Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 23
FORSÍÐUVIÐTAL ÁGÚST OG SVEINN VALFELLS
ur verið alls konar spilling og því miður eimir enn eftir af
henni. Þegar völd stjórnmálamanna yfir atvinnulífinu minnka
hefur spillingin síður möguleika á að þrífast," segir Sveinn.
Valfells-íjölskyldan hefur verið óhrædd að taka þátt í ýms-
um ævintýrum, þar á meðal má nefna gullleit með kanadísku
fyrirtæki á norður- og norðvesturlandi fyrir einum áratug eða
svo. Ýmsum kann að finnast fjarstæðukennt að ætla að finna
og vinna gull á íslandi en Ágúst útskýrir að þegar heitt vatn
vellur upp úr iðrum jarðar beri það með sér undir þrýstingi
við hátt hitastig ýmis sölt af þungmálmum, t.d. gulli, silfri og
blýi. Þegar vatnið kólnar falla söltin út og þungmálmasölt
myndast sums staðar í berginu. Landið gliðnar sífellt meira í
sundur og gamla bergið færist utar. í þessu bergi er hærra
hlutfall af þungmálmum, þ. á m. gulli. Til að hagkvæmt sé að
vinna það segir Ágúst að gullinnihald þurfi að vera einn hlut-
ur af milljón og nokkrir slíkir staðir hafi fundist í leit
kanadíska fyrirtækisins en ekki í því magni að hagkvæmt sé
að vinna það.
„Þetta kanadíska fyrirtæki kom hingað af því að ísland var
algjör eyða á jarðfræðikorti heimsins með tilliti til málma og
þeim fannst áhugavert að reyna að fýlla upp í þessa eyðu,“
segir Ágúst.
Erum að breyta til Fasteignafélag Valfells-bræðra á í dag
Skeifuna 15 sf. þar sem Hagkaupsverslunin hefur verið til húsa
í áratugi, Vesturgarð hf. sem á og rekur fasteignina Kjörgarð
við Laugaveg, Faxafen 8 þar sem ýmis íýrirtæki eru til húsa, og
svo eiga Valfells-bræður rúm 12 prósent í Smáralindinni. „Við
höfum verið að fækka eignum,“ segja þeir. Agúst bætir við:
„Framtíðin felst í næstu kynslóð. Við viljum gefa henni sem
flesta valkosti. Við ætlumst ekki til þess að börnin okkar geri
það sama í lífinu og við gerðum sjálfir, ekki frekar en til þess
var ætlast af okkur eða föður okkar. Ekki ætlaðist afi okkar til
þess að faðir okkar yrði bóndi þó að hann væri það sjálfur.“
Samhliða umsjóninni um fasteignirnar hefur Ágúst starfað
áfram á sínu sérsviði sem ráðgefandi verkfræðingur. Hann hef-
ur nýlega fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum á nýrri aðferð til
förgunar kjarnorkuúrgangs.
Valfells-fjölskyldurnar hafa stundað verðbréfaviðskipti tölu-
vert á síðustu árum og komið að ýmsum iýrirtækjum. „Nú eru
breyttir tímar. Nú geta menn verið þátttakendur í félögum og
tekið þátt í viðskiptum á hlutabréfamarkaði án þess að vera
virkir í rekstri fyrirtækjanna. Við höfum verið að færa okkur
yfir í þetta,“ segja þeir og hafna því að vera að draga sig alfarið
út úr viðskiptum. „Við erum bara að breyta til. Við
erum að eldast og erum að draga okkur út úr dag-
legum rekstri að verulegu leyti. Við sjáum að árin
líða hratt og það eru líka ýmsir valkostir fyrir hendi
til ijárfestingar."
Atvinnuhúsnæði endist lengst Ágúst bendir á að
tímarnir breytist og mennirnir með, í fjárfestingum
borgi sig ekki að halda sig of lengi við sama hlut-
inn. „Maður þarf alltaf að leggja í eitthvað nýtt. Við
höfum gert það með því að ijárfesta meira í at-
vinnuhúsnæði. Það er það sem endist lengst. Stað-
setningin úreldist frekar en húsnæðið sjálft." segir
hann. Þeir telja að einingarnar í íslensku viðskipta-
lífi verði stærri og færri. Fjölskyldufyrirtækjum fari
ört fækkandi og stærri iýrirtæki fari í auknum
mæli á skrá á hlutabréfamarkaði. Ekki sjái fyrir endann á þeirri
þróun.
- Hvaða meginreglum hafið þið fylgt í viðskiptum ykkar í
gegnum tíðina?
„Meginreglan er að vera heiðarlegir og sanngjarnir. Heiðar-
leiki borgar sig,“ svarar Sveinn og Ágúst bætir við: „Heiðarleiki
skapar traust í viðskiptum. En það skiptir líka miklu máli að
skipuleggja og vinna eins góðar áætlanir og hægt er, skuldsetja
sig aldrei meira en maður þolir, taka aldrei stærri áhættu en
maður þolir að tapa. Þetta gefur hægan vöxt en jafnan. Það hef-
ur reynst okkur vel.“ Þeir telja ekkert óeðlilegt við það að
skulda svo fremi sem skuldirnar séu viðráðanlegar og lánið sé
tekið til að ijárfesta í einhverju sem gefur nægan arð.
Skilningsleysi meðal Stjórnvalda Þegar rætt er um það hvað
eftirminnilegast sé úr viðskiptalífi síðustu áratuga eru bræð-
urnir sammála um að það sé sú breyting sem hafi orðið á
íslensku þjóðfélagi. Áður iýrr geisaði óðaverðbólga, sem fór
upp í 130 prósent á ársgrundvelli þegar mest var, og vextir
voru neikvæðir, að taka lán borgaði sig ef hægt var að fá það.
Innflutningshöft voru á mörgum vörum og innflutningstollar
sömuleiðis, bæði á hráefni, vélum og tækjum tii framleiðslu.
Skilningsleysi segja þeir að hafi ríkt meðal stjórnvalda á efna-
hagsmálum. Þetta telja bræðurnir að hafi breyst til batnaðar,
ekki síst með EES-samningnum, auk þess sem menntun
íslendinga og þekkingu hafi fleygt fram. Af einstökum verk-
efnum er Sveini minnisstæð bygging Smáralindar. Þegar versl-
unarmiðstöðin var tekin í notkun jókst heildarverslunarhús-
næði á höfuðborgarsvæðinu um 10 prósent.
Umhverfis- og orkumálin eru Ágústi ofarlega í huga.
„íslendingar eru loksins farnir að gera sér grein fyrir þeim
möguleikum sem felast í því að nýta vatnsorkuna. Lengi vel
mættu slíkar hugmyndir andstöðu og nú er aftur að myndast
andstaða en það virðist helst vera hjá því fólki sem gleymir
hvaðan gott kemur. Fólk gleymir því að það er atvinnulífið sem
skapar möguleikana á því að standa undir velferðarþjóð-
félaginu. Samt er kapp best með forsjá og gæta verður jafn-
vægis mili framkvæmda og umhverfis," segir Agúst.
Sveinn bætir við að við lifum í síbreytilegum heimi þar sem
tæknivæðingin leiðir til æ meiri hnattvæðingar. „Við þurfum að
taka þátt í henni og erum reyndar þegar byrjuð með útrás
íslenskra íyrirtækja á alheimsmarkað.“ Œl
^Jeikomin
HOTEL
KEFLAVJK
...irUi stndttrinn t'id thirn'dllinn
Vatnsnesvegur 12-14 • 230 Keflavík • Sími 420-7000
Netfang: stay@kef.is • Heimasíða: www.kef.is
23