Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 28
KflUPIN Á BÚNAÐflRBflNKANUIVl
Því hefur verið haldið
fram að í bankaráðið
setjist þeir Þórólfur
Gíslason, fyrir hönd
VÍS, Hannes Þór
Smárason, fyrir hönd
Kers, og einhver
erlendur fulltrúi
franska bankans. Jón
Helgi Guðmundsson
situr þegar í banka-
ráði Búnaðar-
bankans.
Margeir Daníelsson, framkvæmdastjóri Sam-
vinnulífeyrissjóðsins og stjórnarmaður í Keri, á
hluthafafundi Kers.
Finnur Ingóljsson, forstjóri VÍS, var fulltrúi VÍS
á hluthafafundi Kers.
Stantla utan viðEglu
að vekur vissulega athygli og sýnir þau þáttaskil sem hafa
orðið innan S-hópsins að Þórólfur, sem er stjórnarformaður
VIS, kýs að fara ekki spyrtur við Olaf og Ker inn í Búnaðarbank-
ann heldur lætur hann VÍS standa utan við Eglu ehf. Sömuleiðis
kýs Samvinnulífeyrissjóðurinn að standa utan við Eglu ehf. við
þessi kaup. Þetta gera félögin sjálfsagt til að eiga beinan hlut í
Búnaðarbankanum sem er jú skráður í Kauphöll íslands. Þessir
hlutir verða íyrir vikið seljanlegri og áhættan minni en ef þeir
væru með óbeina eignaraðild að bankanum í gegnum Eglu.
Komi til þess að Búnaðarbanki og VIS renni saman í eitt félag,
eins og stundum hefur verið rætt um, kemur hin beina eignar-
aðild sér sömuleiðis vel. Markaðsverð Búnaðarbankans er
núna um 24 milljarðar og VIS um 14 milljarðar og þetta yrðu þá
líklegast skiptihlutföllin yrði þessum tveimur íýrirtækjum rennt
saman. Þó verður að ætla að eftir uppgjör Þórólfs og Olafs innan
S-hópsins og sú ákvörðun þeirra að verða ekki samferðarmenn
innan Kers séu líkurnar minni en meiri á að VIS og Búnaðar-
banki sameinist. Raunar bendir ýmislegt til að VIS undir stjórn
Stvsti hluthafafundur á íslandi
Hinn margumtalaði hluthafafundur í Keri, sem Eignarhalds-
félagið Hesteyri óskaði upphaflega eftir, var haldinn á
Grand Hóteli Reykjavík miðvikudaginn 27. nóvember sl.
Þetta er líklegast stysti hluthafafundur í almenningshluta-
félagi sem haldinn hefur verið. Hann tók rétt rúmar 3 mín-
útur. I stuttu máli gerðist þetta: Fundurinn var settur, stjórn
félagsins sagði af sér og ný stjórn var kjörin. Hannes Þór
Smárason, aðstoðarforstjóri Islenskrar erfðagreiningar og
tengdasonur Jóns Helga Guðmundssonar, var kosinn í stjórn-
ina í staðinn íyrir Þórólf Gíslason. (Sem raunar settist í stjórn-
ina í haust sem varamaður Þórðar Jóhannessonar, fram-
kvæmdastjóra Straums, þegar Straumur seldi bréfin til Hest-
eyrar.)
Hannes Þór Smárason er að sjálfsögðu fulltrúi Norvikur,
móðurfélags Byko. Aðrir í stjórn Kers eru Kristján Loftsson,
forstjóri Hvals, formaður, Olafur Olafsson, forstjóri Samskipa,
varaformaður, Margeir Daníelsson, framkvæmdastjóri Sam-
vinnulífeyrissjóðsins, og Gísli Jónatansson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga.
Eðlilega kom ekki til átaka á þessum fundi þar sem Hest-
eyri var áður búin að selja Norvik 22,53% hlut félagsins í Keri
í skiptum fyrir 25% hlut Norvikur í VÍS. Þar með söðluðu þeir
Hesteyrarmenn um hest, kvöddu Ker og fóru yfir í VÍS. Um
leið ákváðu þeir að afsala sér undirtökunum sem þeir voru
búnir að ná í Keri og sýnist sem þeir hafi haft um 700 milljóna
króna hagnað af þessum viðskiptum. Um leið afsöluðu þeir
sér einnig völdum og frumkvæði vegna kaupanna á Búnaðar-
bankanum, en VIS verður þó á meðal kaupenda.
Þess má geta að Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, og
Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri íslenskrar erfðagrein-
ingar, voru fjarverandi og mættu ekki á hluthafafundinn. Full-
trúi VÍS á fundinum var Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS. Full-
trúi Samvinnulífeyrissjóðsins var Margeir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins. Fulltrúi Norvikur var Jón Helgi Guð-
mundsson, forstjóri Byko. Fulltrúi Kjalars og Vogunar var
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals. Fulltrúi J&K eignarhalds-
félags var Jón Þór Hjaltason, eigandi þess. Fulltrúi Eignar-
haldsfélags Samvinnutrygginga var Axel Gíslason, fram-
kvæmdastjóri þess félags. Fulltrúi Sunds var framkvæmda-
stjóri þess, Jón Kristjánsson. SH
28