Frjáls verslun - 01.09.2002, Qupperneq 98
Hildur Hörn Daðadóttir, viðskiptastjóri hjá Karli K. Karlssyni: „Sambýlismaður minn hefurverið ötull við
að fá mig með sér í stangveiði víðs vegar um landið og er það fullkomin ajslöþþun eftir langar göngur
sumarsins. “
«W~ - —
FÓLK
klukkustunda fjarlægð.
Einnig er mikið af nátt-
úruperlum í nágrenni Las
Vegas eins og Red Rock og
Valley of Fire. Hinsvegar var
ekki hægt að stunda langar
göngur á þessu svæði vegna
gífurlegs hita og hættu á
villtum dýrum eins og úlfum,
íjallaljónum, snákum og
hættulegum skordýrum.
Oðru máli gegnir hér á landi
þar sem maður berst stöðugt
við veðurguðina en nýtur
fulls öryggis í óbyggðum,
hvort heldur eru Lónsöræfi
eða Hornstrandir þar sem
villtir refir narta í matar-
birgðir manns í versta falli.
Sambýlismaður minn hefur
verið ötull við að fá mig með
sér í stangveiði víðs vegar um
Hildur hjá Karli K. Karlssyni
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
JT
Eg hóf störf hjá Karli K.
Karlssyni hf. í október
1996 og hef því starfað
hjá fýrirtækinu í 6 ár,“ segir
Hildur Hörn Daðadóttir, við-
skiptastjóri hjá Karli K Karls-
syni. „Starfið er að mörgu
leyti svipað enn, en um-
hverfið og iyrirtækið sjálft
hafa tekið talsverðum stakka-
skiptum á þessum árum.
Eg er viðskiptastjóri yfir
áfengi og sé um léttvínsdeild
fyrirtækisins. Eg hef komið
að flestum áfengisvörumerkj-
um fýrirtækisins en með
árunum hef ég einbeitt mér
að léttum vínum. Starf mitt
sem viðskiptastjóri felur í sér
mótun stefnu markaðsmála
auk yfirumsjónar með vöru-
merkjum og vöruúrvali. Eg
hef mikil samskipti við
erlenda birgja og jafnframt
þarf ég að fylgjast grannt
með neyslumynstri léttra
vína á erlendum mörkuðum.
Breytingar á neyslu er ævin-
týralega örar og því nauðsyn-
legt að fylgjast vel með þeim
stefnum sem ráðandi eru
hverju sinni. Sama má segja
um matargerðarlist, hver
breyting á þeim markaði
kallar á viðbrögð frá vínmark-
aðinum, því að samspil víns
og matar verður ætíð að vera
í jafnvægi. Island er stöðugt
að færast nær og nær því fjöl-
þjóðasamfélagi sem við áður
kynntumst aðeins í erlendum
stórborgum, neytendur gera
kröfur um aukið vöruúrval,
hvort heldur sem um er að
ræða matvöru eða vín. Áhugi
almennings á léttu víni er
stöðugt að aukast og fólk
opnara fýrir nýjungum."
Karl K Karlsson hf. flutti
vorið 1998 í sérhannað hús-
næði að Skútuvogi 5. Ári síðar
var ÁTVR gert skylt að fá
verðtilboð í vörur sínar miðað
við afhendingu í vöruhús
þeirra og þar með hætta eigin
innflutningi. Á þeim tíma hafði
Karl K. Karlsson stækkað
verulega - en við þessa breyt-
ingu hjá ÁTVR var ákveðið að
stækka húsnæðið enn frekar
svo hægt væri að mæta
þörfum ÁTVR. Samfara þeim
breytingum jókst starfs-
mannafjöldinn úr 18 í 50 og
umsvif fýrirtækisins jukust í
samræmi við það.
„Nýja húsnæðið og breytt
lagaumhverfi opnaði fýrir
okkur nýja möguleika og
sóknarfæri, - við höfðum nú
möguleika á að bjóða við-
skiptavinum okkar heildar-
lausn í mat og víni.“
Auk starfa sinna hjá Karli
K. Karlssyni situr Hildur í
stjórn áfengishóps Félags
íslenskra stórkaupmanna þar
sem málefni með verslun
áfengis eru rædd eins og sam-
skipti við ÁTVR, reglugerðir,
einstök frumvörp og lög.
„Eftir útskrift af náttúru-
fræðibraut Kvennaskólans í
Reykjavík hélt ég til Kaup-
mannahafnar og starfaði þar í
eitt ár en hóf síðan nám í hót-
elstjórnun við University of
Nevada, Las Vegas, og lauk
þar BS-gráðu í þeim fræð-
um,“ segir Hildur. „Dvölin í
Las Vegas var frábær á marg-
an hátt, þar naut ég áhuga-
mála minna í ríkum mæli
enda svæðið stórt og fjöl-
breytt. Það var einungis
klukkustunda akstur til
Mount Charleston sem bauð
uppá ágætt skíðasvæði auk
þess sem frábær skíðasvæði í
Utah voru einungis í nokkra
landið og er það fullkomin
afslöppun eftir langar göngur
sumarsins.
í dag stunda ég MBA-nám
í Global e-management við
Háskólann í Reykjavík og
útskrifast þaðan næsta vor.
Námið er í samvinnu við eina
fremstu háskóla Evrópu og
Bandaríkjanna og njótum við
góðs af þvi þar sem kennarar
námsins koma alls staðar að
og eru sérfræðingar í sínum
fögum. Þá er líka nauðsynlegt
að hafa alþjóðleg sjónarmið og
viðmið í því viðskiptaumhverfi
sem skapast hefur í dag. Eg er
í alþjóðlegri hópavinnu og
hefur það verið ævintýri líkast,
það að aðlaga sig mismunandi
vinnuaðferðum og menningu,
sem og að leysa úr örðug-
leikum sem upp kunna að
koma þar sem hópmeðlimir
eru dreifðir um allar jarðir, -
viðsljarri hver öðrum.“
Sambýlismaður Hildar
Harnar er Þorvar Hafsteins-
son margmiðlunarhönnuður
en hann rekur fýrirtækið Birt-
ingaholt, sem sérhæfir sig í
hönnun og uppsetningu á
prentmiðlum, vefsíðum og
margmiðlun. [ffl
98