Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 6
RITSTJÓRNARGREIN
Kynjakvótar á stjórnir fyrirtækja
I blaðaviðtali var nýlega haft eftir varaforsæt-
isráðherra Svía, sem heitir Margareta Win-
berg, að sænska ríkisstjórnin hygðist setja
kynjakvóta á stjórnir fyrirtækja verði ekki
ijórði hver stjórnarmaður kona fyrir árið 2004.
Winberg hafði á orði að fyrirtæki yrðu að
standa við orð sín um að setja konur í leiðtoga-
hlutverk. Sex prósent þeirra sem eiga sæti í
stjórnum fyrirtækja, sem skráð eru í sænsku
kauphöllinni, eru konur. A sama tíma og Win-
berg lét þessi orð falla um kynjakvótann og
reiði sænskra kvenna yfir því hve fáar þeirra
væru í stjórnum fyrirtækja urðu fjörugar
umræður í íslenskum ijölmiðlum um rýran hlut kvenna í efstu
sætum prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og var rætt
um að prófkjör flokksins hefði verið skref aftur á bak í jafnrétt-
ismálum. Um 35% þingmanna á Alþingi íslendinga eru konur
og þrír ráðherrar af tólf eru konur - eða íjórðungur ráðherra.
Ef horft er á íslenskt viðskiptalíf kemur í ljós að aðeins ein
kona er forstjóri í einu af hundrað stærstu fyrirtækjum lands-
ins og er það fækkun frá því sem var fyrir nokkrum árum. Þá
sitja sárafáar konur í stjórnum stórra íslenskra fyrirtækja.
Hins vegar sýnist sem konum sé að íjölga á meðal millistjórn-
enda, sérstaklega eru þær að verða áberandi sem starfs-
manna-, markaðs- og fræðslustjórar í fyrirtækjum. Þá hefur
verið upplýst að konur séu í meirihluta þeirra sem stunda
nám í viðskiptafræðum á Islandi. Varla þarf að minnast á ára-
tuga langa umræðu um launamun kynjanna; þ.e. að konur
hafi lægri laun en karlar fyrir sömu vinnu.
Kvennapúlitík Ú Villigötum En hvernig stendur á því að
færri konur eru í leiðtogahlutverki í stærstu fyrirtækjum
landsins en áður? Hefur ekkert áunnist frá kvennafrídeginum
haustið 1975 sem vakti athygli um allan heim og varð síðar
rótin að því að stofnaður var sérstakur stjórnmálaflokkur -
Kvennalistinn - utan um jafnréttisbaráttuna? Einhvern veginn
finnst manni margt hafa áunnist en dugir nokkuð að halda því
fram - tala ekki tölurnar sínu máli?
Ekki verður hjá því komist að spyija sig
að því hvort kvennapólitík og umræða um
jafnréttismál sé á villigötum bæði hér á
landi og erlendis - en orð frú Winbergs,
varaforsætisráðherra Svía, um sérstakan
kynjakvóta á stjórnir fyrirtækja benda
einmitt til þess. Eignarrétturinn er grund-
vallaratriði í kapítalísku þjóðfélagi og undir-
staða frelsi einstaklinga til athafna. Hlut-
hafar í almenningshlutafélögum hafa völd í
samræmi við eign sína. Það er brýnt að
rétturinn - sem fylgir eign - sé ekki af
mönnum tekinn! I samræmi við eignarrétt-
inn er óeðlilegt ef völd og réttur verða meiri í hlutafélagi en
ræðst af eign viðkomandi í félaginu. Það lítur afar einkenni-
lega út ef eiganda fyrirtækis er skipað samkvæmt lögum að
setja einhvern í stjórn fyrirtækisins sem hann vill ekki hafa,
hvort sem það er karl eða kona. Hluthafar, en þeir eru bæði
konur og karlar, kjósa sér stjórnir fyrirtækja á hluthafa-
fundum. Stjórnmálaflokkar, en í þeim eru bæði konur og
karlar, stilla upp listum, m.a. með prófkjörum þar sem leik-
reglur eru ákveðnar fyrirfram.
Burt með gamlar tuggur Afar mikilvægt er í jafnréttisbarátt-
unni að henda út klisjum og tuggum um „karlaheim“ og
„kvennaheim“ og einbeita sér þess í stað að því að horfa á fólk
sem manneskjur; einstaklinga. Það er munur á körlum og
körlum til ákveðinna starfa, konum og konum, manneskjum og
manneskjum. Langlíklegast til árangurs í baráttu beggja kynja
- einstaklinga - fyrir hærri launum og auknum tækifærum til
stjórnunarstarfa er aukin menntun, ræktun hæfileika, öflun
sérþekkingar, setning markmiða, aukinn sjálfsagi, aukinn
eldmóður og krafa við makann um aukið rými heimafyrir tíl að
takast á við kreijandi verkefni í starfi og leik. Allra síst er rétta
leiðin að setja lög á Alþingi um einhveija lögbundna kynjaskipt-
ingu á störf fólks. Vilji og metnaður hvers og eins er meira virði
en orð og lög reiðra stjórnmálamanna.
Jón G. Hauksson
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 64. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrtmur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
LJÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrimur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
V heimur
RtTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: ív@heimur.is
ÁSKRIFTARVERÐ: kr 7.700,-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr.
DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575
FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Gutenberghf.
LTTGREININGAR: Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
6