Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 25
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Byko, hefur náð völdum í Keri með þeim Kristjáni Loftssyni og Ólafi Olafssyni. Flestir eru á því að hann verði
næsti formaður bankaráðs Búnaðarbankans.
um 700 milljónir!
Hvers vegna seldi Hesteyri? Nokkrar ástæður eru fyrir því
að Þórólfur og samstarfsmenn hans í Hesteyri, Aðalsteinn Ing-
ólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði, og Jón
Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings á Sauðárkróki, ákváðu að kúvenda og fara með hlut Hest-
eyrar út úr Keri. Semja um lyktir skákarinnar í stað þess að ná
bæði Keri og VÍS undir sig.
Fyrir það fyrsta er S-hópurinn að kaupa Búnaðarbankann
og milljarðarnir frá Jóni Helga Guðmundssyni, eiganda Nor-
vikur og Byko, reyndust bráðnauðsynlegir til að af þeim
kaupum gæti orðið. Það mun þó ekki hafa ráðið úrslitum um
að Hesteyri seldi. Það er talið vega miklu þyngra að þeir þre-
menningar Þórólfur, Aðalsteinn og Jón Eðvald, hafi metið
stöðuna svo eftir allt strögglið og uppistandið, sem varð í
kjölfar beiðni Hesteyrar um hluthafafund í Keri, að þeir ættu
enga samleið með Ólafi Ólafssyni og Kristjáni Loftssyni innan
Kers. Sérstaklega mun hafa verið þungt hljóðið í Hornfirð-
ingnum Aðalsteini Ingólfssyni vegna þess máls. Ennfremur
er sagt að þeir Hesteyrarmenn hafi einnig talið fjárfestingu
sína betur tryggða innan VÍS og meti það sem sterkara fyrir-
tæki en Ker. Síðast en ekki síst; þeir höfðu jú um 700 milljónir
upp úr krafsinu. Það var það yfirverð sem Norvik varð að
greiða til að fá hlut og völd Hesteyrar í Keri. Peningar tala,
ekki satt?
Að vísu er ekki búið að telja upp úr kössunum í þessum við-
skiptum Hesteyrar og engan veginn víst hvernig gengi hluta-
bréfa í Keri og VÍS þróast á næstu misserum. Ef gengi bréfa í
Keri fer upp og bréf í VÍS fara niður þá saxast auðvitað á
þennan hagnað Hesteyrar af viðskiptunum. I sjálfu sér er þetta
þó ekki flókin stærðfræði; Hesteyri keypti 22,5% hlut sinn í Keri
í endaðan ágúst á 2,7 milljarða króna. Norvik keypti 25% hlut í
VÍS af Keri á 3,4 milljarða. Skipt var á þessum tveimur hlutum
á sléttu. Þarna er um 700 milljóna króna munur.
Má meta það svo að Hesteyri hafi selt bréf sín í Keri á geng-
inu 15,3 sem það keypti í endaðan ágúst á genginu 12,1. Gengi
bréfa í Keri hafa verið á bilinu 11 til 12 á undanförnum vikum
og mánuðum. Vissulega er VÍS ekki búið að festa sig í sessi á
almennum hlutabréfamarkaði og óvíst hvernig gengi bréfa í
félaginu þróast og hversu vel gangi að gera það að virku
almenningshlutafélagi með dreifða eignaraðild, eins og stefnt
er að. En þetta var verðið í þessum viðskiptum. Svona var
ísland þann daginn. Markaðsverð VÍS í Kauphöll Islands hefur
undanfarna mánuði verið um 14,0 milljarðar á meðan markaðs-
verð Kers hefur verið um 11,8 milljarðar.
25