Frjáls verslun - 01.10.2002, Qupperneq 30
KflUPIN Á BÚNflÐflRBflNKflNUM
VIS. Þess má geta að Landsbankinn selur ekki hlut sinn í líf-
tryggingafélaginu Iifís.
Fóru peningar Jóns Helga til greiðslu láns? En stöldrum aðeins
við. Takið eftír því að Ker greiddi Landsbankanum tæpa 2,7 millj-
arða fyrir 19% hlutaijárins í VIS í endaðan ágúst. Gera verður ráð
fyrir því að Ker hafi tekið lán fyrir þessum kaupum hjá selj-
andanum, þ.e. Landsþankanum. Þegar Jóni Helgi keypti 25%
hlutinn í VÍS af Keri á 3,4 milljarða virðist þvi blasa við að stór
hluti þeirrar íjái'hæðar hafi farið í að greiða af láninu vegna
kaupanna í VIS af Landsbankanum.
Spurningin sem þá vaknar er sú hvar Ker ætlar að fá 4 millj-
arða tíl kaupanna í Búnaðarbankanum. Ekki síst þegar fyrir ligg-
ur kaupskylda af Landsbankanum upp á 15% eignarhlut í VÍS í
febrúar á næsta ári. Þess utan hefur Ker ijárfest verulega í SÍF á
haustmánuðum og keypti þar bréf af Búnaðarbankanum og allir
vita að til stendur að Ker og dótturfélag þess, Samskip, reisi
stórt vöruhótel sem kosta mun líklegast um 2 milljarða króna.
Allt eru þetta miklar Jjárfestíngar og peningar vaxa ekki á
trjánum. Til eru nokkrar leiðir í ijárfestingum. Sú gamla góða er
sú að eigi einhver ekki fyrir hlutnum þá verður hann að taka lán
fyrir honum. Af þessu sést að annaðhvort þarf Ker að fara í
umfangsmikið hlutaijárútboð á næstunni, eða að selja eignir til
að afla flár, elia kemst það ekki hjá því að taka lán og skuldsetja
sig. Að vísu hafa ýmis fyrirtæki farið þá leið í fasteignavið-
skiptum að selja utanaðkomandi fyrirtæki húsnæði sitt og leigja
það svo aftur af viðkomandi fyrirtæki til langs tíma. Kaupleiga
byggist td. á þessu. En hvað um það, ætla verður að Ker sé með
spil uppi í erminni og finni sína leið.
Hvar fær VÍS sína milljarða til kaupanna? Auðvitað verður
einnig að spyija sig að því hvar VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn
og Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga nái í fé til að leggja
fram samtals um 4 milljarða við kaupin á Búnaðarbankanum.
Munurinn á þeim og Ker er auðvitað sá að Jjárhæð hvers þess-
ara félaga er einhvers staðar á bilinu 1 tíl 2 milljarðar, en ekki 4
milljarðar, og það ætti að gera máfið auðveldara. VÍS hefur auð-
vitað verið ein helsta peningamaskína gömlu samvinnufélag-
anna á undanförnum árum og á sjálfsagt fremur auðvelt með að
verða sér útí um 1 tíl 2 milljarða tíl að leggja í púkkið. Eignar-
haldsfélag Samvinnutrygginga er sömuleiðis ijárhagslega sterkt
félag og skuldlítið og hefur ekki skuldbundið sig til að kaupa
nema um 1% í VIS af Landsbankanum í febrúar á næsta ári. Það
á eflaust tiltölulega auðvelt með að verða sér úti um fé til
kaupanna í Búnaðarbankanum. Sama verður efiaust upp á ten-
ingnum hjá Samvinnulífeyrissjóðnum sem er þekkt pen-
ingamaskína líkt og aðrir lifeyrissjóðir í landinu og sterkur þótt
hann hafi engu að síður skuldbundið sig tíl að kaupa 4% í VÍS af
Landsbankanum í febrúar á næsta ári. Að vísu má velta því alvar-
lega fyrir sér hvort Samvinnulífeyrissjóðurinn sé ekki með of
mikið fé bundið í fáum fyrirtækjum og ættí að dreifa áhættunni
meira. Sjóðurinn á 13,3% hlut í Keri og verður kominn með um
14% hlut í VIS á næsta ári, auk hlutarins í Búnaðarbankanum.
Franski bankinn Société Genérale er ekki þekktur banki á
Islandi. Sáralítið hafði farið fyrir honum í umræðum hér-
lendis áður en hann var nefndur til sögunnar vegna kaupa S-
hópsins á Búnaðarbankanum. Ganga verður að því sem
gefnu að hann eigi auðvelt með snara út 4 milljörðum til að
leggja sinn skerf í púkkið.
Finnur Ingólfsson Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri og stjórnarformaður VÍS,
treysti Finni Ingólfssyni sem forstjóra VÍS, en Finnur er einn
allra besti vinur Olafs Olafssonar, forstjóra Samskipa. Segja má
að Finnur sé núna á milli tveggja elda, þeirra Ólafs og Þórólfs,
og hlýtur það að þvælast svolítíð fyrir honum. Eftir því sem næst
verður komist eru þeir Þórólfur og Finnur vinir og félagar frá
fornu fari og sagt er að það hafi verið Þórólfur sem fékk Finn til
að taka við forstjórastarfi VÍS þegar fyrir lá að Axel Gíslason
hættí þar sem forstjóri. BI]
http://www.lysing.is
Best hannaði vefurinn
Nýlega var vefur Lýsingar hf. valinn "Best hannaði vefurinn árið 2002"
af fyrirtækjunum ímark og Vefsýn. Vefurinn var unninn af Lýsingu í
samstarfi við vefdeild Búnaðarbanka íslands en Eskill ehf. sá um að
hanna grafískt viðmót vefsins.
Á vefnum getur þú á einfaidan hátt nálgast allar upplýsingar um
fjármögnunarleiðir Lýsingar, reiknað út mánaðargreiðslur og sent
inn umsókn um fjármögnun. Við hjá Lýsingu erum afar stolt af
þessum verðlaunum en þau eru árangur góðs samstarfs Lýsingar
og öflugra aðila á sviði vefvinnslu.
Verið velkomin á www.lysing.is.
Lýsing hf.
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500
Email: lysing@lysing.is
Lyngás 13
210 Garðabæ
Sími: 555 7100
Email: info@eskill.is
30