sá vefur er með
veðurmyndavél og birtir ýmsar nytsamlegar upplýsingar
um opnun skíðasvæðanna, veður og annað þess háttar.
http://laughbucket.com/bullshit/ í samskiptum við
bandaríska samstarfsaðila og ráðgjafa eru gjarnan
notuð háfleyg orð og langar setningar um einfalda hluti
til þess að umfjöllunin virðist gáfulegri. Mér hefur því
oft þótt skemmtilegt að skoða þennan vef, sem m.a.
gerir grín að þessu með því að búa til setningar af
handahófi úr mikið notuðum frösum. SH
•Jvartur, blár og drunga-
legur er hann útlits vefurinn
hjá Ismar en þó ágætur til
síns brúks, svo framarlega
sem menn eigi erindi á hann
eða þekki fyrirtækið því að
ekki er hann beint aðlaðandi
fyrir þá sem eru að kynnast
fyrirtækinu í fyrsta sinn.
Upplýsingarnar standa fyrir sínu, á forsíðunni er ágætis útlisting á
fyrirtækinu, starfsemi þess og aldri og nánar fást upplýsingar um
þjónustuna með því að smella á tengil. Hvað vörur og umboð snertir
þá er það ekki í löngu máli, aðeins birt mynd og tenglar. Upplýs-
ingar um starfsmenn eru hinsvegar góðar með starfsheitum,
netföngum og símanúmerum. 53
★ Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★ ★★ Góður
★ ★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is
94